Kolla og Vala dagmamma með Kollukot

Solla dagmamma með Sollukot

Anna og Karen dagmamma með Dagmömmudrauma

Kristín dagmamma með krílin

Íris dagmamma með Bakkabörn

Jórunn dagmamma með Jóukrílin

Elva dagmamma með Elvukot

Bryndís dagmamma með Binnubæ

Valla dagmamma með Völlukot

Rósa María dagmamma með Krúslukot

Orkuboltastelpurnar

Daggæslan Freyjukoti






Það sem börnin kenna okkur...

Það er skemmtilegra að lita út fyrir línurnar...

Ef þú ætlar að lita á vegginn í stofunni,

þá er betra að gera það bak við sófann...

Það er ekki satt að Súpermann hafi alltaf

borðað grænmeti þegar hann var lítill...

Ef hundinum þínum líkar ekki við fólk,

þá ætti þér ekki að líka það heldur...

Jafnvel þó þú hafir dorgað á bryggjunni í 3 tíma

og ekki fengið neitt nema þara og sólbruna á nefið,

þá hefur þú það a.m.k. betra en ormurinn á hinum endanum...

Stundum þarftu að taka prófið

áður en þú lýkur við að læra...

Ef þig langar í kettling,

þá skaltu byrja á að biðja um hest...

Það er engin skynsamleg ástæða

fyrir því að föt þurfi að passa saman...

Ef hesturinn sem þú ert að teikna líkist meira hundi,

þá skaltu breyta honum í hund...

Taktu frá pláss í röðinni handa vinum þínum...

Bankaðu bara áfram...og áfram...

þar til einhver kemur til dyra...

Að búa um rúmið sitt er mikil tímasóun...

Búðu reglurnar til jafnóðum...

Það skiptir engu máli hver byrjaði...

Haltu fast í það sem þú vilt...

Spurðu "af hverju?" alveg þangað

til þú færð svar sem þú skilur...








Þú ert gestur nr. 35775