Nýjustu myndir settar inn 24. Júní í Mars-Júní möppur
Ágúst Þengill
Ég fæddist 14.maí 2005 kl 16:17 foreldrum mínum til mikillar ánægju.
Pabbi sagði að ég líktist einhverjum Hulk þegar ég var tekinn úr maganum á mömmu, stór og grænn.
Það þurfti nefnilega að ná í mig inn í magan á mömmu með keisaraskurði því það var svo notalegt þar að ég vildi ekkert fara út.
Ég var tæp 4 og hálft kíló og 54 sentimetrar þegar ég fæddist.
Og hef bara stækkað og braggast síðan.
Hárið mitt var mikið og svart og augun mín voru eins og bláir gimsteinar.
Ég var líka rosalega brúnn og sætur (örugglega af því að mamma var svoldið sólgin í gulrætur og súkkulaði þegar ég var í maganum hennar)
Núna er hárið mitt alltaf að lýsast og augun mín eru orðin dekkri en alltaf jafn blá.
Óðinn Freyr
Ég fæddist þann 11.október 2007 kl: 08.58 og var tekinn með keisaraskurði þegar ég var á 39 viku og 4 degi, mamma var nefninlega komin með meðgöngueitrun og því var ákveðið að ná í mig.
Mömmu og pabba fannst þetta rosalega skrítið að mæta bara upp á spítala til að fá barnið og þetta tók alveg ótrúlega stuttann tíma, allt í einu var ég bara kominn. Ég var rosalega hreinn og fínn þegar ég kom út og fékk að fara beint til mömmu minnar og pabba eftir aðgerðina sem var rosalega notarlegt.
Ég var 4280 grömm og 53.5 cm að lengd með ljósleitt hár og blá augu. Við eigum ennþá eftir að sjá hvernig augun verða seinna meir. Ég er líka alveg rosalega brúnn og sætur eins og stóri bróðir, þannig að mamma hlýtur að hafa verið jafn dugleg að borða gulrætur og súkkulaði á þessari meðgöngu ; )
Húrra fyrir okkur !!
____________________________________________________
____________________________________________________
____________________________________________________
________________________________________
VÍDEÓ AF GÚSTA
Við Tinna að dansa við undirspilið hans pabba.
ÝTTU Á MYNDINA :O)
Og aftur ári síðar ....
ÝTTU Á MYNDINA
_________________________________________
Þann 13.Ágúst var stór dagur hjá Ágústi Þengli og mömmu og pabba.
Þau giftu sig og ég var nefndur að Ásatrúarsið í bústaðnum hjá langömmu og langafa í Hvalfirðinum.
Það var svoldið erfitt fyrir mig því ég var svo þreyttur og svangur akkúrat á meðan það var verið að nefna mig en það var gott þegar það var búið.
Og þar sem Óðinn Freyr fæddist í Október þá ætlum við að bíða með að láta Jónínu K. Berg goða nefna hann fyrr en sumarið 2008 en við viljum auðvitað láta gera það undir berum himni og þá er nú betra að bíða eftir sumrinu.
Hér eru nokkrar myndir af þessum góða degi okkar.
BRÆÐURNIR MEÐ ÓSKAR BANGSA
________________________________________________________________________
Núna eru
Á síðunni okkar
_________________________________________________________________________
GÚSTI KISUSKOTT
|
Þetta kerti lýsir fyrir kæru langaafa okkar,
Megi þeir hvíla í friði.
Langafi Atli
langafi Siggi
**Blessuð sé minning ykkar**
*** Sú ákvörðun að eignast barn er sú ákvörðun, að
að eilífu gangi hjarta þitt utan líkama þíns ***
*** ELSKU BARN ***
Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.
Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.
Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .
Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .
Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.
_________________________________________________________________________
_____________________________________________________________________
ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA
Áður en ég varð mamma borðaði ég
matinn á meðan hann var heitur, gekk
í hreinum fötum og gat spjallað í
rólegheitunum í símann.
Áður en ég varð mamma gat ég
farið seint í háttinn, sofið út um
helgar, greitt mér daglega og gengið
um íbúðina án þess að stíga á leikföng.
Áður en ég varð mamma velti ég
því aldrei fyrir mér hvort
pottaplönturnar á heimilinu
væru eitraðar.
Áður en ég varð mamma hafði
enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.
Áður en ég varð mamma hugsaði ég
skýrt, hafði fullkomið vald yfir
líkama mínum og tilfinningum
og svaf alla nóttina.
Áður en ég varð mamma hafði ég
aldrei haldið grátandi barni föstu til
þess að læknir gæti sprautað það
eða tekið úr því blóðprufu.
Áður en ég varð mamma hafði ég
aldrei brostið í grát við að horfa í
tárvot augu og þekkti ekki þá
hamingjuflóðbylgju sem getur
sprottið af einu litlu brosi.
Áður en ég varð mamma sat ég
aldrei langt fram á nótt og horfði á
barn sofa eða hélt á sofandi barni
vegna þess að ég tímdi ekki að leggja
það frá mér.
Áður en ég varð mamma vissi ég
ekki hvað ein lítil vera getur haft
mikil áhrif á líf manns og hversu
óendanlega sárt það er að geta ekki
kippt öllum vandamálum í lag.
Áður en ég varð mamma vissi ég
ekki að ég gæti elskað svona heitt og
hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.
Áður en ég varð mamma þekkti ég
ekki þetta einstaka samband móður
við barn sitt og gleðina sem fylgir
því að gefa svöngu barni brjóst.
Áður en ég varð mamma vaknaði ég
ekki tíu sinnum á nóttu til þess að
aðgæta hvort allt væri ekki
örugglega í lagi.
Áður en ég varð mamma hafði ég
ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum,
sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir
því að eiga barn.
______________________________________________________________________
|