Verið hjartanlega velkomin á síðuna mína
Ég heiti Marín Líf & ég er dekurdúlla foreldra minna




Create Your Custom Message





Ég bað ekki um að verða til og það er ekki víst að ég geti orðið það barn sem ykkur dreymdi um að eignast. Það er ekki einu sinni víst að ég geti orðið það barn sem vísindin kalla heilbrigt og eðlilegt. Engu að síður vonast ég til að ykkur geti þótt vænt um mig, því að án þess get ég ekki náð fótfestu í lífinu.
En hvernig sem ég er, þá er ég SÉRSTÆTT UNDUR náttúrunnar. Það hefur aldrei verið til annað barn, sem er nákvæmlega eins gert og ég og það verður að líkum aldrei til. Þess vegna getið þið aldrei lært neitt um séreðli mitt af bókum eða fræðimönnum, heldur bara um það, sem ég á sameiginlegt með öðrum börnum svona í stórum dráttum.
Reynið að virða séreðli mitt, því að það er hvorki á ykkar færi né mínu að breyta því. En gruni mig, að ykkur falli séreðli mitt ekki í geð, get ég reynt að fara að breyta því til að þóknast ykkur. En mér getur ekki liðið vel, ef mér finnst ég þurfa að lifa lífinu í andstöðu við mitt innsta eðli. Því miður get ég ekki skýrt þetta séreðli mitt fyrir ykkur. Þess vegna á ég alla velferð mína undir skarpskyggni ykkar og athygli.
Það er svo auðvelt að horfa án þess að sjá og hlusta án þess að heyra eða sjá og heyra bara það, sem maður býst við að sjá og heyra. Ef þið festist í þeirri gildru, getur farið svo að þið uppgötvið aldrei, hvernig ég er í raun og veru. Eða hvers vegna ég bregst við eins og ég geri. En þótt mig langi til að fá að vera bara svona eins og ég er, langar mig samt að geta þroskað þá hæfileika sem ég hef fengið í vöggugjöf. Til þess þarf ég á handleiðslu ykkar að halda. Það er ekki vandalaust verk.
Það er ekki hægt að ýta svo á eftir mér, að mér verði fótaskortur á hraðanum og engan veginn víst, hve vel mér gengur að rísa aftur á fætur. Á hinn bóginn getið þið líka verið svo hrædd um mig að þið leyfið mér aldrei að spreyta mig nægilega til að ég geti haldið áfram að þroskast. Til þess þarf ég, að minnsta kosti öðru hvoru og helst sem oftast að fá að spreyta mig við efri mörk minnar getu. Það er skaðlaust svo framarlega sem þið hafið augun opin og fylgist með hvenær ég er að þreytast eða verkefnin að vaxa getu minni yfir höfuð.
Ef ég fæ ekki að spreyta mig öðlast ég aldrei það öryggi, sem reynslan ein getur gefið. Séu verkefnin hins vegar að staðaldri ofviða minni getu, missi ég smám saman kjarkinn og sjálfstraustið bíður hnekki. Að sjálfsögðu vil ég gjarnan fá að ráða og þekki í raun ekki annan vilja en minn eigin. Í sjálfu sér langar mig mest til að sveigja allt og alla undir minn vilja. En það megið þið ekki leyfa mér, því það er of hættulegt. Þið verðið að pass mig fyrir hættum því ég kann ekkki að forðast þær af sjálfsdáðun. En þið verðið líka að temja mig, hefla mig og siðfága. Reynið samt ekki að kenna mér þetta allt í einu því þá ruglast ég í ríminu. Kennið mér fyrst að forðast hættur því að það er mikilvægast. Siðfágunin getur beðið betri tíma.
Ef ég finn, að ykkur þykir fölskvalaust vænt um mig, vil ég ýmislegt fyrir ykkur gera því mér fer að þykja vænt um ykkur á móti. Ég get meira að segja vel beygt minn vilja undir ykkar vilja, svo framarlega sem reynslan sannar mér að ykkur er ávallt velferð mín efst í huga, þegar þið eruð að banna mér eða aga mig, en látið ekki stundarduttlunga eða augnablikshagsmuni ykkar ráða ferðinni.
Finni ég glöggt, að þið berið ávallt mína velferð fyrir brjósti kemur fyrr eða síðar að því að mér verður ljóst hvers virði handleiðsla ykkar er þar eð hún forðar mér frá glappaskotum, sem ég myndi gera ef minn vilji réði einn. En viljið þið, að ég hlýði til þess eins, að þið getið sýnt vald ykkar yfir mér er ekki víst að ég verði svo mjög fús til samvinnu. Ég hlýði ykkur ef til vill af hræðslu meðan þið sjáið til en þið skuluð ekki búast við, að ég hlýði til að sanna, hvað þið eruð góðir uppalendur. Þá bíð ég bara eftir tækifæri til að verða ykkur til skammar, þegar næsti gestur kemur í heimsókn.
Síðast en ekki síst, vil ég biðja ykkur um að muna að þið eruð FYRIRMYND mín í tilverunni. Ég hermi eftir öllu, sem þið gerið hvort sem það er gott eða vont. Það þýðir ekki fyrir ykkur að segja mér að gera eitt, ef þið gerið sjálf eitthvað annað. Ég tek ekki mikið mark á orðum, sérlega ekki ef ég finn, að þau stangast á við allt, sem ég sé fyrir mér. Ég skil ekki einu sinni alltaf það, sem þið eruð að segja en ég get alltaf hermt eftir því, sem ég sé fyrir mér, hvort sem ég skil það eða ekki. Þess vegna skuluð þið aldrei gleyma þeirri einföldu en fjarskalega erfiðu staðreynd, að það er ykkar hegðun, sem mótar mig öllu öðru fremur.














Til Marínar Lífar frá afa Ottó:

Tíu fingur & tíu tær
tel ég að hún hafi.
Marínu litlu yngismær
mikið elskar afi.




Elsku mamma

Ég elska þig svo mikið
og mig langar svo til að segja þér af hverju

Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig
Þú ert besta mamman í öllum heiminum
Ég á þér svo margt að þakka
Ég er svo stolt yfir því að vera dóttir þín

Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda
Þú lýsir upp líf mitt
Frá þér streymir kærleikur og hlýja
Þú ert skilningsrík
og viskubrunnur þinn er óþrjótandi

Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna
Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag
ef ég hefði ekki átt þig að

Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda
og hvenær ég þarf uppörvun
Þú þekkir mig svo vel
Ég veit að til þín get ég alltaf leitað

Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig
Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut

En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig

ÞÚ ERT BEST



Elsku pabbi minn

Mig langar svo til að segja þér hve kær þú ert mér
og hve mikils virði þú ert í mínum augum
Ég tel mig lánsama/-nn að hafa fengið að kynnast þér
Ég væri ekki sú/sá sem ég er í dag nema vegna þín

Þú hefur leitt mig í gegnum lífið
þurrkað tár mín og huggað mig á slæmum tímum
Þú hefur stórt hjarta, fullt af visku
Þú hefur hjálpað mér að ná draumum mínum

Ég vildi að ég gæti gefið þér þann hæfileika að geta
séð sjálfan þig með augum annarra
Þá myndir þú sjá hve sérstakur þú í rauninni ert

Takk fyrir að vera til
Takk fyrir að vera til staðar
Takk fyrir að vera þú

Ég elska þig pabbi






Fallegust :-*



BOGMAÐURINN

22. nóvember - 21. desember


Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.






Afa & ömmu boðorðin 10:

1. Þú skalt alltaf vera að knúsa & kyssa barnabarnið þitt.
2. Þú skalt gefa því ótakmarkað af kökum.
3. Þú mátt ekki gleyma að kyssa á öll báttín.
4. Þú skalt alltaf vera í sambandi, í eigin persónu, símleiðis eða með pósti.
5. Þú skalt deila góðum minningum & sögum.
6. Þú skalt alltaf vera tilbúin með nammiskálina.
7. Þú skalt verðlauna góðar einkunnir eða íþróttasigra.
8. Þú skalt leyfa því að vaka lengur en háttatíminn segir.
9. Þú skalt verða örlát/ur á lof & hrós.
10. Þú skalt segja við hvert tækifæri sem gefst, að þú elskir það.

Afi er...
maðurinn sem á ekki sjálfur börn svo hann lætur sér þykja vænt um drengi & stúlkur sem aðrir eiga. Afar hafa mikið að gera, en hafa samt næstum því alltaf tíma til að leika við mann, þá láta þeir oft eins & algjörir kjánar & leyfa manni að gera næstum því allt sem mann langar til að gera. Mamma segir að afar geri börn óþæg. Margir afar þurfa aldrei að greiða sér því þeir hafa svo lítið hár. Afara eru oft að kenna manni hvað fuglar & fjöll & svoleiðis heitir. Afar vita allt. ALLIR ÆTTU AÐ EIGA AFA.

Amma er...
konan sem sjálf á ekki börn svo hún lætur sér þykja vænt um drengi & stúlkur sem annað fólk á. Ömmur hafa ekki neitt að gera, þær eru bara til. Þær segja aldrei flýttu þér nú, eða haltu áfram. Flestar ömmur eru feitar, en ekki svo feitar að þær geti ekki reimað skóna manns. Þær geta sagt manni allt sem mann langar til að vita, eins & af hverju hundar hata ketti eða af hverju Guð er ekki giftur. Ef þær lesa fyrir mann, hlaupa þær aldrei yfir neitt. Ömmur eru þær einu sem hafa tíma fyrir aðra. ALLIR ÆTTU AÐ EIGA ÖMMU.




LÍF

Ljós í myrkri, langt og mjótt,
markar upphafið hjá þér.
Allt í einu ertu komin,
inn í heiminn, lítil, dofin.
Dregur andann hið fyrsta sinn.

Þú ert vorið, vindur hlýr,
vekur hjá mér nýja kennd.
Og ég græt í gleði minni,
þú gefur mér með návist þinni
svo miklu meira en trúði ég.

¨Líf, ljómi þinn er skínandi skær.
¨Líf, augun þín svo saklaus og tær.
¨Fegurri en nokkuð annað,
¨áhrifin ótvíræð.
¨Ég svíf því ég á þetta líf.

Óskadraumur, ásýnd þín,
ekkert jafnast á við það.
Þó mig þúsund drauma dreymi,
þessa stund ég alltaf geymi
í mínu sinni, ókomin ár.

¨Líf, ljómi þinn er skínandi skær.
¨Líf, augun þín svo saklaus og tær.
¨Fegurri en nokkuð annað,
¨áhrifin ótvíræð.
¨Ég svíf því ég á þetta líf.








Bara í kvöld....

-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...

-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...

-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...

-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...

-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig.






Til Marínar Lífar:


Er ég horfi í augun svo saklaus og blá
af hamingju fyllist mitt hjarta.
Þig svo lengi hafði ég þráð,
nú sé ég framtíðina bjarta.

Þú ert svo falleg og yndisleg mær,
á hamingju skýi ég svíf.
Eitt vil ég segja þér dóttir kær:
"Ég elska þig, Marín Líf."


Ástarkveðja mamma






In my daughter's eyes, I am a hero.
I am strong an' wise,
And I know no fear.
But the truth is plain to see:
She was sent to rescue me,
I see who I wanna be, in my daughter's eyes.

In my daughter's eyes, everyone is equal,
Darkness turns to light,
And the world is at peace.
This miracle God gave to me,
Gives me strength when I am weak.
I find reason to believe, in my daughter's eyes.

An' when she wraps her hand around my finger,
Oh, it puts a smile in my heart.
Everything becomes a little clearer.
I realise what life is all about.
It's hangin' on when your heart has had enough;
It's givin' more when you feel like givin' up.
I've seen the light: it's in my daughter's eyes.

In my daughter's eyes, I can see the future.
A reflection of who I am,
An' what will be.
An' though she'll grow an', some day, leave:
Maybe raise a family,
When I'm gone, I hoe you'll see,
How happy she made me,
For I'll be there, in my daughter's eyes.


Takk fyrir komuna & munið eftir gestabókinni.
Þú ert gestur nr. 35585