Um okkur
Guðmundur Orri fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 2. mars 2005 kl. 13:48. Við fæðingu var hann 4330 gr. og 53 cm.
Guðmundur Orri var skírður í Ólafsfjarðarkirkju 27. mars 2005.
Foreldrar eru Esther Gestsdóttir og Garðar Guðmundsson. Svo á hann líka Bjarna og Stínu.
Hjá pabba sínum og Stínu á hann 2 systur, þær Sölku Björk og Þuríði Lilju.
Guðmundur Orri er greindur með CP og er flogaveikur. Hann er mjög duglegur og gengur honum rosalega vel í lífinu þrátt fyrir fötlun sína.
Guðmundur
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "mundur" sem merkir vernd, - vörn, - gjöf.
Orri
Nafn þetta er komið af fuglsheitinu orri.
src="/album/img/24165/20100909124927_0.gif">
Arnar Logi fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 1. ágúst 2010 kl. 21:02. Við fæðingu var hann 3840 gr. og 52 cm.
Arnar Logi var skírður í Ólafsfjarðarkirkju 22. ágúst 2010
Foreldrar eru Esther Gestsdóttir og Bjarni Pétursson
Við búum öll 4 saman á Akureyri
Arnar
dregið af örn.
Logi
eldur.
———————————————————————————————-
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.
———————————————————————————————-
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.
———————————————————————————————-
src="/album/img/24165/20100909124929_1.gif">
|