![]() |
| Við erum bræðurnir Benedikt Birgir og Hilmar Helgi Hrafnkelssynir |
|
|
Um mig:
Albúminu mínu hefur verið læst, en lykilorðið er uppáhaldsliðið hans Pabba (og auðvitað mitt líka!). Ef þið eruð í vafa sendið okkur þá bara línu og við sendum ykkur lykilorðið um hæl ;)
Benedikt er fæddur fimmtudaginn 13. nóvember 2003 klukkan 14:00. Hann var ósköp mikil písl þegar hann fæddist, aðeins 12 merkur og tæpir 50 cm, en var fljótur að stækka. Augun hans eru græn og brún eins og augun hans Pabba og hárliturinn frekar dökkur. Benni er líka alger krullukall eins og Pabbinn og Mamma er mjög ánægð með það! Hann er í alla staði yndislegur og góður strákur og algjör augasteinn foreldra sinna. Hann er ósköp góður við litla bróður sinn, alltaf að knúsa hann og kyssa og alveg fullkominn stóri bróðir. Hilmar Helgi (AKA Torres Hrafnkelsson) fæddist fimmtudaginn 2. apríl klukkan 12:10. Drengurinn var aðeins stærri en Benedikt eða 15 merkur og 53 cm. Enn sem komið er eru bræðurnir ósköp líkir svo foreldrarnir hlakka mikið til að sjá hvort snúðurinn fái sömu fallegu augun og stóri bróðir og yndislegu krullurnar hans. |
|
|
Annað:
|
| Þú ert gestur nr. 10925 |