Hæ hæ, ég heiti Tómas Berg!




Mamma og pabbi eru ekkert smá ánægð með mig!!
Ég kom í heiminn 26 júní, á sunnudegi sko, klukkan 19:27 og var 4400 grömm eða næstum 18 merkur og 54 cm. Enginn smá dreki!!!! Ég er svo með soldið hár, dökkt og augun í mér eru dökk líka, kannski verð ég brúneygður eins og pabbi, hann verður ekkert smá ánægður með það!!!!

Reyndar var ég eitthvað ruglaður þegar ég átti að koma í heiminn því ég var ekkert að fylgjast með og snéri höfðinu í kolöfuga átt og þess vegna ,ha, var reynt að ná mér út með svona sogklukku og þess vegna var ég með í smá tíma svona keiluhöfuð langt útí loftið, alveg dojjjííí. En það lagaðist alveg. En ég komst HELDUR EKKI þannig út og þá þurfti mamma að fara í keisaraskurð og ég fór út um MAGANN Á HENNI, ekkert SMÁ ruglaður!!!!! En þetta reddaðist allt og nú allt í góðu lagi.

Mamma mín heitir Dagný og pabbi minn heitir Þórður, eða Doddi eins og hann er oftast kallaður.







Nafnið mitt!
Ég heiti Tómas Berg eftir afa Tómasi á Laugarvatni og ömmu Sigurbjörgu á Skaganum. Svo skemmdi það nú ekki fyrir hvað það er mikið af Björgum í kringum mig, ég á nefninlega líka tvær langömmur sem heita Ingibjörg, eina á skaganum og aðra á Selfossi. Langalangamma mín heitir líka Sigurbjörg og svo heitir Heiða frænka, Heiða Björg. Ég á líka góðan vin sem heitir Benjamín Berg.

Tómas: Nafn þetta er fengið úr biblíunni, frá Tómasi sem var einn af lærisveinum Jesú. Þaðan kom nafnið úr grísku þar sem það merkir tvíburi.

Berg: Nafn þetta merkir bjargvættur, hjálp, frelsun. Skylt sögninni að bjarga.

nf : Tómas Berg
þf : Tómas Berg
þgf: Tómasi Berg
ef : Tómasar Bergs



baby



Stjörnumerkið mitt:

Krabbinn
22. júní - 22. júlí

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.



Endilega skrifaðu í gestabókina mína ;0)