Erum flutt hingað: http://baldo.smugmug.com


**Lykilorðið er millinafn pabba míns.**



Ég er fædd 31. mars 2005 í Reykjavík.
Ég var 2655g (ca. 10.5 merkur) og 46 cm þegar ég fæddist.
Ég er með blá augu og skollitað hár með smá rauðum blæ.
Mamma mín og pabbi heita Silla og Daði. Ég er alveg rosalega sæt og góð stelpa og ofsa skemmtileg og fyndin. Ég er algjör trúður og er alltaf sýna öllum hvað ég er sniðug og eflist við hvert bros og hlátur og geri þá ennþá meira og sýni allar kúnstir sem ég kann! Ég er alltaf að verða duglegri að borða og uppáhaldsmaturinn minn er sko föstudags pizzan hennar mömmu, mmmm.... Leikskólinn minn heitir Lindarborg og deildin mín skeljadeild. Mér finnst alveg rosalega gaman í leikskólanum og fer með bros á vör á hverjum degi.





Nafnið Lilja er komið af blóminu lilja og Bríet er komið frá Norðurlöndum og er víxlmynd við nöfn eins og Brigit, - Brigitta og tengist því nafninu Birgitta sem merkir hin háa.

Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér - það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.






Þú ert gestur nr. 25628