Helgi (7 ára, 3 og 1/2 mán): Mamma, veistu, ég ætla að vera listmálari þegar ég verð stór og ef ég verð ekkert stærri þá vil ég að verða bakari!!!
Þetta var svona upp-úr-þurru-pæling...
Helgi Daníel, 7 ára og 1 mánaðar gamall:?...Þá ert þú hjá mér eins og barnapína?
Pabbi:?Barnapína??
Helgi Daníel:?NEI, eins og barnapía!!!!?
Helgi var að ræða við pabba sinn um að þeir yrðu saman aftur næsta kvöld...
" Hvað viltu fá í jólagjöf Helgi Daníel?" H.D: "Banana." Mamma: "Banana?" H.D: "Já takk!" Mamma:"Langar þig ekki í eitthvað dót?" H.D: "Nei, bara banana".
Tæplega þriggja ára, þremur dögum fyrir jól 2000. Ekki miklar kröfur gerðar þá!
"Helgi Daníel , nú skulum við hvíla okkur, loka augunum og hugsa um eitthvað fallegt. Hvað finnst þér vera fallegt?" Helgi Daníel:"Stelpur!"
Þetta er reyndar gamalt frá því H.D. var nýorðinn 4 ára og átti að fara að sofa en var eitthvað tregur til þess.
Helgi: Mamma ég vil verða pabbi og eignast börn.
Mamma:Þú eignast örugglega börn þegar þú verður fullorðinn.
Helgi: Nei ég ÞARF að eignast börn og þú átt að verða mamman.
Mamma: Það get ég ekki en ég skal verða amman.
Helgi (eftir mikið þras): Ókei, vertu þá amman en ég VERÐ að eignast börn.....HEYRÐU!!! Ætlaði María ekki að giftast mér? Þá getum við eignast börn! ÞAÐ er sko erfitt!!!
Þessi umræða kom alveg upp úr þurru og án nokkurs undanfara.
Hey, Þórunn! Viltu sjá skósafnið mitt?!!!
Helgi bauð Þórunni nýju vinkonu sinni inn til sín og þá féllu þessu fleygu orð!
Búmm beibí!!! Rosalega er ég flottur!!!!!
Helgi setti á sig ennisband og var að skoða sig í bílspeglinum og fannst mikið til um!!!
Helgi:Heyrðu mamma!!! Ég held að ég megi nú bara ráða á þessu heimili fyrst ég kann þetta!
Helgi var að skera sjálfur ost með ostaskera í fyrst sinn og fannst mikið til um það.
Helgi: Mamma, mamma, ég fékk stækkunargler í skóinn frá jólasveininum! Einmitt það sem mig vantaði svo ég geti orðið fótsporafræðingur!!!
Merkilegt hvað þessir jólasveinar hugsa fram í tímann!
Helgi: Amma, hvað þýðir f-j-á-r-f-e-s-t-i-n-g-a-r-v-e-r-ð-b-r-é-f-a-s-j-ó-ð-u-r?
Amma: Sko...
Helga tókst að lesa þetta erfiða orð og vildi fá skýringu á því!!!!
Mamma:Helgi, hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór?
Helgi: Ég ætla að verða bókasafnsfræðingur (bóksali), rokkari og fótsporafræðingur. Þá get ég farið út í skóg og séð fótspor eftir ref og tröllskessu sem er að elta hann. Hún er með sex tær og sex klær.
Þetta lá nú í augum uppi!
Maður: Jæja kallinn, ert þú í Háskólanum?
Helgi, stórhneykslaður: Ertu vitlaus maður, ég er bara lítill fimm ára krakki!!
Helgi hitti miðaldra mann á kaffistofunni í Odda í Háskólanum sem spurði hann þessarar spurningar.