Velkominn á heimasíðuna mína heimasíðunni hefur nú verið læst en lykilorðið er nafn bróður míns
Ég heiti Elísa Mist


Um mig:
Ég fæddist á fæðingardeild LSH þann 5. febrúar 2005.
Ég var 51 cm á lengd og vóg 15 merkur eða 3755 gr.
Mamma og pabbi voru í skýjunum yfir því að eignast stelpu því þau áttu flottasta strákinn í heimi áður en ég kom í heimin og eiga þau nú fallegustu börn í heimi.
Ég fór í hreiðrið með mömmu og pabba og stóribróðir var heima hjá ömmu og afa.
Ég fór svo heim með mömmu og pabba 6. febrúar og stóribróðir var alveg rosalega spenntur að fá mig heim.
Ég var strax dugleg á brjósti og okkur mömmu gekk bara mjög vel. Pabbi minn var heima hjá okkur í mánuð og það var alveg æðislegt.
Ég fór að brosa 6 vikna gömul og fór að hlæja stutt eftir það, ég tók aldrei snuð eða pela.
Ég velti mér á magan tæplega 3 mánaða og á bakið um 4 mánða gömul. Ég gat setið óstudd 6 mánaða og fór að labba með um níu mánaða og 27. desember þá fór ég að labba.
Ég er í dag 5 ferbúar 2006 orðin eins ár og er farin að hlaupa um og er enn á brjósti. Ég er algjör dúlla og er alltaf eitt bros allan daginn.
Ég er í Bandaríkjunum núna og verð hérna meðan pabbi er að læra.





Endilega allir að kvitta fyrir sig í Gestabókina það er mjög mikið metið.
EVERYONE FEEL FREE TO LEAVE YOUR MARK IN THE GUETSBOOK... THANK YOU




Endilega skoðið heimasíðu bróður míns http://reynirdadi.barnaland.is
Já nú er ég orðin heldur betur stór stelpa, ég er orðin 8 mánaða gömul og er farin að sýna svo mikin karakter.
Ég er ALGJÖR MÖMMU stelpa stundum alveg einum of finnst henni mömmu.
Ég á besta bróðir í heiminum enda er hann alltaf að gera eitthvað fyrir mig, grallarast, geltir og gerir allskyns dýrahljóð og þá hlæ ég sko mikið, reyndar hlæjum við bæði alveg rosalega mikið.
Það er svo mikið að sjá og gera ég er handóð og reyni að ná í allt sem ég sé sama hvar það er, ég bara vola eitthvað og geri meira af því ef mamma fer ekki með mig í rétta átt og svo komust við nú alltaf á leiðarenda í lokin og ég fæ það sem ég er úti eftir.
Annars dafna ég alveg rosalega vel fyrir utan það að ég er með barnaexem og eitthvað mataróþol en mamma er bara eins og hún er allir segja að þetta sé svo hræðilegt en hún segir bara að það sé bara svona sem þetta er.....
Ég er HANDÓÐ á mjög háu stígi ég læt ekkert vera og sting öllu uppí mig. Ég er nú samt farin að hlusta á mömmu og pabba þegar þau segja nei eða bja þá tek ég venjulega út úr mér en stundum er ekki séns að ég hlusti.
Ég er farin að hlaupa um og er alltaf að elta Reynir bróðir, taka dótið hanns og skemmi oft fyrir honum en hann gerir ekkert lokar sig stundum af inni hjá sér þegar ég er erfið.
Ég er bara algjör prinsessa og fæ alltaf það sem ég vil.