Mjólk á táknmáli
Amma Didda er voða dugleg að tala við Helenu þannig að hún notar tákn með tali. Þegar hún býður henni til dæmis mjólk þá segir hún alltaf: "Viltu mjólk?" og svo notar hún táknið fyrir mjólk með því.
Svo gerist það í mars að mamma og Helena eru tvær heima og mamma er að vaska upp. Til að fá frið til þess fékk Helena smá popp í skál og var hún voða stillt á gólfinu í eldhúsinu á meðan mamma vaskaði upp. Eftir svolitla stund fer hún að toga í buxurnar hjá mömmu og mamma heldur að hún sé að biðja um athygli og sé búin með poppið. Þegar mamma lítur niður á Helenu horfir Helena á mömmu sína og gerir táknið fyrir mjólk með puttunum!
Mamma fattar strax hvað hún var að segja og opnar ísskápinn fyrir Helenu sína. Þá brosti Helena breitt og fór beinustu leið og náði í mjólkurfernuna.
Þetta var alveg æðislegt augnablik og mamma var svo montin af litlu stelpunni sinni sem var svo klár að gera sig skiljanlega með táknum.
Og þið getið rétt ímyndað ykkur hvað amma Didda var montin þegar hún fékk að heyra söguna ;o)