Jæja, þá er 2. albúmið af 3 frá sumrinu komið inn. Um miðjan júlí fórum við til Egilsstaða með Diddu ömmu og Henna afa. Við vorum í sumarbústað á Einarsstöðum um 10 km. fyrir utan Egilsstaði í 5 daga. Það var alveg yndislegt og fengum við mjög gott veður allan tímann. Við ferðuðumst ágætlega mikið og finnst okkur Austurlandið alveg svakalega fallegt. Ég, Helena og Hjörtur flugum til Egilsstaða því Hjörtur var lasinn og það var ekki alveg það sniðugasta að vera með hann í 10 tíma í bíl. Hansi keyrði einn austur og ferðin gekk mjög vel hjá honum. Fyrir austan fórum við m.a. að skoða Kárahnjúka, Skriðuklaustur, Seyðisfjörð og fleiri firði.
Á 5.degi kvöddum við ömmu og afa og héldum af stað til Akureyrar þar sem við vorum í íbúð í 2 daga. Við fengum líka alveg frábært veður á Akureyri og dúlluðum okkur þar í sundi og á röltinu. Hjörtur afi og Kristín amma hittu okkur og gistu með okkur í íbúðinni eina nótt.
Frá Akureyri keyrðum við alla leið á Strandir, nánar tiltekið í Kaldbaksvík þar sem við eyðum alltaf nokkrum dögum á hverju sumri í gömlu, yndislegu sumarhúsi. Afi og amma voru með okkur þar yfir helgina og svo komu Kjartan, Sif og Daníel Smári á mánudeginum og voru með okkur fram á miðvikudag en þá lögðum við af stað heim um kvöldið. Sólin hélt áfram að gleðja okkur allan tímann í Kaldbaksvík og við vorum dugleg að vera úti við og einnig að keyra um og fara í sund hér og þar :o)
Þessi langa ferð okkar var sko alveg frábær út í gegn og börnin alveg ótrúlega góð alltaf í bílnum, en það verður að segjast að okkur öllum þótti líka voða gott að vera komin heim rétt fyrir verslunarmannahelgina. Við áttum svo góða og rólega daga heima í rúma viku áður en við héldum af stað á ný í ferðalag en ég segi frá því með næstu myndasyrpu.
Kveðja,
Rakel
Jæja...ég hef ákveðið að reyna að halda uppi nokkurskonar dagbók hér á ný eftir ansi langt hlé.
Ég var að setja inn myndaalbúm af fyrri hluta sumarsins (maí/júní). Við brölluðum ansi margt þetta sumarið og byrjuðum á að fara í Kverkina og vorum þar í fellihýsinu frá Geir og Írisi. Fengum frekar leiðinlegt veður yfir okkur en það er alltaf gaman í Kverkinni og hitta alla familíuna á þessum yndislega stað. Svo um miðjan júní fórum við í sumarbústað 10km. fyrir utan Laugarvatn og vorum þar í 5 daga. Það var alveg yndislegt og við fengum góða vini og fjölskyldu í heimsókn. Í þeirri ferð gekk ansi margt á hjá Hirti litla, hann fékk 3 tennur og svo hætti ég með hann á brjósti og hann fór á pela. Þetta voru frekar erfiðar 2-3 nætur en hann stóð sig eins og hetja :o) Það tók líka svolítið á mömmuna að hætta með litla kútinn á brjósti en það gekk yfir og leið okkur báðum mjög vel þegar nýja rútínan með pelann var komin í gang :o)
Það kemur framhald af sumrinu þegar fleiri myndir koma inn..
Kv.Rakel
Hæ hæ..
Ætlaði bara að láta þá vita sem eru að bíða eftir nýjum myndum og eru að segja að ég sé ekki nógu dugleg í þessu að ég er núna búin að sitja heilt kvöld við tölvuna og reyna að setja inn myndir en það er e-r villa á síðunni og ekkert kemst inn :( þannig að ég er ekki alveg ómöguleg í þessu hahaha, þetta vonandi gengur betur fljótlega. Er allavega búin að gefast upp á þessu í kvöld :(
Kv.Rakel
Gleðilega páska öllsömul!
Váá ég er sko búin að fá páskaegg í dag, pabbi braut páskaeggið mitt í bita og gaf mér í skál og svo fékk ég bara að vaða í skálina eins og mig langaði! Það var sko gaman :o)
En nú eru að koma inn nokkrar nýjar myndir í albúmið mitt. Síðast þegar ég skrifaði í dagbókina mína vorum við að fara að fara til Hauks frænda sem býr á Akureyri. Því miður komst ég ekki með í ferðina því ég var með svo mikinn hita, en mamma og pabbi fóru ásamt Geir, Írisi og Loga frænda. Þannig að Akureyraralbúmið mitt er tileinkað Loga frænda að þessu sinni ;o)
Svo koma einhverjar fleiri myndir frá mars og apríl mánuði + auðvitað páskamyndirnar fljótlega eftir páska.
Að öðru leyti er allt gott að frétta frá okkur, öll hress og líður vel. Búin að gúffa í okkur fullt af mat og nammi yfir páskana, fórum til afa og ömmu í Heiðarhjallanum í mat á skírdag, fórum svo til Geirs, Írisar og Loga á föstudaginn langa, og erum að fara til ömmu og afa í Teigaselinu í kvöld á páskadag.
Svo var ég að eignast nýja litla vinkonu en Harpa og Haukur vinir mömmu voru að eignast hana. Til hamingju! Það verður gaman að fá að sjá svona lítið barn, örugglega svolítið skrítið ;o)
Jæja ég segi bara hafið það sem allra best og borðið sem mest :o)
Kiss & knús,
Helena Ósk
Hæ hæ hæ...Nú verður sko endurvakning á síðunni minni :o)
Loksins loksins loksins eru komnar fleiri myndir í albúmið mitt og biðjast mamma og pabbi innilegrar afsökunar á þessum seinagangi í þeim. Þau segja að það sé bara búið að vera alltof mikið að gera!
En að öðru leyti er allt voða gott að frétta af mér. Ég er farin að hlaupa útum allt og svo er ég "röflandi" allan daginn ;o)
Helstu orðin mín eru: mamma, amma, jæja, detta, takk og einhver fleiri. Svo segi ég alveg fullt annað sem mamma og pabbi barasta skilja ekki hehe en ég er nú líka sjálf alveg rosalega dugleg að skilja hvað mamma og pabbi eru að segja og finnst þeim ég voða klár stelpa.
Það eru búin að vera svolítil veikindi hjá mér núna á nýju ári, lungnabólga og eyrnabólga og pensillín alveg lon og don :( en þetta er vonandi búið í bili, allavega er ég voða hress núna.
Svo er ég að fara að heimsækja Hauk frænda alla leið til Akureyrar um næstu helgi og Logi & co. ætla líka að heimsækja hann. Það verður sko svaka stuð og við fáum að fara á snjóþotu því frændi er sko búinn að safna snjó fyrir okkur! :o)
Ég segi ykkur svo frá Akureyrarferðinni minni fljótlega.
Kiss & knús,
Helena Ósk
Smá tilkynning...
...því miður koma engar nýjar myndir fyrir nóvembermánuðinn strax, þar sem mamma og pabbi tóku eiginlega engar myndir :(
það er eitthvað soldið búið að dala en þau ætla nú að taka sig á í desembermánuðinum því jú, það verður nú nóg af myndefni í þeim mánuðinum, jól og afmæli og fullt af boðum :o) ...en það koma nú samt líklega einhverjar myndir á næstu dögum af mér, þegar mamma hefur aðeins meiri tíma.
Kiss kiss,
Helena bjútíbolla
Hææææææ....
Vonandi eruð þið ekki búin að gefast upp á síðunni minni, ég veit að það er ekkert nýtt búið að gerast á henni undanfarið :(
En málið er það að við erum búin að vera tölvulaus á heimilinu núna undanfarið og því hafa mamma og pabbi ekki getað sinnt síðunni fyrir mig eins og áður. En Guðrún frænka var svo elskuleg að lána okkur tölvuna sína þannig að það ætti að fara að bætast úr þessu ástandi.
Í dag er ég 11 mánaða! Bara einn mánuður í fyrsta afmælið mitt. Mamma og pabbi trúa því varla hvað tíminn er búinn að líða hratt síðan ég fæddist, ég verð komin á gelgjuna áður en þau vita af ;o)
En já skemmtilegar fréttir af mér eru þær að ég er farin að labba meðfram öllu og standa alveg hjálparlaus útá gólfi í svolitla stund og svo pommsa ég á bossann minn, mér finnst það rosa gaman :o) En svo gerðist það fimmtudaginn 24.nóvember að ég tók eitt skref óstudd!! Mamma var að leika við mig á gólfinu og ég var að monta mig að standa sjálf og svo barasta tók ég þetta eina skref og mamma var ekkert smá glöð og klappaði og klappaði. Ég hef samt ekki hugmynd um hvernig ég fór að þessu því að ég hef ekki gert þetta aftur síðan þá, en nægur er nú tíminn. Ég held ég gefi mömmu og pabba smá tíma í viðbót með mér á skríðinu, því það á sko eftir að taka á þau að vera hlaupandi á eftir mér útum allt þegar ég verð sjálfbjarga á tveim ;o) hehehe...
En já annars er bara gott að frétta af okkur öllum, höfum nóg að gera og eigum eftir að gera allt fyrir jólin, mamma er nú reyndar farin að huga að jólakortunum því við ætlum að senda alveg endalaust magn af þeim held ég!!
Allaveganna, nú ættuð þið að vera komin með smá update á okkur...læt ekki líða jafn langt á milli næstu dagbókarfærslu!
Kveðja,
Helena Ósk
Hæhæ!!
Við erum löngu komin heim frá Króatíu, eða þann 8.sept sl. en það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að við höfum ekki haft neinn tíma til að sinna síðunni minni.
En núna eru loksins myndirnar úr ferðinni komnar inn og endilega kíkið á þær. Það var alveg rosalega gaman úti og hefðum við alveg verið til í að vera lengur! Mér leið mjög vel í hitanum og fannst voða gaman að geta verið léttklædd og á tásunum allan daginn :o)
En já loksins gerðist það í gær, þann 21.september að ég byrjaði að skríða!!
Ég er með svolítið skondna tækni við þetta, en ég kem mér allavega áfram og er orðin mjög dugleg við að koma mér á þá staði sem mig langar til að fara á, en það eru oftast staðir sem ég á ekki að vera á því þar er dótið mömmu og pabba. Ég stelst stundum svolítið í dótið þeirra og ríf allt niður, það er bara gaman :o)
En jæja vonandi hafið þið gaman af myndunum mínum!
Kveðja,
Helena Ósk
Hæ hæ,
Nú er ég á leiðinni í mína fyrstu útlandaferð. Ég er að fara til Króatíu með mömmu og pabba, við munum líka kíkja til Feneyja og þar ætlar pabbi að syngja fyrir mig og mömmu á Gondóla (Ó SÓLE MÍÓ) hahaha.
Það er margt búið að gerast í ágúst, ég er núna komin með sjö tennur og á tímabili þegar ég var að fá þær allar þá gaf ég mömmu og pabba lítinn svefn en eins og alltaf þá jafna þau sig á því. Þann 15. ágúst þá byrjaði ég hjá dagmömmu því mamma var að byrja í skóla og pabbi er alltaf að vinna. Það var svolítið skrýtið að vera ekki lengur með mömmu allan daginn en ég hitti svo mikið af krökkum og það er svo rosa gaman að mamma og pabbi ætluðu ekki að trúa því hvað mér gekk vel að aðlagast dagmömmulífinu. Ég segi ykkur meira þegar ég kem heim frá Króatíu með fullt af nýjum myndum af mér.
Jæja, ég er farin til Króatíu
Helena Ósk
Hæ hæ...
Jæja nú eru júlí myndirnar komnar inn, svolítið á eftir áætlun samt. Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur fjölskyldunni þennan sl. mánuð. Erum búin að njóta sólarinnar vel og hafa gaman. Það styttist óðum í að Helena byrji hjá dagmömmunni, en hún byrjar í aðlögun 15.ágúst. Það verður svolítið skrítið en samt gaman og gott fyrir alla :o)
Svo er það nýjasta að Helena er búin að fá 3. tönnina sína. Hún er líka byrjuð að sofna sjálf í rúminu sínu á kvöldin, það var tekið smá átak í júlí og gekk það alveg rosalega vel, fyrsta kvöldið frekar erfitt en nú finnst henni bara rosa gott að fá að sofna sjálf með nóg pláss í kringum sig!
Kiss & knús,
Rakel
Hæ hæ..
Rosalega er langt síðan ég hef látið heyra í mér. Það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér undanfarið! Um síðustu helgi fór ég með pabba & mömmu til Hveragerðis. Þar gistum við ásamt Sif & Kjarra, Nonna, Hrafnhildi, Isabellu & Herdísi. Það var alveg rosalega gaman, fórum í sund í Hveralaugina og svo var auðvitað geggjað að hafa allt þetta fólk til að leika við mig :)
Svo var nú svolítið rosalegur dagur hjá mér í gær. Dagurinn byrjaði á því að ég fór með mömmu, Hörpu og Siggu í sund. Það var þvílíkt gaman enda var svo rosalega gott veður. Eftir sundferðina fórum við á Friday´s og mamma og þær voru að fá drykkina á borðið en þá fékk ég bara ískalda vatns/gos gusu yfir mig, því þjónustustúlkan missti bakkann yfir mig alla og á borðið okkar!! Það var alveg rosalegt og ég var ekkert smá hrædd og köld :( En ég náði nú að jafna mig fljótt og var búin að gleyma öllu saman eftir 5 mínútur. En þetta þýddi það að ég þurfti að fara aftur í bað þegar ég kom heim :o)
Svo endaði nú dagurinn á því að við hjóluðum alla leið í Mosfellsbæinn að heimsækja Geir, Írisi & Loga. Það er ekkert smá stuð að vera á hjólinu hjá pabba og ég er ekkert smá flott með bleikan hjólahjálm og allt!!
En jæja nóg í bili frá mér,
góða helgi.
Helena Ósk
Jæja...
Þá er mamma búin að setja inn myndir fyrir júnímánuðinn. Við höfum fengið smá kvart frá nokkrum ónefndum aðilum að við séum ekki nógu dugleg að setja inn myndir ;o) ég skil vel að þið séuð spennt að sjá nýjar myndir af mér og ég skal reyna að ýta aðeins á mömmu hvort hún geti ekki verið aðeins duglegri við þetta hehe.
Í fréttum er það helst að ma & pa eru búin að finna dagmömmu fyrir mig. Ég byrja hjá henni 15.ágúst og heitir hún Villý. Ég er viss um að ég verð voða ánægð hjá henni. Og já, svo varð ég nú bara hálfs árs í fyrradag, hvorki meira né minna! Ma & pa trúa því varla hvað ég er orðin stór stelpa. Svo á mamma 24 ára afmæli á sunnudaginn og býður hún alla velkomna í kvöldkaffi sem vilja. Ég lofa að vera voða góð og án efa verð ég sú brosmildasta á svæðinu :o)
Jæja, vonandi hafið þið gaman af að skoða nýju myndirnar mínar.
Kiss & knús,
Helena
Hæ hæ...
Þá erum við komin úr fyrsta alvöru ferðalaginu mínu. Við fórum nefnilega í Kaldbaksvík sem er fyrir vestan með allri fjölskyldunni hans pabba og vorum í heila viku. Það var ekkert smá gaman og ég náði að njóta mín rosa vel í sveitinni með mömmu og pabba. Ég fékk meira að segja aðra tönn í sveitinni, þannig að nú er ég komin með 2 neðritennur, algjör rúsína!
Svo er ég líka farin að fá smá graut á kvöldin og mér finnst það rosa gaman.
En ég ætlaði bara aðeins að láta heyra í mér...
Kiss & knús,
Helena Ósk
Hæ...
Endilega kíkið á nýju myndirnar mínar.
Annars er allt ágætt að frétta af mér. Er búin að vera pínu slöpp í mallanum mínum en það fer vonandi að lagast.
Laugardaginn síðasta var ég í pössun hjá Loga frænda og svo hjá Guðrúnu frænku. Mér fannst pínu skrítið að vera svona lengi frá mömmu og pabba og lét því aðeins heyra í mér. Ég vona samt að Guðrún frænka vilji passa mig aftur fljótlega :o)
Kiss & knús,
Helena