Við erum fallegu systurnar Linda Rós og Anna Lind Pétursdætur (",)


Um mig:
Linda Rós prinsessa fæddist 26. júní 2005 kl. 04:04. Hún var nú ekkert sérstaklega stór en samt alveg passleg, 3255 grömm (13 merkur) og 48 cm.
Anna Lind prinsessa fæddist 10. febrúar 2010 kl. 04:02. Hún var aðeins stærri en stóra systir sín eða 3710 grömm (15 merkur) og 53 cm.
Mamma okkar heitir Klara Jenný (86) og pabbi okkar Pétur (82), þeim fannst við fallegustu prinsessur í heimi þegar við fæddumst og segja að við verðum bara fallegri og fallegri :)













Púzzla handa ykkur (",)








Lilypie 4th Birthday Ticker


~ ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA ~

Áður en ég varð mamma borðaði ég matinn á meðan hann var heitur, gekk í hreinum fötum og gat spjallað í rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég farið seint í háttinn, sofið út um helgar, greitt mér daglega og gengið um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég því aldrei fyrir mér hvort pottaplönturnar á heimilinu væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég skýrt, hafði fullkomið vald yfir líkama mínum og tilfinningum og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei haldið grátandi barni föstu til þess að læknir gæti sprautað það eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei brostið í grát við að horfa í tárvot augu og þekkti ekki þá hamingjuflóðbylgju sem getur sprottð af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég aldrei langt fram á nótt og horfði á barn sofa eða hélt á sofandi barni vegna þess að ég tímdi ekki að leggja það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki hvað ein lítil vera getur haft mikil áhrif á líf manns og hversu óendanlega sárt það er að geta ekki kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki að ég gæti elskað svona heitt og hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég ekki þetta einstaka samband móður við barn sitt og gleðina sem fylgir því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég ekki tíu sinnum á nóttu til þess að aðgæta hvort allt væri ekki örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum, sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir því að eiga barn





Stjörnumerkið mitt



Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.
Þú ert gestur nr. 68908