| Velkominn á heimasíðuna okkar:) Það er komið nýtt lykilorð ekki vera feimin við að senda okkur póst |
| Við heitum Arent Tristan Kató Lúkas og Erika Halldóra |
|
|
Um mig:
Ég fæddist á sjúkrahúsinu á Ísafirði 9. júli árið 2000. Ég var 4030 grömm og 52 cm s.s. 16 merkur Ég er fyrsta barn foreldra minna en 13 maí 2006 eignaðist ég bróðir sem vó 3.685 gr og er 50 cm langur. Hann heitir Kató Lúkas.svo eignaðist ég systir 28 febrúar 2011 hún vó 3650 gr og var 50 cm löng. Hún heitir Erika Halldóra. Foreldrar okkar heita Marta Pálsdóttir og Guðmundur Matthías Guðmannsson.
|
|
|
Annað:
KÆRU FORELDRAR Ekki telja eftir þessa fáu mánuði sem ég þarfnast óskiptrar athygli ykkar. Ég hef meira að gera en nokkru sinni við að vaxa og búa mig undir framtíðina. En ég sýni ykkur þakklæti mitt. Á hverjum degi færi ég ykkur eitthvað nýtt, einhverja dásemd, einhver merki um framför. Ég er smábarn svo skamman tíma. Nýtið hann eins vel og ég. Ég stækka og hverf á braut áður en þið vitið af. FRÁ FORELDRUM MÍNUM TIL MÍN Áður en þú varðst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins. Takk fyrir að vera til. Fjölskylda mömmu: Amma Halldóra og afi Palli eiga heima á Ísafirði. Mamma á 3 systkini. Elst er Hafdís Vera (78) hún býr í Reykjavík hún á Sverri Úlf (97) og Dalíu Mist (08). Kalli (85) er yngri en mamma, hann býr á ísafirði. Kristjana (88) er yngst og á heima hjá afa og ömmu. Fjölskylda Pabba: Amma Ragnheiður og Afi Guðmann búa á Ísafirði, þau eiga marga hesta og ég fer oft í reiðtúra með þeim. Pabbi á 2 systkini. Elst er Guðrún og býr hún í Rekjavík, hún á Zakarías og Diljá, það er gaman að leika við þau. Yngstur er Eðvarð bróðir Pabba hann býr líka í Reykjavík. Ég á einnig þrjár langömmur og einn langafa á lífi, svo ég er lánsamur og ríkur strákur að eiga svona marga að. Krabbinn: Barn í krabbamerkinu er feimið og viðkvæmt að eðlisfari og vill frekar leika inni í sínu herbergi heldur en að fara út og takast á við hina ógnvægilegu veröld. Þessi börn eru einnig tilfinningarnæm og bresta auðveldlega í grát ef hlutirnir ganga ekki eins og þeir vilja eða eitthvað gengur á í fjölskyldunni. Þessi börn vilja ró og næði í kringum sig. Þar sem barn í krabbanum heldur sig nálægt heimili sínu má búast við það hangi svolítið í pilsfaldi mömmu sinnar fram eftir aldri. Það getur þó verið kostur þar sem krabbinn elskar að hjálpa til. Móðureðli er ríkt í krabbabörnum og þau hugsa vel um yngri systkini sín ef þau eiga yngri systkini. Þetta barn er fætt barnapía og er vanalega með öll börnin í hverfinu í eftirdragi og hefur ofan af þeim í alskonar leikjum. Þetta barn býr yfir frábæru minni og því er nám og og próf leikur einn. Krabbinn getur stundum verið erfiður í skapinu og þá best að leyfa honum að vera í friði. Stundum vorkennir hann sér rosalega og verður jafnvel stundum latt en það varir yfirleitt stutt. Oftast er er rosalega gaman í kringum krabbann. Barn í krabbamerkinu er yfirleitt heimakært og mikið fyrir fjölskyldulífið og er sá einstaklingur í fjölskyldunni sem finnst skemmtilegast í fjölskylduboðum og ættarmótum. |
| Þú ert gestur nr. 11661 |