Reglur Barnavistunar 
1. grein:
Innifalið í launalið verktaka er orlof og veikindadagagreiðsla.
2. grein:
Daggæsluaðili skal tilkynna forráðamanni hvenær hann tekur orlof fyrir fyrsta apríl ár hvert. Taki forráðamaður sér frí utan orlofstíma, er það ekki frádráttarbært.
3. grein:
Daggæsluaðili þarf sjálfur að bera ábyrgð á samskiptum sínum
við sveitafélagið.
Kynna þarf forráðamönnum reglur um niðurgreiðslur.
4. grein:
Í byrjun vistunar skal greiða mánuð fyrirfram, sem er ekki endurgreiðsluhæfur.
Heimilt er á aðlögunartíma að taka gjald fyrir barn eins og gæsla verður.
Mánuður er greiddur fyrirfram ef greiðsla hefur ekki verið innt af hendi innan 5 daga er daggæsluaðila ekki skyllt að taka barnið. Ætíð reiknast 22 virkir dagar í hverjum mánuði.
5. grein:
Ef samið hefur verið um vistun barns frá ákveðnum degi, en barnið kemur ekki er daggæsluaðila heimilt að taka annað barn að viku liðinni.
Heimilt er að taka greiðslu frá þeim degi er samið var um, þó svo að upphaf gæslu frestist.
6. grein:
Daggæsluaðila ber ekki skylda til að bíða lengur en hálfa klst. eftir komu barns. Sé barn ekki sótt á réttum tíma greiðist sérstakt gjald samkvæmt gjaldskrá.
Forráðamaður hefur ekki leyfi til að fær til umsamin gæslutíma, jafnvel þó barn hafi komið of seint um morguninn.
7. grein:
uppsagnarfrestur beggja aðila er 1 mánuður og skuli vera um mánaðarmót, 1. hvers mánaðar).
Skriflegur vistunarsamningur með dvalartíma barns og hvaða dag vistun hefst, skal vera útfylltur.
8. grein:
Barn þarf að hafa meðferðis hlýjan útifatnað, regnfatnað og aukaföt til skiptanna. Bleyjur eru samningsatriði. Við komu og brottför barns klæðir forráðamaður barn sitt í og úr yfirhöfn. Komi barn með eigin leikföng, kerrur eða vagna, er það á ábyrgð forráðamanna.
9. grein:
Ákvörðun um vistun barns er ætíð á ábyrgð forráðamanns.
10. grein:
Forráðamenn skulu láta daggæsluaðila í té upplýsingar um símanúmer og heimilisföng.
11. grein:
Forráðamaður skal láta vita ef barnið er veikt. Ekki á að koma með barnið í gæslu, sem er með hita eða greinileg vanlíðunareinkenni. Veikt telst það barn sem ekki getur tekið þátt í daglegum venjum heimilisins.
12. grein:
Forráðamanni telst skylda til að láta daggæsluaðila vita, ef annar en hann kemur að sækja barnið.
13. grein:
Tilkynna skal forráðamönnum ef gæludýr eru á heimilinu eða til stendur að taka slíkt.
14. grein:
Áríðandi er að upplýsingastreymi sé mikið og óþvingað á milli forráðamanna go daggæsluaðila því það er nauðsynlegur grunnur undir góða samvinnu.