Guðný Sigurrós er alltaf á hvolfi. Þegar hún var spurð að því í kvöldmatartímanumm einn daginn hvað hún ætlaði að gera í leikskólanum daginn eftir kom smá hik á hana og svo svaraði hún ákveðin í fasi ,,STANDA Á HAUS"
Mai 2007
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Nú þegar aðeins 3 vikur eru í að litli frændi komi í heiminn þá erum við aðeins að fara yfir hvaða hlutverk við fáum. Mamma verður jú amma og pabbi verður afi, stóra systir verður mamma og Steini verður pabbi og Guðný Sigurrós hvað verður þú þá eiginlega??? Nú stóra systir!!! og það kemur ekkert annað til greina ;)
¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨¨
Við höfum farið með bænina vertu nú yfir og allt um kring á hveju kvöldi í rúmlega tvö ár. Svo eitt kvöldið í síðustu viku var eins og að Guðný Sigurrós færi að hlusta á orðin í bæninni. Í bæninn segir: vertu nú yfir og allt um kring með eylífri BLESSUN þinni og þá settist daman upp og tók í höndina á mömmu sinni og sagði blessuð og sæl ;)