Ég heiti Almar Páll og ég er orðinn tvöfaldur stóri bróðir :)


Um mig:
Ég kom í heiminn 31. ágúst 2005 kl. 19:02.
Ég var 3910 grömm og 52 cm. með ljósa lokka og blá augu.
Auðvitað var það ég sem réð ferðinni þannig að ég ákvað að láta mömmu og pabba bíða í 6 daga fram yfir settan dag (svona aðeins til að gera þetta meira spennandi :)) Ekki þar fyrir utan var blessunin hún mamma búin að vera með verki í 18 tíma þegar ég loksins lét sjá mig.
Mamma og pabbi voru svo fegin að sjá mig og fá mig í hendurnar og þeim finnst ég auðvitað flottasti gaurinn í bænum.

Svo er ég sko orðinn stóri, stóri bróðir því ég eignaðist tvíburasystur 7.des. 2008.



Tvíburastelpurnar okkar

Sama lykilorð og hjá Almari




Annað:
Mamma heitir Jónína Kristín ('83) og pabbi heitir Lárus Páll ('77) og þau eru frá Borgarnesi. Við búum í fínu sætu íbúðinni okkar í Reykjavík. Mamma og pabbi eru búin að vera saman síðan 2001 og má sko aldeilis segja að ást þeirra hafi borið ávexti sem eru auðvitað ég og og systur mínar :)



MEYJAN
23. ágúst - 22. september

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því.Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.



MAMMA ER KONAN....
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!

ELSKU MAMMA MÍN

Ég elska þig svo mikið
og mig langar svo til að segja þér af hverju

Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig.
Þú ert besta mamman í öllum heiminum.
Ég á þér svo margt að þakka.
Ég er svo stoltur yfir því að vera sonur þinn.

Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda.
Þú lýsir upp líf mitt.
Frá þér streymir kærleikur og hlýja.
Þú ert skilningsrík
og viskubrunnur þinn er óþrjótandi.

Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna.
Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag
ef ég hefði ekki átt þig að.

Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda
og hvenær ég þarf uppörvun.
Þú þekkir mig svo vel.
Ég veit að til þín get ég alltaf leitað.

Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig.
Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut.

En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig.

ÞÚ ERT BEST

ÍMYND MÓÐUR

4 ára ~ Mamma mín getur allt!

8 ára ~ Mamma mín veit mikið! Mjög mikið!

12 ára ~ Mamma veit sko ekki allt!

14 ára ~ Auðvitað veit mamma ekki þetta heldur!

16 ára ~ Mamma? Hún er nú svo gamaldags eitthvað!

18 ára ~ Sú gamla? Hún er nú hálf úrelt!

25 ára ~ Jú, hún gæti vitað eitthvað um það!

35 ára ~ Fáum álit mömmu áður en við ákveðum þetta!

45 ára ~ Hvað ætli mömmu hefði fundist um þetta?

65 ára ~ Ég vildi að ég gæti rætt þetta við hana mömmu



PABBI ER MAÐURINN....
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI!!!

ELSKU PABBI MINN

Mig langar svo til að segja þér hve kær þú ert mér
og hve mikils virði þú ert í mínum augum.
Ég tel mig lánsamann að hafa fengið að kynnast þér.
Ég væri ekki sá sem ég er í dag nema vegna þín.

Þú hefur leitt mig í gegnum lífið
þurrkað tár mín og huggað mig á slæmum tímum.
Þú hefur stórt hjarta, fullt af visku.
Þú hefur hjálpað mér að ná draumum mínum.

Ég vildi að ég gæti gefið þér þann hæfileika að geta
séð sjálfan þig með augum annarra.
Þá myndir þú sjá hve sérstakur þú í rauninni ert.

Takk fyrir að vera til.
Takk fyrir að vera til staðar.
Takk fyrir að vera þú.

Ég elska þig pabbi

ELSKU MAMMA OG PABBI!!

Ég er með svo litlar hendur
að ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farið hægt svo að ég geti fylgt ykkur eftir.
Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,
ég skil það ekki.
Horfið á mig þegar ég er að tala við ykkur.
Þá veit ég að þið eruð að hlusta.
Ég er með svo viðkvæmar tilfinningar,
ekki skamma mig, leyfið mér að gera mistök,
án þess að mér finnist ég vitlaus.
Ekki búast við að myndin sem ég teikna,
eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið,
elskiði mig bara fyrir að reyna.
Munið að ég er barn, ekki litil fullorðin vera,
stundum skil ég ekki það sem þið segið.
Ég elska ykkur svo mikið, elskiði mig bara fyrir að vera ég.
Ekki fyrir það sem ég geri.





Breki Freyr

Nadía Líf

Adam

Róbert Elí

Kolbrá Kara

Víðir Freyr

Auðunn Andri

Heiðdís Emma og Tryggvi

Hildur Embla

Þorbjörn Egill

Dagur Orri

Matthías Hjörtur

Margrét Lilja

Hinrik Valur

Alexander Rósant

Borgarnesbörn

Úlfur Esra

NAFNIÐ MITT:

Almar

Sett saman af forliðnum "Álf" og viðliðnum "mar" sem merkir frægur.


Páll

Nafn þetta er biblíunafn, fengið af lýsingarorðinu "paulus" sem merkir lítill.

~Ekki vera feimin við að biðja um lykilorðið~


Þú ert gestur nr. 32753