Ég er lítið kraftaverk sem fæddist 11 vikum fyrir tímann þann 26. mars 2005 á Landspítalanum í Reykjavík. Ég var tekin með keisara og vó 900 gr og var 35 cm við fæðingu. Mamma og pabbi fengu rétt að sjá mig áður en farið var með mig upp á vökudeild þar sem ég var þar til 30. mai en þá fórum við heim til Akureyrar. Það var mjög erfitt að sjá háralitinn minn og augnlit í byrjun en augun urðu blá og hárið er orðið ljósskolleitt. Svo er ég með rosalega löng og falleg dökk augnhár.








Ég er fyrsta barn foreldra minna og þau elska mig út af lífinu. Ég er líka fyrsta barnabarnið og meira segja líka fyrsta barnabarnabarnið mömmu megin.... heppin ég;) Afi minn mömmu megin heitir Víðir og amma heitir Jóna og þau búa á Ólafsfirði. Ég er fjórða barnabarnið pabba megin en við erum orðin fimm frændsystkinin núna. Afi minn pabba megin heitir Þorsteinn og amma heitir Jóna Guðný alltaf kölluð Didda. Svo á ég líka nokkrar langömmur og einn langafa. Jóna langamma býr í Reykjavík, Stella langamma býr á Ísfirði og Villa langamma, Jóhanna Marín langamma og Jón langafi búa hér á Akureyri.






Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér ? það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.




Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi



Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.








Þú ert gestur nr. 74305