Já núna er langt síðan síðast en svona er þetta bara.
Ég er alltaf hress og er búinn að missa fyrstu tönnina mína hún var í neðri góm og ég fékk bréf pening fyrir tönnina, tannálfurinn hlýtur að vera farinn að skorta tennur eða mín tönn var bara svona rosalega fín.
Mamma og pabbi segja bæði að tönnin hafi verið svona fullkominn.
Já mér gegnru vel í skólanum og ég er farinn að lesa sem er að gera mömmu alveg vitlausa úr monti.
Pabbi er alltaf úti með mér í fótbolta og það er gjeggað stuð, ég er líka með rosalega orku sem verður að losa ef ég á einhverntíman að fara að sofa á kvöldin og sama hversu mikið ég er úti að grallarast er alltaf sama vandamálið að róa mig nóg til að sofna.
en mamma er hætt að pæla í því hún veit að þetta breytist einhverntíman enda er ég bara að grallarast inní herberginu mínu og ekki frammi þá er allt í góðu.





