Velkomin á heimasíðuna okkar :)
Við erum Magnea Lind, Bjarki Freyr og litla dúlla


Við erum systkinin Magnea Lind, Bjarki Freyr og litla dúlla. Foreldrar okkar eru Kolbrún Einarsdóttir og
Páll Rúnar Gíslason og búum við á Akureyri.







Magnea Lind fæddist 21. júní 2002 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Mamma var sett af stað snemma á föstudagsmorgni og stelpan kom í heiminn kl 21:06 um kvöldið.
Hún var 3645 gr (13 1/2 mörk)þegar hún fæddist og 53 cm.
Hún var með nokkuð dökk skollitað hár en það hefur nú orðið nokkuð ljósara með aldrinum.
Magnea Lind er í Brekkuskóla á Akureyri og gengur alveg frábærlega.








Bjarki Freyr fæddist 1. nóvember 2007 eftir að mamma hafði gengið 10 langa daga fram yfir.
Hún fór að finna verki á miðvikudagsmorgni og strákurinn fæddist kl. 10:05 á fimmtudagsmorgni.
Hann var 4195 gr (um 16 1/2 mörk) og 54 cm.
Eins og Magnea hafði hann dökk skollitað hár sem er þó aðeins farið að lýsast.
Bjarki er hjá ömmu Hrafnhildi á meðan mamma og pabbi eru í skólanum og líkar honum það bara vel.







Yngsta prinsessan fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 10. nóvember 2009. Reynt var að gangsetja mömmu að kvöldi sunnudags og gekk allt voðalega hægt og fæddist stelpan kl. 15:02 á þriðjudegi.
Hún var 3735 gr (15 merkur) og 53 cm.
Hún fæddist með skollitað hár og mun minna af því en systkini hennar ;)
Litla daman mun fá nafn þann 12. desember.






Mamma og Pabbi:

Þið verðið stundum vansæl,
víst er ég ósköp lítill.
Set merki um mig út um allt,
ykkur þreytir vaskur trítill.

En einn dag verð ég eldri,
já einn dag er ég stór.
Því tíminn líður skelfing hratt,
þið undrist hvernig fór.

Hér minnismerki fáið,
þá munið þið vel og skiljið,
hve litla hendur hafði ég
þau ár sem ég var smár





Endilega munið að skrifa í gestabókina okkar :)

Þú ert gestur nr. 16511