| Elísa Rún og Valur Áki | |
|
|
|
| Við erum Elísa Rún og Valur Áki. Við eigum heima í Hafnarfirði. | |
|
Um mig
Elísa fæddist á Landspítalanum, 11. ágúst 1999. Hún var 51 cm og 3406 gr.
Valur Áki fæddist á Landspítalanum, 8. október 2003. Hann var 46 cm og 2316 gr. |
|
|
|
|
|
Annað:
LJÓNIÐ 23. júlí - 22. ágúst Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt. Nafnið mitt Elísa Nafn þetta er að uppruna stytting á nafninu Elísabet. Rún Nafn þetta merkir töfrastafur, - leyndardómur, vinur í raun.
VOGIN 23. september - 23. október Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. Nafnið mitt Valur Fuglsheitið valur. Áki Nafn þetta er ýmist talið koma úr fornháþýsku og þá frá orðinu "ano" sem merkir forfaðir, eða þá frá gríska orðinu "agat" sem merkir saklaus. Boðorðin 10- Fyrir foreldra 1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau. 2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem ?krakkann". 3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín. 4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það. 5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir. 6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau. 7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán. 8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki. 9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til 10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði. Viltu senda mömmu póst. Senda póst! Viltu senda pabba Senda póst! |
|
| Þú ert gestur nr. 14060 |