|
Gunnar Valur fæddist á Landsspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 8.maí 2005 kl.17.31. (Á mæðradaginn) Hann var nú ekkert rosalega stór,10 merkur og 48cm. Mamma missti vatnið um kl.04.40 og var farin upp á spítala klukkan 6.30. Pabbi minn og Dísa voru með henni. Fyrst var ljósmóðir sem heitir Guðríður Ingvarsdóttir að fylgjast með mömmu og mér og svo kom morgunvaktin og þá kom ljósmóðir sem heitir Þórdís Klara og hún var hjá mömmu allan daginn.Þetta tók svolítinn tíma fyrir mig að koma svo það kom þriðja vaktin til mömmu en Þórdís Klara ákvað að verða eftir og klára bara að taka á móti mér og hún Þóra Guðný Ægisdóttir hjálpaði henni og mömmu að koma mér í heiminn.Ég var voða þreyttur og með kúlu á höfðinu því mér fannst erfitt að koma.Ég þurfti að fara fljótlega á vökudeildina af því ég hélt ekki blóðsykrinum í lagi en ég var fljótur að koma til því ég vildi auðvitað vera hjá mömmu minni og þriðjudaginn 10.maí var ég útskrifaður af vökudeildinni. Við mamma og pabbi fórum svo heim föstudaginn 13.maí og það verður minn lukkudagur:) Það finnst öllum ég vera líkur pabba mínum en Dísa segir að hún hafi séð myndir af mömmu þegar hún var svona lítil og það er víst líka smá svipur með okkur.
Gunnar: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður. Valur: Fuglsheitið valur
Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. “Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?” Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.
Ég fæddist á Landspítalanum við Hringbraut þann 28.apríl 2007. Ég var 16 merkur og 53 sentimetrar. Ég var alveg eins og pabbi minn:) Mamma mín heitir Karitas Valsdóttir og pabbi minn heitir Sigurbergur Ármannsson. Við mamma og pabbi fórum heim strax daginn eftir:)
Daníel:Nafnið kemur úr hebresku og þýðir Guð er minn dómari. Þekktasti Daníel mannkynssögunnar er líklega sá Daníel sem kenndur er við ljónagryfju, Emil: Nafn þetta er hingað komið úr dönsku og er þangað komið af latneska ættarheitinu "Aemilius" sem merkir vingjarnlegur.
Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. “Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?” Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.
Særún Birta Funding America Now Mikael Dagur
Mamma okkar heitir Karitas Valsdóttir(1986),pabbi minn heitir Karl Eldar Gunnarsson(1979) Ég er fyrsta barnið þeirra. Stjúp pabbi minn heitir Sigurbergur Ármannsson hann er pabbi Daníel Emils. Við eigum fallega íbúð í Álfheimunum en leigjum hana út eins og er. Núna búum við í Keflavík á meðan Beggi pabbi klárar skólann. Við erum mjög ánægð þar. Ég á fullt af ömmum og öfum. Afar mínir heita Gunnar Eldar Karlsson og Valur Sveinbjörnsson,ömmur mínar heita Ragna Jóhannesdóttir og Helga Soffía Guðmannsdóttir.Svo á ég líka langömmur og þær heita Þórunn Gunnarsdóttir,Sigurbjörg Elsa Backmann og Karólína Aðalsteinsdóttir.Langafar mínir heita Guðmann Ingjaldsson og Sveinbjörn Sædal Gíslason. Langalangamma mín heitir Signý Egilsdóttir. Svo eru skáömmur og afar líka svo ég á svakalega stóra fjölskyldu og það er gaman(",)
TIL UMHUGSUNAR: Elsku mamma og pabbi ! Ég er með svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir. Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt. Ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar. Ekki skamma mig, leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vera vitlaus. Ekki búast við að myndin sem ég er að teikna eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna. Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera. Stundum skil ég ekki það sem þú segir. Ég elska þig svo mikið. Elskaðu mig bara fyrir það sem ég er, ekki fyrir það sem ég geri.
ELSKU PABBI MINN. Mig langar svo mikið til að segja þér hve kær þú ert mér og hve mikils virði þú ert í mínum augum. Ég tel mig lánsama að hafa fengið að kynnast þér. Ég væri ekki sú sem ég er í dag nema vegna þín. Þú munt leiða mig í gegnum lífið þurrka tár mín og hugga mig á slæmum tímum. Þú hefur stórt hjarta, fullt af visku þú munt hjálpa mér að ná draumum mínum. Ég vildi að ég gæti gefið þér þann hæfileika að geta séð sjálfan þig með augum annara. Þá myndir þú sjá hve sérstakur þú í rauninni ert. Takk fyrir að vera til. Takk fyrir að vera til staðar. Takk fyrir að vera þú. Ég elska þig pabbi.
MAMMA ER KONAN sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu leyfir mamma það ekki því að hún er svo vön að hugsa vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast með manni þegar gaman er að vera til. MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!
|
|
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 18226 |