| Velkominn á heimasíðuna mína síðunni hefur nú verið læst og er lykilorðið nafn systur minnar |
| Ég heiti Reynir Daði |
|
Um mig:
Ég fæddist á Vest Agder sentralsykehus í Kristiansand í Noregi þann 30. ágúst 2000.
Ég var 51 cm og vóg 3620 grömm og ég var alveg rosalega mikill gullmoli og það fallegasta sem mamma mín og pabbi höfðu nokkurn tímann séð. Endilega allir að kvitta fyrir sig í Gestabókina það er mjög mikið metið. |
|
|
|
Endilega skoðið heimsíðu systur minnar http://elisamist.barnaland.is
Jæja ég er nú orðin 5 ára gamall og mamma er ekki alveg að átta sig á því held ég. Hún segir ekki annað en "ég trúi ekki hvað hann Reynir minn er orðin stór mér finst eins og ég hafi verið að kenna honum að labba í gær". Mamma er ansi skrítin.
Ég er alveg rosalega montinn yfir því að vera stóri bróðir og ég tek það hlutverk mjög alvarlega og er henni sistir minni ótrúlega góður. Mér finnst ég þurfa að kenna henni allt og vera með henni þar sem hún er, ég elti hana alltaf þegar hún er í hlaupagrindinni sinni. Svo er ég líka að fara að flytja. Ég er frekar djúpur orðinn og er farinn að spá og spekúlera í svo mörgu. Mig hlakkar líka alveg rosalega til að fara í skóla en ég er að læra að lesa núna með mömmu og pabba og svo kann ég næstum allt stafróið útanaf enda er mamma alltaf að byðja mig að skrifa fyrir sig. Hún er bara svo montin af mér. Ég er orðinn stóribróðir eignaðist systir 5.febrúar 2005 og hún er rosalega sæt, ég ætla að kenna henni allt. Ég er í Bandaríkjunm núna þar sem pabbi er að læra og það er alltaf sól hérna Ég er byrjaður í skóla og ég er svo spenntur að byrja að læra. Ég tala ekki um annað en hvað ég er orðin stór og duglegur. Mamma og pabbi eru að sprýnga úr monti og eru svo ánægð með mig, ég ætla sko að gera mitt besta og standa mig vel í skólanum og alltaf að gera ens og kennarinn segir mér. Ég er í 1-LG í Hvaleyraskóla og umsjónakennari minn heitir Lilja og hún er sko með barn í maganum. Ég er í bekk með Sóley Lilju, Ástrós Mirru, Davið Snær, Jóhanni Freyr sem voru öll með mér á leikskóla og eiga heima mjög nálagt mér. Svo þegar mamma er aðeins farin að slaka á þá má ég labba með þeim í skólan en hún er svo hrædd um að ég fari ekki beint í skólan því ég á það til að detta aðeins úr sambandi þegar ég sé eitthvað sem grípur mig. Mamma segir að ég megi byrja að labba þegar hún hefur labbað með mér alla næstu viku til að kenna mér leiðina almennilega. Mig hlakkar til að gera það... |