Við erum systurnar Þórunn og Íris



Ég kom í heiminn laugardaginn 28.maí 2005 kl 03:53 á Landspítalanum, ég var 3005 gr og 49 cm.
Mömmu og pabba finnst ég vera svo fullkomin og geta þau ekki haft augun af mér og kalla mig draumadísina sína.
Ég er fyrsta barn foreldra minna og búum við öll saman í Grafarvoginum.

Íris litla systir fæddist á Hreiðrinu föstudaginn 31.júlí 2009 kl 04:35, hún mældist 3460 gr og 51 cm.
Ég er rosalega stolt af henni og er besta stóra systir !!
Mamma og pabbi er svo óendanlega rík að eiga okkur systurnar :)

Mamma okkar heitir Magnea Sigríður ('81) og pabbi okkar heitir Svanberg Þór ('75)

Við erum með albúmið og vefdagbókina læst en endilega sendið okkur póst ef ykkur langar að fá leyniorðið.





Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.






Þórunn

Nafn þetta er samsett af forliðnum "Þór"
í merkingunni þrumuguðinn Þór
úr norrænni goðafræði,
og viðliðnum "unn"
í merkingunni að unna.



Þú stormaðir inn í líf okkar eins og fellibylur.
Þú umbyltir öllum okkar áformum og áætlunum.
Þú grenjaðir í gegnum uppáhalds kvikmyndirnar okkar.
Þú gubbar yfir allt og alla.
Þú gerir lífið dásamlegt!!




TVÍBURARNIR


21. maí - 21. júní

Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreyti




Alexander Tristan og Lúkas Már frændur mínir

Embla Ingibjörg og Iðunn Þórey

Emil Örn Jóhannesson

Freyja og Snorri AgnesarogGuðnabörn

Hrafntinna og Rökkvi

Patrekur Leó og Viktoría Rún

Stefán Ingvar og Fjalar Örn frændur mínir

Sunna Dís Hallgrímsdóttir

Viðar Svanur Jónasson

Ýmir Kári Jóhannesson







Endilega skrifið í gestabókina


Þú ert gestur nr. 29824