| Nú er komið nýtt aðgangsorð á síðuna. Ef þú vilt fá aðgang, prófaðu þá að senda tölvupóst á okkur og sjáum til hvað gerist ;o) |
| Velkomin(n) á heimasíðuna mína sem við höfum gert til að ættingar og vinir geti fylgst með mér. Ég heiti Anna Bíbí (Fu Qingman) og kem frá Yizhou í Guangxi héraði í Kína. Pabbi og mamma komu og sóttu mig í maí 2005. Ég er kát og brosmild lítil stelpa og mér líður vel Íslandi. |
|
Um mig:
Ég er fædd 29. maí 2004 en samkvæmt kínversku tímatali var það á ári apans. Þegar ég fæddist mældist ég 46 cm og 2800 gr. Ég er með svart hár og svarbrún augu. Pabbi minn heitir Axel Wium Magnússon og mamma heitir Sigurbjörg Kristín Jónsdóttir. Ég á líka sæta kisu sem heitir Snuðra.
Ég byrjaði á leikskólanum Funaborg í ágúst 2006 og þar líkaði mér sko vel. Nú er ég hætt þar og er byrjuð í Foldaskóla. Ég er meira að segja komin í annan bekk en bekkurinn minn heitir 2 HÓ og þar finnst mér sko gaman. Ég er mikil félagsvera og finnst rosalega gaman að hitta krakkana. Ég á marga góða vini og er líka mjög dugleg að leika mér, hvort heldur ein eða með öðrum. Mér finnst alveg ógurlega gaman að tala og þarf að hafa orð á öllu, er sem sagt mjög ræðin og læt mig öll málefni varða. Ég er fremur hraust og mjög dugleg, eiginlega algjör orkubolti. Ég er mjög kát og glöð stelpa en ég er líka mjög ákveðin. Mér finnst gaman að hitta fólk en mér líkar mjög illa ef einhver er hávær eða með læti. Ég vil stjórna því sjálf við hverja ég spjalla og ef mér mislíkar við einhvern þá verður viðkomandi bara að taka því. Það gerist sem betur fer ekki oft því mér lyndir við flesta og get leikið við flesta. Eitt af því skemmtilegasta sem ég veit að vera úti og leika mér en líka að spjalla og hlusta á tónlist, syngja með og dansa. Tvo vetur stundaði ég nám við Ballettskóla Eddu Scheving og einn vetur var ég í Yngri barnakór Grafarvogskirkju og líkaði mér það vel. Ég er líka búin að prófa að fara á leiklistarnámskeið sem mér fannst sko æði og í vetur er ég að æfa fótbolta hjá Fjölni og það líkar mér sko vel. |
|
|
|
Annað:
LJÓS LÍFSINS
Engill í huga og engill í hjarta, megi þér hlotnast framtíðin bjarta. Vertu þinn vinur en velferð þína, velur þú sjálfur fyrir framtíð þína. Megi ljós lífsins, lýsa þér vegi, leiða þig áfram á nóttu og degi. Trúðu og treystu á hug þinn og hjarta, með tímanum hlotnast þér framtíðin bjarta. Þann 2. maí 2005 lögðu foreldrar mínir af stað í ævintýraferð til Kína ásamt átta öðrum hjónum til að sækja dætur sínar. Viku síðar, 9. maí, rann upp dagur mikillar gleði og tilfinninga þegar við hittumst í fyrsta skipti. Við komum heim til Íslands 18. maí og tóku ættingjar og vinir á móti okkur í Leifsstöð. Nú er ég búin að vera heima í rúm fjögur ár og er sæl og ánægð með það. Allt hefur gengið eins og best yrði á kosið og ég er búin að kynnast foreldrum mínum og ættingjum mínum vel. Pabbi og mamma eru voðalega ánægð með mig og finnst eins og ég hafi alltaf verið hjá þeim. Þau segjast ekki geta hafa eignast yndislegra barn - og það er örugglega satt. Ef þú kíkir á síðuna mína, endilega mundu eftir að skrifa í gestabókina. Barnið mitt Ég horfi í undrun á heiminn og þig, á hönd þína og fagra kinn. Þú komst til mín, barn mitt, á kyrrlátri stund og ég kyssti þig, vinur minn. Og andlit þitt var eins og viðkvæmt blóm sem vex upp í himininn. Það var eins og Guð hefði vitjað mín. Ég veit ekki hvað það er. En ekkert í heiminum öllum er til sem ann ég meira en þér. Þig aldrei ég undir brjóstum bar en ég ber þig í hjarta mér. (höf. ók) Barnið Ég veit um lind, sem ljóðar svo ljúft að raunir sofna, um lyf, sem læknar sárin og lætur sviðann dofna. Um lítið blóm, sem brosir svo blítt, að allir gleðjast. Um rödd, sem vekur vonir, þá vinir daprir kveðjast. Ég þekki gleði góða, sem græðir allt með varma og sælu, er svíkur aldrei, en sefar alla hvarma. Ég veit um stjörnu, er vakir, þó vetrarmyrkur ríki, - um ást, sem er á verði, þó ástir heimsins svíki. Það allt, sem ég hef talið, er eitt og sama: barnið, sú guðsmynd björt er gæfan og græðir jafnvel hjarnið. Á meðan lífið lifir það ljós mun aldrei deyja. Og mannsins björg og blessun er barnsins stjörnu eygja. (Höf. Hulda) Kínverskt spakmæli: "Ósýnilegur rauður þráður tengir saman þau sem ætlað er að hittast, burtséð frá stað og stund eða kringumstæðum. Togna kann á þræðinum og á hann koma hnökrar, en samt slitnar hann aldrei". |
| Þú ert gestur nr. 63081 |