-
Að barn þarfnast náins sambands við nokkrar ákveðnar manneskjur.
-
Að barn þarfnast örvunar og jákvæðrar athygli.
-
Að barn þarfnast öryggis og skýrra skilaboða.
-
Barn sem er öruggt með sjálft sig og umhverfi sitt er óhrætt við að takast á við nýjungar. Þorir að kanna nýjar leiðir í umhverfinu. Barnið veit þó því mistakist fær það huggun og hlýju og styrkingu til að prófa aftur.
-
Leikur er vinna barnsins og nám.
-
Í gegnum leikinn lærir barnið á umhverfi sitt og sjálft sig.
-
Barn sem er í góðu jafnvægi og leikur sér óþreytt, af einbeitingu og gleði, hefur möguleika á að mæta verkefnum framtíðarinnar á sama hátt.
-
Góður uppalandi þarf að hafa úthald, gefst ekki upp þó að á móti blási.
-
Góður uppalandi notar ekki hótanir í samskiptum við barnið.
-
Góður uppalandi stöðvar óæskilega hegðun hjá barni þegar hún birtist án þess að skaða sjálfsmynd barnsins.
-
Góður uppalandi notar sjálfan sig sem agatæki.
-
Góður uppalandi veit að ef hann notar aðvörun einu sinni verður hann að framfylgja henni.