Lilypie Kids Birthday tickers Lilypie Second Birthday tickers
Bræðurnir Björn Steinar og Birgir Örn


Um okkur
Við heitum Björn Steinar fæddur 29. mars 2005 og Birgir Örn fæddur 21. mars 2009. Pabbi okkar heitir Ólafur og mamma Þórný.

Endilega verið dugleg að skrifa í gestabókina, það er svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með.

MAMMA ER KONAN.....

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, tildæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!

PABBI ER MAÐURINN

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og annað fólk.

Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.










Við erum báðir Hrútar
HRÚTUR

Hrúturinn er oft grannur og spengilegur, með augabrúnir og nef sem minna á táknið fyrir stjörnumerkið. Hann er lítið hrifinn af skrautgripum og fötum sem hefta hreyfingafrelsi hans, enda er hann hvatvís og lifandi og fljótur að bregðast við. Hrúturinn er eldmerki, svo fólk sem fætt er í Hrútnum hefur oftast ríka þörf fyrir að tjá sig í verki. Það er dugandi, blátt áfram og á bágt með að þola tafir og aðgerðaleysi. Hrútar eru óþolinmóðir og þrjóskir, en þeir eru líka gæddir persónu-töfrum og stefna einbeittir að settu marki. Þeir eru fæddir leiðtogar og fljótir að hugsa, en eðlislæg hreinskilni veldur því að þeir eiga bágt með að segja ósatt og Hrútar eru oft bæði saklausir og einlægir í hjarta. Hrútar hafa gaman af íþróttum, helst ef í þeim felst hraði, hreyfing og líkamleg snerting, enda finnst þeim fátt verra en sitja aðgerðalausir. Hrúturinn er í eðli sínu brautryðjandi, svo hann hneigist til að velja sér starf sem krefst frumlegrar hugsunar, og margir Hrútar gerast vísindamenn, uppfinningamenn, skurðlæknar, geðlæknar eða sálfræðingar, en Hrúturinn gæti allt eins tekið upp á því að reka eigin fyrirtæki, iðulega innan nýrrar starfsgreinar. Hrútar heillast líka af stjórnmálum og eru oft virkir félagar eða í stjórn síns stéttarfélags. Ef Hrúturinn ætlar að ná langt, þarf hann að læra að stjórna skapi sínu og ætti að huga meira að þörfum og skoðunum annarra, til að komast hjá árekstrum.





Þú ert gestur nr. 55100