ErNa AlExAnDRa
Ég heiti Erna Alexandra Guðjónsdóttir og er dóttir Guðjóns Ægirs Gunnarssonar ´80 og Thelmu Logadóttur ´83 Ég á stóran bróðir sem passar alltaf vel upp á mig sem er 5 ára og heitir Birkir Þór Guðjónsson ´04. Ég er skírð í höfuðið á Ernu ömmu heitinni og Alexaöndru nafnið kemur þar sem að dúkkan hennar mömmu hét Erna Alexandra og var mamma alltaf búin að ákveða það að fyrsta stelpan hennar muni heita Erna Alexandra :) Ég er eftirmynd mömmu þegar að hún var lítil fyrir utan það að ég hef brún augu. Persónuleikinn minn er mjög sterkur og er ég rosalega ákveðin, ef ég ætla mér að gera eitthvað þá geri ég það. Stundum þarf ýmsar kúnstir til en mér tekst þó markmiðið í flestum tilfellum :) Ég er rosalega fljót að læra og er einstaklega skýr. Ég er að æfa ballet á laugadögum og þykir mér rosalega gaman að sýna mömmu og pabba hvað gert hefur verið á hverri æfingu. Eg nýt þess að kveikja á græjunum og láta tónlistina óma á meðan að ég syng og dansa. Nýjasta nýtt er að fara frá því að vera stráka-stelpa og vera alger prinsessa. Ég vil helst vera í kjól á leikskólanum og láta mömmu greiða mér á morgnana (sem að ég hef ekki leyft áður fyrr). Leikskólinn minn heitir Vinagerði og er ég svo heppin að vera með bestu vinkonu minni henni Kristjönu Ásu á deild. Við erum saman á Álfagerði. Við Kristjana Ása erum líka svo heppnar að búa í sama húsi í Rauðagerðinu. Endilega verið dugleg að kvitta í gestabókina mína þar sem að mér þykir svo gaman að sjá hverjir hafa kíkt í heimsókn.


Um mig:
.. Ég og bróðir minn Birkir Þór ..



.. við erum sko miklir vinir ..





VOGIN
23. september - 22. október

Árstími Vogarinnar er haustið, þegar litir eru sterkir í náttúrunni og sumarið og uppskeruvinnan er að baki. Veður eru enn ágæt og því góður tími til að sinna félagslífi. Fyrsti mánuður haustsins er því rómantískur og það fólk sem fæðist í Vogarmerkinu þykir ljúft, listrænt og félagslynt. Jafnvægi og réttlæti Til að skilja Vogina þarf að horfa á 'symból' merkisins, vogina sem vegur og metur. Ef of mikið er sett á aðra skálina þá hallar vogin og allt fer í voða. Enda er það oft svo að fólk sem fæðist í þessu merki hefur sterka réttlætiskennd. Það er alltaf að leita að jafnvægi, leita að því sem stillir vogina af. En þetta er hægara sagt en gert, og því geta Vogir sveiflast til. Erum stundum eftirgefanlegar, stundum harðar, stundum ljúfar, stundum hrjúfar. Þetta er leit að jafnvægi, að 'balance'. Sumar Vogir eru vel stilltar, aðrar sveiflast stöðugt frá einum pól til annars, eru 'brokkgengar' eins og einn ágætur maður sagði. Ljúf samvinna Það sem einkennir framkomu Vogarinnar, eða það sem hún reynir að láta birtast útávið, er ljúfleiki. Öðrum megin á skálinni er ég-ið og hinum megið er þú-ið. Þetta er spurning um jafnvægi á milli mín og þín. Jafnvægi og samvinna er það sem Vogin er að leitast eftir og því reynir hún að koma vel fram við aðra. En ef hún fær ekki sínu framgengt með ljúfleika, brosi og sannfæringarkrafti, þá á hún vissulega til að valta yfir umhverfið. Það er því oft talað um hina 'ljúfu frekju'. En vissulega vill Vogin vera fáguð, kurteis og yfirveguð. Fegurð Stjórnandi Vogarinnar er Venus og 'elementið' er loft. Venus er pláneta fegurðar og samvinnu, og loftið er táknrænt fyrir rökhugsun. Vogir eru því oft félagsmálamenn, listamenn, pælarar og pólitíkusar. Stundum sameinast þetta allt í einum og sama manninum. John Lennon var listamaður sem barðist fyrir réttlæti. Jóhanna Sigurðardóttir er pólitíkus sem berst fyrir réttlæti. Friðrik Sophusson er pólitíkus, hann virðist ekki berjast fyrir neinu sérstöku, en hann er vissulega greindur og fágaður, kurteis og hæfileikaríkur félagsmálamaður. Vog sem virðist í góðu jafnvægi. Það sem örvar Vogina Að lokum, má segja að Vogin þurfi til að endurnýja og viðhalda lífsorku, að dvelja í félagslega og hugmyndalega lifandi umhverfi. Það þýðir að Vogin þarf að hitta fólk sem örvar hugsun hennar. Hún þrífst illa í einangrun og andlegu tómarúmi. Tapar orku. Vogin þarf á fólki, félagslífi, ást og náinni samvinnu að halda. Umhverfið þarf helst að vera fagurt, listaverk, málverk, litaharmónía og fallegir tónar. Kurteis umræða og fágað orðbragð. Jafnvægi og réttlæti. Rétt stilltar skálar.










Birkir Þór stóri bróðir minn

Þorbjörg Alma

Viktor Máni

Sindri Steinn

Isabella Ósk litla prinsessa

Elfa Björg litla prinsessa

Ásrún Anna frænka mín

Linda litla prinssessa(",)

Anja Björk litla skvís

Steinþór Örn litli prins

Daníel Rúnar

Amanda Sól

Hrafn Ingi

Líf litla prinsessa

Agnes Embla

Andri Steinn

Systurnar þrjár, dagmar siljá, móey og Dalia Máney

Alma Rán superskvís

Litli bumbubúi Guðlaugar Völu

Ísabella bellurass

Bjartur Snær

Magni Fannar


Endilega sendu mér póst
Þú ert gestur nr. 39503