Hæ ég heiti Alexander Helgi og ég er 8 ára. Ég fæddist þann 5. febrúar 1999,á fsa kl 12:54. Ég var 3985gr og 52cm. Ég er 3 barn mömmu. Mamma fór í læknisskoðun kl 10 um morgunin og var þá komin með 6-7 í útvíkkun svo læknirin vildi bara láta sprengja belgin og koma mér í heimin svo mamma var komin á spítalan kl 12 ég var svo neðarlega í grindini að þegar belgurin var sprengdur þá fékk ég ör eftir það. Dálaglegt að vera meiddur áður en maður fæðist :) það var gert kl 12:25 og var ég komin í heiminn hálftíma síðar. Helga uppáhalds frænka mín var viðstödd þess vegna heiti ég Alexander Helgi. Mamma mín heitir Aníta Björk og Pabbi minn heitir Sigurður. og svo á ég Stjúppabba sem heitir Benedikt. Ég á 2 eldri systur það eru Fanney 17 hún fæddist 5 ágúst 1991 hún var fermd 20. mars 2005 og svo er það Lena hún er 13.hún fæddist 22 mars 1995 hún býr hjá pabba sínum í reykjadal og öll fæddumst við á akureyri Ég á núna heima á Akranesi og búin að eiga heima þar síðan í mai 2001 það er rosalega skemmtilegt að eiga heima hér nú er ég byrjaður í skóla og finnst mjög gaman skólinn minn heitir brekkubæjarskóli og bekkurinn 4 Ls svo er ég sko orðin stóri bróðir ég eignaðist 3 litlar systur
þær heita sandra sól sara ósk og maría líf og eru fæddar 130307
heilum þremur mánuðum fyrir tíman



Alexander: Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari

Helgi: Nafn þetta er myndað af nafnorðinu "helgur"



Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.


Þríburakrúttin okkar

Mikael Logi

Tinna María

Embla Sól

Sylvía Diljá

Vilhjálmur Huldar

Svanberg aron og Inga lilja

Birta mjöll valdimarsdóttir

Ingvi þór og Hafþór blær



Pabbi er maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.



MAMMA ER KONAN.....

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, tildæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast með manni þegar það er gaman að vera til.







Þú ert gestur nr. 13081