Sara Talía Sigurþórsdóttir


Lykilorðið að síðunni er nafnið á heimabænum hans pabbi míns..
Ég heiti Sara Talía er fædd 17. júní 2005 og er því orðin 4 ára. Ég held mikið uppá Latabæ, Simpson, Skoppu & Skrítlu og Hello Kitty. Ég elska lítil börn og finnst fátt skemmtilegra en að leika við og passa þau. Ég á 3 lítil frændsystkin sem heita Sóley, Logi Freyr og Hektor Orri og eru þau í miklu uppáhaldi. Svo á ég fullt af dúkkum sem ég er mjög dugleg að hugsa um og 2 hunda, Kaju sem er labrador og Míu sem er Minature pinscher og eru þær algjört æði. Mér finnst voða gaman að syngja og tala, og get ég talað alveg úti eitt! :-)











Nafnið mitt þýðir

Sara;

Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, -prinsessa.

Talía

Nafn þetta er komið af hebreska orðinu "tal" sem merkir dögg, - morgundögg





Tvíburi
21. maí - 21. júní

Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.


Kamilla Mist


Emma og Aþena


Karen Lind


Máni Freyr


Kaja

Embla María
Þú ert gestur nr. 16973