VERIÐ VELKOMINN Í HEIMSÓKN Á SÍÐUNA MÍNA
![]() |
| ÉG HEITI ELÍSA HRÖNN OG ER 6 ÁRA PRINSESSA!!!! |
|
Ég fæddist 7 apríl 2005 á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir mikið streð hjá Mömmu við að koma mér í heiminn,ég lét bíða eftir mér í viku og svo vildi ég ekki snúa mér rétt svo mamma gæti átt mig eðlilega svo það endaði með keisara eftir mikið erfiði.Ég var 16 merkur og 51cm.Mamma mín heitir Eygló Sigurbjörnsdóttir("69) og bý ég hjá henni á Vopnafirði og Pabbi minn heitir Róbert Sindri Elvarsson("66) og á heima í Reykjavík og ég á tvö hálfsystkin þau Kristján og Lindu og nú er ég búin að eignast lítinn bróður sem fæddist 10 júlí"08 hann á heima í Reykjavík og heitir Hinrik Torfi, ég á 2 Ömmur og 3 Afa geri aðrir betur!! En þau heita Birna,Bubbi,Hrönn,Elvar og Guðmundur. Ég er alveg óskaplega mikil skessa stundum og er MJÖG!!!!!! ákveðin ung dama mömmu minni til mikillar ánægju;) og ég er alveg rosaleg kossakerling,er sem sagt alveg til í að kyssa hvern sem er sem sagt Indæl,góð,falleg lítil dama sem verður frekar reið ef hún fær ekki það sem hún vill.En samt algjör rúsína:)
Mamma mín 3-4 ára
**************************************************h ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ! Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma. Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku. Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi. Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd. Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði. Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust. Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna. Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni. Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark. Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu. Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska. |
|
|
|
Áður en þú varðst til þráði ég þig. Áður en þú komst í heiminn elskaði ég þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefði ég fúslega dáið fyrir þig, þetta er kraftaverk lífsins
*************************************************** Vertu, guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. _____________________________________________ Líf Ljós í myrkri, langt og mjótt markar upphafið hjá þér. Allt í einu ertu komin inní heiminn, lítil dofin. Dregur andann hið fyrsta sinn Þú ert vorið, vindur hlýr vekur hjá mér nýja kennd. Og ég græt í gleði minni, þú gefur mér með návist þinni svo miklu meira en trúði ég Líf ljómi þinn er skínandi skær. Líf augu þín svo saklaus og tær. Fegurra en nokkuð annað. Áhrifin ótvíræð: ég svíf því ég á þetta líf Óskadraumur ásýnd þín. Ekkert jafnast á við það. Þó mig þúsund drauma dreymi þessa stund ég alltaf geymi í mínu sinni ókomin ár Líf ljómi þinn er skínandi skær. Líf augu þín svo saklaus og tær. Fegurra en nokkuð annað. Áhrifin ótvíræð: ég svíf því ég á þetta líf _______________________________________ KÆRU FORELDRAR. EKKI TELJA EFTIR ÞESSA FÁU MÁNUÐI SEM ÉG ÞARFNAST ÓSKIPTRAR ATHYGLI YKKAR. ÉG HEF MEIRA AÐ GERA EN NOKKRU SINNI VIÐ AÐ VAXA OG BÚA MIG UNDIR FRAMTÍÐINA. EN ÉG SÝNI YKKUR ÞAKKLÆTI MITT. Á HVERJUM DEGI FÆRI ÉG YKKUR EITTHVAÐ NÝTT, EINHVERJA DÁSEMD, EINHVER MERKI UM FRAMFÖR. ÉG ER SMÁBARN SVO SKAMMAN TÍMA. NÝTIÐ HANN EINS VEL OG ÉG. ÉG STÆKKA OG HVERF Á BRAUT ÁÐUR EN ÞIÐ VITIÐ AF. GÓÐI GUÐ Þakka þér fyrir ömmu og afa, sem eru svo góð við mig. Þakka þér fyrir alla vini mína sem ég leik mér við. Láttu ekki öfund eða deilur spilla leikjum okkar. Amen. *************************************************** Elsku yndislega dóttir mín. Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar. En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið. Mig langar til að segja þér hug minn. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt. Þú ert mér allt. Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa. Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim. Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg. Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið. Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn. Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina. Ég reyni að meta þig að verðleikum. Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við. Hvar væri ég án þín? Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu. ************************************* MAMMA ER KONAN..... Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, tildæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast með manni þegar það er gaman að vera til. MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!! *************************************************** HRÚTURINN 21. mars - 19. apríl Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér ? það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á. ************************************************** Börn Barn sem alið er upp við að segja satt öðlast dómgreind. Barn sem alið er upp við ástúð lærir að elska. Barn sem alið er upp við háð og spé verður feimið. Barn sem alið er upp við andúð verður fjandsamlegt. Barn sem alið er upp við þolinmæði verður umburðarlynt. Barn sem alið er upp við viðurkenningarorð öðlast rétt mat á hlutunum. Ekkert snertir okkur meira er útrétt barnahönd. Barn sem alið er upp nákvæmlega eftir bókinni, er að öllum líkindum fyrsta útgáfa. Öruggasta aðferðin vilji maður góð börn, er að sjá til þess að þau verði hamingjusöm. Það eru ekki til óæskileg börn- aðeins óæskilegir foreldrar. Allir eru snillingar fram að tíu ára aldri. Af börnunum má margt læra, meðal annars hve langt þolinmæði manns nær. Leikir fullorðinna kallast störf. Leikir barna, sem þeim er sama alvara, sæta hins vegar vítum fullorðinna. Barnið segir það á götunni, sem foreldrar þess segja heima. Líf foreldranna er forskrift barnanna. Guð einn getur búið til blóm og gefið því lit, en hvert barn getur tætt það í sundur. Börn skilja fyrst ást foreldra sinna á sér, þegar þau sjálf eignast börn. Börn fara eftir því sem foreldrar gera ekki því sem þeir segja. Hugsa þú um uppeldi þinnar eigin sálar, þegar þú hugar að uppeldi barna þinna. Áður en þú refsar barni skaltu ganga úr skugga um að þú eigir ekki sjálfur sök á yfirsjón þess. Aðeins með einu móti getur þú alið börnin þín ; með því að ala upp sjálfan þig? Drengur á tveimur verkefnum að gegna. Hið fyrra að vera drengur áfram, hið síðara að verða að manni. Börn eru ævinlega eina framtíð mannkynsins. Sérhvert barn er fallegt, þyki einhverjum vænt um það. Sá sem hlúir ekki að umhverfi sínu elskar ekki börnin sín. Ef þú vilt að börnin þín taki framförum, láttu þau þá heyra það sem þú segir gott um þau við aðra. Nú á dögum ala foreldrar ekki börnin sín upp þeir kosta uppeldi þeirra. Aðalkostir ungbarnins er sakleysi, æskumannsins kurteisi, fullorðna mannsins atgjörvi og gamalmennisins hyggindi. Ekkert er yndislegra á að sjá en móðir með barn á armi. Og ekkert er tignarlegra en móðir meðal margra barna sinna. Aldrei blómgast það ríki sem vanræir börnin sín. Það besta sem faðir gefur börnum sínum er að elska móðir þess. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í því að hrósa barninu, þegar það á það skilið. Barnssálin er eins mjúk og vax til að móta hana, en geymir myndina eins og marmari. Æskan hefur reynslu einnar kynslóðar meira en foreldrar hennar, en notfærir sér ekki. Móðureðlið er sú tilfinning sem grípur konuna þegar öll börnin eru komin í rúmið. Aldrei hefur svo yndislegt barn í heiminn borið að móðir þess gleðjist ekki þegar það loksins sofnaði. Æskan hefur reynslu einnar kynslóðar meira en foreldrar hennar, en notfærir sér ekki. Barnanna móðir skalt þér besta velja. Það sem börn og dýr mætast , er paradís. Sá sem börn og dýr leita til ótilkvödd er góður maður. Besti arfur sem foreldrar geta gefið börnum sínum eru nokkrar mínutur af tíma sínum. Í augum barnanna má lesa hvort hjónaband er hamingjusamt. Þegar þú ávítar barn þitt, þá gerðu það svo. að kærleikurinn skíni í gegnum ávíturnar. Með barnabörnunum bætir Guð okkur upp ellina. *************************************************** Málshættir um börn ---------------------- Bjúg er barns lundin. Ósaltað kjöt og agalaust barn spillist fljótt. Læra börn það á bæ er títt. Móðir dylur barnsins bresti. Lík börn leika best. Móðir er barni best. Hljóður er barnlaus bær. Barn er móðurinnar besta yndi. Hafa skal barn til blóra. Brennt barn forðast eldinn. Það nema börnin sem í bæ títt.. Bráð er barns þörf. Þungt stynur þrábarið barn. Auðbinn er barn í æsku sinni. Tamur er barns vaninn. Barnalán er betra en fé. Vex börnum vit vetur fjölgar. Barnið vex brókin ekki. Bundinn er sá er barnins gætir. Blessun vex með barni hverju. Bráð er barns lundin Betra er að óvinur þinn sjái til þín en barnið þitt. Svo mæli ég sem aðrir mæla sagði barnið. Spakt skyldi elsta barn og vel vanið. Bragð er að, þá barnið finnur. Á gólfi skyldi gott barn sitja. Gott barn kveður góða vísu. Þægt barn fær gott atlæti. Blessun vex með barni hverju. Barnalán er betra en fé. Barna lund er blíð fædd. Barn gefur barns svör. Bljúg er barns lundin. Auðginnt er barn í bernsku sinni. Lítil er barns huggun. Tamur er barns vaninn. Að þykir barninu, þá það grætur. Allir hafa börn verið. Fáir kunna eitt barn að aga. Blautt er barns holdið. Margt er barna bölið. Seint er að byrgja brunninn, þá barnið er dottið ofan í. Lengi býr að fyrstu gerð. Allt ungviði leikur sér. Sjaldan er gott uppeldi oflaunað, nema illu sé Milt er móður hjarta. Mjúk er móður höndin. Erfðagóss konunnar er að verða móðir. """"""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""""" 1 FÆÐINGARSTUNDIN Þeir sem fæddir eru á mánudegi eru fríðleikisfólk, þriðjudagsbörn verða skapgóð, séu menn fæddir á miðvikudegi verða þeir fyrir mótlæti, fimmtudagsbörn fá margt að sjá eða reyna (sjá meira en aðrir, verða skyggn), þeir sem fæddir eru á föstudegi njóta ástar og hamingju, sorgin sækir þá heim sem fæddir eru á laugardegi en sunnudagsbörn verða langlíf og skortir ekki fé. ------------------------------------------------------- Þú ert líklega móðir... ...ef þú felur þig inni á baðherbergi til að geta verið ein smástund. ...ef fæturnir á þér festast í klístrinu á eldhúsgólfinu ...og þér er alveg sama. ...ef það er líklegra að þú verðir fyrir eldingu en að þú fáir ótruflaðan 8 tíma svefn. ...ef þú hefur aðeins tíma til að raka annan fótlegginn í einu. ...ef þín skilgreining á góðum degi er að halda fötunum frá sulli og óhreinindum. ...ef þú þværð barninu í framan með munnvatnsbleyttum þumalfingrinum. ...ef þú vonar að tómatsósa sé grænmeti, af því að það er það eina sem barnið borðar. ...ef þú byrjar alltaf á að skera matinn þinn í litla bita og leyfir öðrum að borða af disknum þínum. ...ef þú segir setningar eins og: "ekki setja pastað í nefið á þér...!"" ...ef þú telur skrautsykursmolana á hverjum kökubita svo allir fái jafnt. ...ef þú ferð á fætur kl 5:30 á hverjum degi, hefur ekki tíma til að borða (hvað þá að drekka eða fara á klósettið) og samt tekst þér að þyngjast um 5 kíló! ...ef símtölin þín eru sífellt slitin í sundur af setningum eins og: "Ekki skrifa á vegginn!" "Ekki nota köttinn fyrir fjall!" "Nei, skrifborðið á ekki að vera í sófanum!" "Hættu að toga í hárið á systur þinni" "Bíddu aðeins á meðan ég næ í þráðlausa símann, ...ef þú hefur litlar áhyggjur af bauki og bramli, en fyllist skelfingu ef allt er hljótt. ...ef þú heyrir rödd móður þinnar þegar þú segir: "Nei, ekki þegar þú ert í sparifötunum!" ...ef þú ert hætt að gagnrýna uppeldi móður þinnar á þér og syskinum þínum. ...ef þú ert farin að raula Disney-lög yfir uppvaskinu. ...ef þú færð barnapíu til að komast loksins út með manninum þínum og eyðir svo hálfu kvöldinu í að athuga hvernig gengur heima. ...ef þú segir á hverjum degi: "Ég er ekki rétta manneskjan í þetta starf" en myndir samt ekki vilja skipta um hlutverk við nokkurn annan! &&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&&& EF KARLMENN GENGU MEÐ BÖRNIN? Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár... Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð... Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni... Væri morgunógleði talið helsta heilsuvandamál þjóðarinnar... Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%... Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á kopp... Væru menn æstir í að binda sig... Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum... Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á kvöldin... Væru skjalatöskur notaðar sem bleyjugeymsla... Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims... Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina... Myndu konur stjórna heiminum... |
| Þú ert gestur nr. 17511 |