"hvenær ætla þeir að halda áfram að grafa, annars læri ég ekkert af þeim"
Tómas ætlar að verða fornleifafræðingur og hefur lengi langað. Eitt kvöldið vorum við að horfa á breskan þátt um fornleifafræðinga, sem m.a. voru að grafa upp fornleifar. Eitthvað leiddist honum það að þeir væru ekki endalaust að grafa, hver væri þá tilgangurinn fyrir hann að horfa á þennan þátt! Júlí 2010
"Ég ætla að verða sundkennari, smiður, geimVERA og leikari (sem leikur Gosa)."
Tómasi hefur allt langað mikið að hitta karlinn í tunglinu, svo á heimleið eitt kvöldið sagði hann "mamma, mig langar svo til tunglsins núna" hehe... eftir nokkuð miklar útskýringar, ákvað Tómas að hann vildi fara til tunglsins þegar hann yrði stór og gæti þá orðið Geimfari. Orðið virðist samt hafa ruglast aðeins í kollinum á honum og eftir það var það geimVERA... Jan 2009
"Mamma, SVONA (benti í spegil) eru sko töffarar"
Sagði þetta þegar hann var að skoða nýjustu klippinguna sem mamma gaf honum. Jan 2009
Eftir að hafa signað sig, spurnið mamma hans hvort hann vildi ekki biðja Guð um eitthvað eða biðja fyrir einhverju..
"Góði Guð, mmm" sagði hann hugsi fyrst en söng svo: "Skagamenn, Skagamenn skoruðu mörkin..."
Tómas Berg að biðja bænirnar...greinilega ekki sáttur við stöðu liðsins í Landsbankadeildinni...
Júní 2008
"Hvað eru fuglarnir að gera amma" amma svarar: þeir eru að tína til gras og strá í hreiðrið sitt "já, ég ætla að hjálpa þeim" amma: en þú kemst ekki svona hátt upp í tréð... "Bíddu, ég ætla bara að fara heim og sækja spidermanbúninginn minn" ;0)
Úti í garði á Laugarvatni að skoða hreiður með ömmu Dísu. Sumarið 2008
"Gekk ég yfir sjó og land... Ég á heima á KNÚSLANDI, KNÚSLANDI, KNÚSLANDI..."
Jól 2007, farinn að semja sjálfur, og knúsaði að sjálfsögðu alla sem voru nálægt.
"Adam átti syni sjö..... Hann sá þig, hann sá þig...."
Jól 2007, Jólalagatextarnir alveg á tæru =)
"Nei mamma ekki setja gleraugun, þá sé ég ekki stelpurnar"
Nóv 2007 í sundi, mamman ætlaði að setja á hann sundgleraugun.
"Mario Óli"
Rétt eftir að Elio Mar var skírður og hann spurður hvað litli frændi heitir, þá svaraði Tómas ákveðið.
"Þarna er karlinn í tunglinu, ég ætla að ná í hann..."
Hjálmsstaðamót 2007, gekk um allt með risa trjágrein otaði að tunglinu til að "ná í karlinn" Bað svo alla að lyfta sér svo hann næði honum betur ;0)
"Vá mamma, beljan er með marga tilla"
Vor 2007 í fjósinu hjá palla, greinilega ekki alveg búinn að fatta spenana...