![]() |
Bryndís Eva |
|
|
Bryndís Eva kom í heiminn á uppstigningardag, fimmtudaginn 5.maí 2005 kl.20.25. Hún vó 3800 gr (rúmar 15 merkur) og var 52 cm á lengd. Bryndís Eva var ótrúlega hress og skemmtileg stelpa og fannst gaman að láta fíflast í sér. Hún hló af mikilli innlifun og var alltaf til í að vera með í fjörinu. Hún var mikið fyrir söng og tónlist og hlustaði af mikilli athygli þegar einhver söng fyrir hana. Hún var mjög róleg, en ef hana vantaði eitthvað vildi hún láta sinna því STRAX. Þegar hún var 7 mánaða komu veikindi hennar í ljós af krafti og var hún flutt á gjörgæslu og svo á Barnaspítala Hringsins. Þar bjuggum við litla fjölskyldan í 9 mánuði. Hún var mjög mikið veik þannig að við kynntumst nýrri stelpu þegar hún vaknaði eftir svefninn fyrstu vikurnar á spítalanum. En hún var auðvitað jafn æðisleg, á annan hátt, enda ótrúlega sterk og dugleg að berjast og sannaði það fyrir okkur fjölskyldunni, læknum og starfsfólki að hún fór sínar eigin leiðir. 6. september 2006 sofnaði hún vært í fanginu okkar eftir erfiða baráttu og er nú eflaust á góðum stað. Kærar þakkir til ykkar allra sem senduð okkur fjölskyldunni styrk í baráttunni okkar. Hann hjálpaði okkur mjög mikið og gerir það enn þann dag í dag. |
|
|
|
Dvel ég í draumahöll og dagana lofa litlar mýs um löndin öll liggja nú og sofa sígur ró á djúp og dal, dýr til hvílu ganga einnig sofna skolli skal, með skottið undir vanga
|
| Þú ert gestur nr. 162952 |