Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Helgi Daníel
Helgi Daníel

Helgi Daníel haust 2010

0 | 0 | 26.12.2010 23:57:05 #

Helgi vor 2010

0 | 0 | 27.3.2010 23:40:51 #
Hæ sæti, vildi bara kvitta var að skoða myndirnar ykkar og vistaði nokkrar í símann minn svo ég hafi ykkur nær mér. Gangi þér vel í skólanum, knúsaðu alla fjölskylduna frá mér og ömmu Möggu, knú frá Tokyo, Nana :)
Nana "frænka" | 0 | 1.2.2010 11:27:02 #

Helgi D. haust 2009

0 | 0 | 1.10.2009 14:55:00 #

H.D.vor og sumar 2009

0 | 0 | 7.5.2009 00:12:00 #
  • Takk fyrir afmæliskveðjurnar allir!!
    Helgi Daníel
    |
    29.1.2009 15:01:58
  • Gleymdi afmælsdeginum þínum,og þó ekki þvþi Ottó Marwin og Róbert Marwin eignuðust hálfsystur -Föður-21 jan.og þegar ég frétti það var ég að hugsa og hugsa "Bíddu við,hver á afmæli í dag"það var einhver mikilvægur"Svo komst ég ekki í tölvuna og hún er orðin svo seinvirk.Passar ekki fyrir mig,því ég er ofvirk,-EN TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÞITT stóri peyi. Bestu kveðjur úr ríki Vatnajökuls þar sem sólin alltaf skín. Hóffý.
    Hóffý föðursystir
    |
    23.1.2009 11:21:36
  • Til hamingju með gærdaginn Helgi Daníel!!! kv. Elka og Vera
    Kriatbjörg og co
    |
    22.1.2009 21:50:19
  • Til hamingju með afmælið :o)
    Ólöf Sigríður Indriðadóttir
    |
    21.1.2009 10:53:50

H.D.-Vetur 2008-9

0 | 0 | 4.1.2009 23:11:13 #
Gleðilegt nýtt ár elskurnar og takk fyrir gamla. Kærleikskveðja og knús, Líney.
Líney frænka | 0 | 1.1.2009 11:36:00 #
  • Já gaman að heyra í þér líka =) en ég er bara ný búin að sjá þetta ég vissi ekkert að ég hafi kynnst þér á spítalanum =)
    Anna Soffía
    |
    23.11.2008 17:19:59
  • já við vorum saman á stofu =)
    Anna Soffía
    |
    22.11.2008 23:13:09
  • Hæhæ þetta er Anna Soffía. Þegar við fæddumst ég á mynd af mér og þér saman sem mamma þín gaf mér og mömmu :) ég fæddist 22 jan 1998
    Anna Soffía
    |
    14.11.2008 22:24:12

H.D. haust 2008

0 | 0 | 10.11.2008 22:11:31 #
Hæ hæ stóri frændi. Takk kærlega fyrir afmælisgjöfina :o) ma og pa biðja að heilsa. Vonandi gengur þér vel í skólanum og fimleikunum
Jóhann Benóný og Birkir Örn | 0 | 9.10.2008 21:13:00 #
Góða kvöldið gott fólk....það var víst kominn tími á færslu skilst mér svo við bregðumst náttúrulega við eins og skátarnir; ég er kominn á fullt í skólanum, byrjaður í 5. bekk og nóg að gera. Fyrir utan þetta venjulega, fulla stundatöflu í skólanum með 2 leikfimitímum og einum sundtíma á viku fyrir utan önnur fög + ensku sem er nýtt hjá mér, þá æfi ég fimleikanna núna 3svar í viku. Ég er kominn með nýjan þjálfara og líst bara vel á. Mamma laumaðist til að horfa á æfingu í vikunni þegar ég sá ekki til og fannst ég hafa tekið miklum framförum, gat farið flikk eða hvað það heitir, aftur á bak með örlitlum stuðningi. Ég tók þátt í innanhúsmóti í vor og var í 2. sæti af strákunum, mjög ánægður með það náttúrulega. Alltaf gaman þegar vel gengur og maður sér árangur af erfiðinu.....annars er ég bara hress og kátur þessa dagana. Ég er líka oft að hjálpa til með Margréti, henni finnst mikið sport þegar ég les fyrir hana, hún hefur svipuð áhugamál og ég á hennar aldri, hefur gaman af bókum en því miður rifna þær stundum "alveg óvart" hjá henni svo ég reyni að halda henni frá mínum bókum. Gömlu kubbarnir mínir eru líka vinsælir hjá henni og hún er líka mikill íþróttaálfur eins og ég var. Ætli þetta endi ekki með fimleikaæfingum líka. Helstu áhugamál hjá mér þessa dagana eru kvikmyndir, helst þessar gömlu í bland við nýjar, ég horfi jöfnum höndum á Starwars og gömlu Indiana Jones myndirnar og er kominn með dálítinn fullorðins-smekk á bíómyndum.Jæja óver and át. Kv. Helgi Daníel
0 | 19.9.2008 21:44:14 #

Bara að athuga hvort ritarinn er kominn úr fríi. Hnipp! Hnipp! Koss og knús til stóra skólastráksins míns. Magga amma
magga amma | 0 | 13.9.2008 12:28:57 #

Jæja....sælt veri fólkið! Ég er búinn að bardúsa ýmislegt í sumar en þó mest heimavið fram eftir sumri. Ég skrapp svo í sumarbúðir með Jörundi frænda um miðjan júlí í heila viku sem var alveg hrikalega gaman og mikið ævintýri fyrir mig, ég hef aldrei farið í sumarbúðir áður og aldrei svona lengi að heiman yfirleitt frá foreldrunum. Ég held við höfum nú öll haft gott af því hehe. Í Vatnaskógi var full dagskrá allan tímann og við höfðum úr ýmsu að velja. Ég var duglegastur að smíða, fór líka út á bát, tók þátt í fjársjóðsleit og fann fjársjóðinn og ýmislegt meira. Svo kom ég aftur heim en bara í viku því um verslunarmannahelgina fór ég með Hörpu mömmu til Eyja á þjóðhátíð sem ég hef heldur aldrei gert áður. Við fórum reyndar með fleira fólki, Lydíu vinkonu mömmu og fjölskyldu hennar og fleiri vinkonum. Við vorum í heila viku í Eyjum og ég fékk að spranga, skoðaði helling, fór í sund og svo var náttúrulega Herjólfsdalur og nágrenni yfir þjóðhátíðina. Flottust var brennan og flugeldarnir, ég var svo æstur yfir henni að ég hringdi í mömmu heim (hún var nýsofnuð) til að lýsa þessu öllu fyrir henni. Þær Margrét ákváðu að vera heima og mála yfir verslunarmannahelgina svo þær fengu bara lýsingar á öllu saman í gegnum símann minn! En þetta var mikið stuð og gaman að fara með Herjólfi báðar leiðir. Ég var eldhress í siglingunni og fannst þetta mikið ævintýri. Núna eru bara rólegheit heima við, við erum með fjórfætling í pössun í 2 vikur svo við ætlum bara að hafa það náðugt fram að skóla. Kv. Helgi Daníel

0 | 11.8.2008 23:33:28 #

H.D. ágúst 2008

0 | 0 | 11.8.2008 22:24:04 #