Jæja....sælt veri fólkið! Ég er búinn að bardúsa ýmislegt í sumar en þó mest heimavið fram eftir sumri. Ég skrapp svo í sumarbúðir með Jörundi frænda um miðjan júlí í heila viku sem var alveg hrikalega gaman og mikið ævintýri fyrir mig, ég hef aldrei farið í sumarbúðir áður og aldrei svona lengi að heiman yfirleitt frá foreldrunum. Ég held við höfum nú öll haft gott af því hehe. Í Vatnaskógi var full dagskrá allan tímann og við höfðum úr ýmsu að velja. Ég var duglegastur að smíða, fór líka út á bát, tók þátt í fjársjóðsleit og fann fjársjóðinn og ýmislegt meira. Svo kom ég aftur heim en bara í viku því um verslunarmannahelgina fór ég með Hörpu mömmu til Eyja á þjóðhátíð sem ég hef heldur aldrei gert áður. Við fórum reyndar með fleira fólki, Lydíu vinkonu mömmu og fjölskyldu hennar og fleiri vinkonum. Við vorum í heila viku í Eyjum og ég fékk að spranga, skoðaði helling, fór í sund og svo var náttúrulega Herjólfsdalur og nágrenni yfir þjóðhátíðina. Flottust var brennan og flugeldarnir, ég var svo æstur yfir henni að ég hringdi í mömmu heim (hún var nýsofnuð) til að lýsa þessu öllu fyrir henni. Þær Margrét ákváðu að vera heima og mála yfir verslunarmannahelgina svo þær fengu bara lýsingar á öllu saman í gegnum símann minn! En þetta var mikið stuð og gaman að fara með Herjólfi báðar leiðir. Ég var eldhress í siglingunni og fannst þetta mikið ævintýri. Núna eru bara rólegheit heima við, við erum með fjórfætling í pössun í 2 vikur svo við ætlum bara að hafa það náðugt fram að skóla. Kv. Helgi Daníel
Halló kæru vinir og ættingjar. Ég vil nú byrja á að þakka fyrir mig á afmælisdaginn, ég fékk margar kveðjur og pakka og var hæstánægður með þetta allt saman. Þetta er nú talsvert stór áfangi að verða 10 ára, mamma man ennþá eftir sínu tíu ára afmæli, mjög mikilvægt sko.
Þessa dagana er mjög mikið að gera hjá mér. Ég er á fimleikaæfingum fjórum sinnum í viku og þarf svo líka að læra heima og svoleiðis. En ég gef mér nú samt tíma til að sprella við litlu systur eða vísa henni út úr herberginu mínu, allt eftir aðstæðum. Hún er mikill tætari og finnst allt kom sér við og þar kemur stundum dálítið niður á dótinu mínu. En þetta er fórnarkostnaðurinn við að eiga svona óvita fyrir systur og oftast erum við góðir vinir. Að öðru leyti er allt gott í fréttum frá okkur. Við féllum eins og flugur í ælupest fyrir 2 vikum síðan, mamma, ég og Margrét, hvort á eftir öðru. Þegar við vorum búin að jafna okkur tók mamma Harpa við. Þetta var nú auma ástandið og ég held ég hafi sjaldan verið eins veikur, hélt engu niðri og óskaði mér í skólann aldrei þessu vant. Ég sagði líka við mömmu að ég myndi ekki óska mér veikinda til að sleppa við skólann á næstunni, svo svakalegt var þetta. Margrét tók þessa sólarhringspest yfir heila viku, ekki í fyrsta sinn en ég jafnaði mig á 2-3 dögum. En nú er þetta búið, ég verð nefnilega mjög sjaldan veikur alveg síðan eyrnabólgutímabilinu lauk þegar ég var lítill. Jæja, nóg í bili, Helgi Daníel 10 ára (bara að minna á það, hehe!!!)
Halló elsku vinir og ættingjar. Héðan er allt gott að frétta. Ég er kominn í fjórða bekk og finnst það bara ágætt. Ég stend mig afburðavel í lestri, ég held ég sé bestur í bekknum. Stærðfræðin sem hefur stundum vafist aðeins fyrir mér gengur líka miklu betur en áður. Ég er þrisvar í viku í fimleikum núna. Mér finnst það yfirleitt gaman, sumt er skemmtilegra en annað en það er örugglega svoleiðis í öllum íþróttum. Ég hef stækkað talsvert, mamma var að mæla mig um daginn og ég er orðinn tæplega 137 cm langur. Fæturnir virðast líka hafa stækkað talsvert því mamma keypti á mig fína kuldaskó síðasta vetur og vel við vöxt en þeir virðast eitthvað vera farnir að þrengjast strax. Annars er allt gott í fréttum. Ég er mikill lestrarhestur, komst í gömlu bækurnar um Bert sem Ingólfur á síðan hann var á mínum aldri og finnst þær hrikalega skemmtilegar. Við pabbi erum líka mjög duglegir að lesa saman alls konar bækur. Svo er ég mikill kvikmynda- og tölvuleikjakall. Margrét litla systir hefur reyndar mikinn áhuga á leikjatölvunni minni líka svo stundum eru smá slagsmál um fjarstýringuna. Þá þarf ég að fara með hana fram en hún kemur að minnsta kosti fimmtán sinnum inn aftur og vill fá að hjálpa til. Hún er talsverð tætubuska og hefur rifið nokkrar syrpubækur fyrir mér. En ég er nú samt ánægður með hana og hún með mig þótt hún geti verið erfið stundum. Jæja nóg í bili, Helgi Daníel