Hellú hellú....

Var að setja inn myndir í apríl albúmið.

Allt gott að frétta héðan... prófatíðin að skella á með öllu tilheyrandi. Marín alltaf í pössun eða heima með pabba sínum... sér mömmu sína ekki neitt, held samt að henni finnist það bara fíntWink

Annars fórum við í foreldraviðtal á laugardaginn og það eru nú svona helstu fréttirnar. Fengum rosa góð ummæli um litlu dömuna... hún er víst mjög hlýðin, fer alltaf eftir fyrirmælum, er hjálpsöm og kurteis, finnst gaman að tala þegar hún fær orðið, klár, dugleg og hefur húmor og hefur einstaklega gaman af því að hlæja hehe... eins og við vitum flestWink Hún hefur góða félagshæfni og funkerar mjög vel í hóp. Hún sækir mjög í Önnu Sunnu sem okkur finnst bara gaman, gott að vita að hún á svona eina uppáhalds. Svo talaði hún líka um að hún væri mjög hugmyndarík eins og t.d. þegar hún er að leira. Hún er alltaf að búa eitthvað til og hefur mikla sköpunargleði sem er akkúrat það sem maður vill fá út úr þessum opna efnivið sem er notaður í Hjallastefnuskólunum. Enda tökum við vel eftir því hérna heima... hún hefur ótrúlegt ímyndunarafl... var að kubba áðan og sagði að tveir kubbanna væru að fara í leikhús!! Það þarf sko ekki mikið til þess að hún hafi ofan af fyrir sér... sem er alveg frábært. En það skemmtilegasta sem hún gerir á leikskólanum er að lita, mála og klippa. Enda sjáum við það vel hérna heima og af magninu af myndunum sem við fáum heim eftir hverja viku hehe. Þetta er svona það helsta sem ég man... allavega sagði hún ekkert sem mætti bæta... enda vissum við það auðvitaðWink

Svo er "gleðivika" á Hólmasól þessa vikuna. Þá er bara verið að leggja extra mikla áherslu á gleði, vinna með hið góða í fólki, gefa kærleika og góðmennsku af sér og svona mætti lengi telja. Okkur foreldrunum er svo boðið á gleðiskemmtun á þriðjudaginn.. spennandi að sjá hvað það verðurSmile

En hef þetta ekki lengra í bili... nóóóg að gera í prófalestri...

Skrifa meira og set inn myndir eftir 8. maí.

Gleðikveðjur

Marín, m og p

19.4.2009 | 20:29

Ég mátti til með að bæta aðeins í nýjasta albúmið en ég tók nokkrar myndir frá afmælisdeginum hennar Marínar af síðunni hjá Hólmasól:)


Ekki meira í bili... takk allir fyrir skemmtilegan dag á laugardaginn með okkur... :)

MBK

Við öll í Hjallalundinum...

31.3.2009 | 17:59

Stór dagur í dag...

Hún Marín er orðin 4 ára... ég ætla nú ekki að segja að það sé eins og hún hafi fæðst í gær en ekki finnst mér það heldur vera 4 ár!! Svona er þetta víst... hún verður fermd áður en við vitum afWink

Marín fór á leikskólann í morgun eins og venjulega og bakaði kökur fyrir vinkonur sínar á Kjarnanum og þær voru fjólubláar að hennar sögnWink Ég svona giska á að hún sé að tala um glassúrið.... en hún var voða ánægð eftir daginn. Ömmurnar og Stella komu svo í skonsur eftir leikskóla og komu að sjálfsögðu hlaðnar gjöfum sem slógu í gegn. Svo verður aðalafmælið á laugardaginn fyrir mrs princess....

Hef þetta ekki lengra í bili... var að setja inn nokkrar myndir frá síðustu helgi og deginum í dagSmile

Afmæliskveðjur frá gleðigjafanum í Hjallalundinum...

26.3.2009 | 21:04

Hallóhalló...

Nýjar myndir hjá okkur...

Ekkert fleira í bili þar sem múttan er í óðaönn að baka vatnsdeigsbollur í fyrsta sinn... vonum að þær heppnistWink

Góða nótt

Hjallalundargengið...

22.2.2009 | 21:47

Góða kvöldið...

Ætlaði bara að láta vita af nýjum myndum... afskaplega fáar, er búin að vera voða löt með vélina. Annars er bara mest lítið að frétta, mamman komin heim eftir mjög lærdómsríkan og gefandi tíma á Krabbameinsdeildinni og pabbinn kominn heim af sjónum. Þannig að lífið er komið aftur í góða rútínu... sem er alltaf gott. Marín heimsótti mömmu sína í heila viku til Reykavíkur og var í góðu yfirlæti hjá langömmu sinni og Friðgerði frænku á meðan mamman var að vinna. Auðvitað fengum við að heyra hvað hún Marín væri góð, yndisleg, hlýðin, meðfærileg, skemmtileg og þar fram eftir götunum frá þeim báðum... en það vissum við nú fyrir heheWink En þetta gekk bara rosa vel... og mamman auðvitað alsæl með að fá að hafa lottuna sína hjá sér. Við gerðum alveg heilmargt, fórum í fullt af heimsóknum og matarboðum og höfðum það voða gott.

Svo fórum við á skíði í dag, í annað sinn og þetta gengur bara mjög vel. Marín var farin að renna sér sjálf strax í fyrsta sinn sem við fórum, í barnabrekkunni þannig að við prófuðum að fara í stærri lyftuna í dag, eftir nokkrar ferðir í hinni. Það gekk bara vel en mamman var vel sveitt eftir fyrstu ferðina... erfiðara en hún bjóst við að nota svona barnabeisli hehe, en þetta kemur allt með kalda vatninu.

Höfum þetta ekki lengra í bili... endilega skoðið myndirnar og verið svo dugleg að skilja eftir ykkur spor. Alltaf svo gaman að sjá hverjir kíkja við....

Knús og kveðjur frá okkur í Hjallalundinum.

8.2.2009 | 21:09

Nýjar myndirSmile

Lítið að frétta annars, en endilega skiljið eftir kveðju í gestabókinni.

Kv. Halldóra og Marín

11.1.2009 | 22:09

Góðan daginn og gleðilegt ár.

Jæja þá fer blessuðum jólunum að ljúka og það verður nú bara gott að koma öllu inn í rútínu á ný. Marín fór á leikskólann í morgun eftir gott frí og hún var sko þvílíkt spennt að fara, hún sagði við mig að nú væri hún orðin miklu stærri en allar stelpurnar og væri 4 ára hehe. Hún hefur kannski aðeins ruglast þegar við vorum að útskýra fyrir henni að hún yrði 4 ára á þessu ári, ekki nema von að hún eigi erfitt með að skilja þetta blessað barniðWink En við erum búin að vera svo dugleg að segja henni hvað hún sé orðin stór og dugleg því hún var að hætta með snudduSmile Þannig að í okkar augum er hún reyndar búin að stækka alveg helling... En það gekk rosa vel að taka dudduna, pabbi hennar tók þær bara út á sjó og sagðist ætla að gefa fiskunum þær og hún var svo sannarlega til í það. Hún hefur reyndar beðið um snuð á hverjum degi en þegar ég segi nei þá er það bara búið. Hún var voða krúttleg annað kvöldið sem hún var að fara að sofa án snuddunnar, en þá bað hún um að fá bara snuddu lánaða hjá Víði Jökli, en hún vissi að hún gæti ekki fengið sínaSmile

Svo fer mamman suður í 3 vikur núna um miðjan janúar og fer í verknám. Marín verður þá hjá ömmu sinni í einhverja daga þar til pabbi hennar kemur, en hann kemur í lok janúar. Mér er nú farið að kvíða dálítið fyrir að fara svona lengi frá henni en ég ætla bara að koma heim eina helgina og fá þau svo suður til mín hina helgina... þá verður þetta fljótt að líðaWink Svo er ég svo spennt fyrir þessarri deild sem ég er að fara á að ég hreinlega gat ekki sleppt þessu, þetta blessast allt eins og alltaf.

En við höfum svosem ekki meira að segja... lítið að frétta af okkur annað en gott þannig að ég hef þetta ekki lengra í bili.

Hafið það gott kæru vinir og endilega skiljið eftir kveðju í gestabókinni.

Knús og kossar frá Marín og okkur hinum.

Ps. TVÖ ný albúm... endilega kíkið...

5.1.2009 | 10:22

Hóhóhó...

Gleðileg jól allir saman og takk kærlega fyrir okkurSmile Við erum búin að hafa það rosalega gott um jólin, allt voðalega frjálslegt og fólk bara eins lengi á náttfötunum og það kærir sig um... eins er svefntíminn ekkert heilagur og mottóið er bara að hafa það eins og maður vill.

Við vorum hér 3 heima á aðfangadagskvöld og það var yndislegt. Marín var voða góð, prúð og stillt að bíða eftir pökkunum en maður finnur alveg greinilegan mun á henni síðan í fyrra. Hún veit náttúrulega miklu meira hvað um er að vera þannig að það vottaði alveg fyrir óþolinmæði. Það var samt mjög fyndið að eftir matinn þá var hún ekki að spyrja um pakkana heldur ísinn sem hún vissi að væri í vændum... hún var meira spennt fyrir honum en pökkunum hahaSmile En hún fékk alveg fullt í jólagjöf og hún var alveg hissa á þessu sjálf... sagði bara "vá hvað ég fékk mikið"... algjört krúttSmile

Svo erum við búin að fara í tvö jólaboð og ætlum svo að vera hjá Jónu ömmu og Víði afa um áramótin, en þangað til ætlum við bara að liggja í leti hér heima og gera ekki neittWink

Höfum þetta ekki lengra í bili... en það eru komnar fullt af myndum, við erum heldur betur búin að vera dugleg að taka myndir með nýju vélinni. Sumar eru ekki alveg skýrar en við (aka Jói) er á fullu að prófa stillingarnar á henniWink 

Hafið það endalaust gott og njótið hátíðanna í botn...

Góðar stundir

Halldóra, Jói og Marín

27.12.2008 | 00:54

Gleðileg jól kæru vinir og ættingjar og farsælt komandi ár. Þökkum innlitið á síðuna okkar og allar kveðjurnar sem við höfum fengið. Hafið það öll sem allra best um jólin og á komandi ári.

Sjáumst hress á árinu 2009.... eða jafnvel á milli hátíðanna...

Jólakveðjur

Halldóra, Jói og Marín.

Ps. fullt fullt af myndum í nýju albúmi... endilega kíkið og kvittið eins og venjulega...Wink

24.12.2008 | 01:09

Hæhó allir saman.

Jæja... ágætis tími síðan ég kom með einhverjar fréttir. En það er ekkert mikið að frétta af okkur, gengur allt sinn vanagang hjá okkur, Jói reyndar farinn á sjó og verður alveg til jólaUndecided Það er alveg glatað að hafa hann ekki heima í desember í jólaundirbúningnum og í prófunum.... en það þýðir víst ekkert að hugsa svona á tímum sem þessum. Enda á Marín svo góðar ömmur og góða afa að þetta bjargast allt saman.

Marín var að klára 3 og hálfs árs skoðunina í dag og það kom allt mjög vel út... enda ekki við öðru að búast af jafn gáfuðu barniWink En við erum voða fegin að þetta er búið... ég hef nú verið dálítið móðursjúk og hef í gegnum tíðina verið að þykjast sjá eitthvað sem hefur ekki verið til staðar. En það er nú bara af því að ég hef lesið of mikið um fyrirbura og verið hrædd um að það eigi eitthvað eftir að koma í ljós... sem gerist náttúrulega ekki og hún Marín er sko bara flottust. Allir svo ánægðir með hana og hún stendur sig svo vel á leikskólanum. Við fórum í foreldraviðtal um daginn og hún er bara alveg yndisleg, rosalega dugleg og blíð og góð. Fóstran hennar talaði um að hún skilur aldrei neinn útundan og þarf alltaf að vera að kyssa alla, enda þarf ég oft bara að standa og bíða eftir henni þegar ég sæki hana eftir daginn á meðan hún hleypur um allt og kyssir og knúsar allaSmile Svo sáum við súlurit um valið hennar í október mánuði og það er voðalega jafnt... hún velur samt mjög mikið þessa dagana að fara í föndurkrók en hún er mjög oft þar þegar ég sæki hana á daginn að klippa, líma, lita eða mála. Kannski hún verði bara listamaðurWink En hún er mjög sjálfstæð og horfir ekkert á hvað hinar stelpurnar velja, velur sér bara sjálf það sem hún vill gera. Hún er líka rosalega dugleg að deila sem við erum auðvitað mjög ánægð með... enda er aldrei neitt vandamál að lána dótið sitt þegar það koma gestir... sem er náttúrulega alveg æðislegt, gott að hún sé svona tillitssöm.

En jæja... nóóóóg af montræðu... ekki það að ég gæti ekki haldið endalaust áfram að tala um litlu trilluna okkar sem er allt í einu orðin svo stór.

Hafið það gott og endilega kíkið á nýjar myndir í nóvember albúmi, þær eru nú ekki margar enda erum við ekki búin að vera dugleg að taka myndir. Eigum svo leiðinlega myndavél.... kannski maður splæsi í nýja ef pabbinn gerir góðan túr... það má nú eitthvað leyfa sér í kreppunniWink

Þar til næst

Halldóra og Marín

18.11.2008 | 20:41

Loksins nýjar myndir... ekkert voða margar þó, en nóg til að gleðja ykkur sem skoðiðWink

Nenni ómögulega að skrifa meira... set inn betri fréttir síðar.

Hugs and kisses

Familían Hjallalundi.

19.10.2008 | 22:05

Hæhæ allir saman.

Yndisleg mæðgnahelgi að baki... erum búnar að hafa það svoooo gott bara við tvær. Fórum í íþróttaskólann í gær í 2. sinn og þetta er rosalega gaman. Marín er bara svo dugleg og hún er alveg að fíla sig þarna, stiklar á spýtu, klifrar í rimlunum, fer í kollhnísa og ég veit ekki hvað og hvað. Hún er líka mjög dugleg að halda sig á sínum stað... hún er ekkert að hlaupa á milli þó að það geti kannski verið freistandi stundum. Svo fórum við í bæjarferð í gær með vinkonum mömmu, röltum i búðir og á kaffihús, keyptum svo laugardagsnammi og höfðum það huggulegt hér heima fram eftir kvöldiWink Fórum svo í sund í dag, bökuðum köku, lögðum okkur í sófanum og svo út að hjóla og á róló þannig að við erum búnar að bralla helling og við alveg endurnærðar eftir helginaSmile Svo er múttan að fara að vinna alla næstu helgi þannig að þá verð ég hjá ömmum mínum og öfum... og svo eftir þá helgi er mamman sem betur fer hætt að vinna. Allavega í bili. Enda er verknám framundan og hún tekur hluta af því fyrir sunnan...

En við vorum að skella inn nokkrum myndum... hef þetta ekki lengra í bili.

Fullt af ást og kossum frá okkur Marín...

14.9.2008 | 21:27

Hæhó...

Þá er pabbinn á heimilinu kominn heim af sjónum og farinn aftur. Hann stoppaði bara í 4 daga... en kemur svo í lok sept og ekkert víst að hann fari nokkuð aftur eftir þann túr. Marín pabbastelpa var sko ekkert lítið ánægð með þessa daga enda er hún mjög hænd að pabba sínum. Þau áttu líka góðan tíma bara tvö því múttan var að vinna alla dagana sem hann var heimaUndecided Hún er enn í 30% vinnu en bara út september... ætlar bara að einbeita sér að skólanum í vetur og litlu dömunni sem þarf sína athygli.

Marín var að skipta um Kjarna á leikskólanum og er núna komin á Græna Kjarna... hún var s.s. á litla stúlknakjarna. Okkur foreldrunum finnst hún orðin voða stór eitthvað!!! En það gengur rosa vel hjá henni á nýju deildinni og hún verður örugglega allan daginn þar á morgun. Fóstran hennar þar talaði mikið um hvað hún væri dugleg stelpa og tók eftir hvað hún er dugleg að leika sér sjálfSmile Enda er hún það.... hún getur dundað sér heillengi inni í herberginu sínu á daginn eftir leikskólann. Anna Sunna vinkona hennar var líka að fara á þessa deild þannig að þær virðast bara ætla að vera samferða... sem er alveg æðislegt. Það eru alveg stelpur upp í 5 ára á þessarri deild en þessar minnstu verða ekkert í hópum með þeim... en auðvitað munu þær lenda saman í valinu og það verður spennandi að sjá hvernig Marín á eftir að ganga að leika við svona stórar stelpurSmile

Annars hóstar Marín eins og hún eigi lífið að leysa núna... vona að hún sé ekki að næla sér í pestUndecided En elsku stelpan fær svo hryllileg hóstaköst... er ennþá með þetta astmakvef.

Jæja... hef þetta ekki lengra í bili... var að setja inn nýjar myndir, endilega kíkið og allir svo að kvitta fyrir komunaWink

Góða nótt

Marín og mamma

2.9.2008 | 23:01

Var að setja inn öööörfáar myndir í nýjasta albúmið.... ekki beint búin að vera dugleg að taka myndir núnaWink

Annars er lítið að frétta, skólinn byrjar á morgun og Jói fór út á sjó í ágúst... kemur heim eftir ca viku og fer væntanlega annan túr, enda enginn skóli hjá honum fyrr en eftir áramótSmile Marín er byrjuð á leikskólanum aftur og starfið þar er svona hægt og rólega að fara af stað, það verður einhver breyting á t.d. hópnum hennar sem við fáum að vita um í vikunni.

Nenni ekki að skrifa meira, endilega kíkið á myndirnar og kvittið svo fyrir komuna...Smile

Fullt af ást...

Marín og mamma.

24.8.2008 | 22:07

Komin heim eftir yndislega dvöl á Ísafirði og Bolungarvík.

Þetta var alveg æðislegt, það er ekki laust við að okkur langi pínu að búa þarna... ef þetta væri aðeins nær RVK og Akureyri myndum við kannski slá tilWink Ég ætla nú ekki að hafa þetta langt núna en ég verð samt að monta mig smá því það sögðu næstum allir að Marín væri alveg ofboðslega lík mömmu sinniSmileSmile Og það hef ég afskaplega sjaldan heyrt. Svo voru örugglega tveir sem sögðu að hún væri lík Jónu ömmu sinni sem er kannski ekkert skrítið því þessir sömu töluðu um hve lík mömmu ég væriWink Gaman að þessu...

Annars er Marín á fullu að óhlýðnast foreldrum sínum, segir nei við ÖLLU sem við biðjum hana um... en þetta hlýtur að lagast fljótlega. En hún er samt algjört gull og jafn skemmtileg og alltaf. Svo er hún alveg ótrúlega góð í bíl, hún bara syngur og trallar og skemmtir sjálfri sér. Við keyrðu í næstum því 7 tíma í dag og stoppuðum einu sinni en samt kvartaði hún aldrei!! Finnst það nokkuð gott af þriggja ára barni....

En jæja... ætla að slappa aðeins af... var að henda inn myndum úr ferðinni. Myndavélin var því miður batt low á laugardaginn þegar markaðsdagurinn var í Bolungarvík og við úti allan daginn... en það verður að hafa það, stelum kannski einhverjum hjá Önnu og Valda.

Bless í bili....

Marín og m&p

 

6.7.2008 | 22:10



apríl '09 | mars '09 | febrúar '09 | janúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | október '08 | september '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | júlí '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júlí '06 | júní '06 | maí '06 | apríl '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06 | desember '05 | nóvember '05 | október '05 | september '05 | ágúst '05 | júlí '05 | júní '05 | maí '05