Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Sara Jasmín
Sara Jasmín

Velkomin á síðuna mína!


Síðunni hefur verið læst og er lykilorðið nafnið á móður ömmu minni (allt með litlum stöfum) Hæ hæ ég heiti Sara Jasmín Sigurðardóttir og fæddist á sjúkrahúsinu á Selfossi þann 27. júní 2001 Kl:20:25. Mamma var reyndar eitthvað að reyna að fara í göngutúra og eitthvað svo ég kæmi fyrr því hún vildi endilega fá mig 21 júní því hún á afmæli þá...en ég kom sko bara þegar ég var reddý!! Þegar ég fæddist var ég 3750gr og 53cm, með kolsvart mikið hár og dökkblá augu og var MJÖG lík honum pabba mínum og án efa fallegasta barn í heimi!!;) Mamma mín heitir Drífa Björk Kristjánsdóttir og er frá Selfossi og pabbi minn heitir Sigurður Ívar Másson og er frá Geysi í Haukadal og ég er fyrsta og jafn framt elsta barn þeirra beggja...gaman af því!!!



Langaði bara að sýna ykkur þetta... http://www.kvikmynd.is/myndband.asp?id=1041 eg er ekkert smá búin að hlægja að þessu og er alltaf að biðja mömmu aftur og aftur að sýna mér þetta....







Nú eykst við okkar æskuhóp
ung er komin dama.
Sem að góður Guð oss skóp
og gefur henni frama.

(höf. l.afi Jón Fanndal)



Barn í krabbamerki

Barn í krabbamerkinu er feimið og viðkvæmt að eðlisfari og vill frekar leika inni í sínu herbergi heldur en að fara út og takast á við hina ?ógnvænlegu? veröld.

Þessi börn vilja ró og næði í kringum sig.
Þar sem barn í krabbanum heldur sig nálægt heimili sínu má búast við að það hangi svolítið í pilsfaldinum hjá mömmu fram eftir aldri.

Það getur þó verið kostur þar sem krabbinn elskar að hjálpa til. Móðureðli er ríkt í krabbabörnum og þau hugsa vel um yngri systkini sín ef þau eiga yngri systkini.

Þetta barn er fædd barnapía og er vanalega með öll börnin í hverfinu í eftirdragi og hefur ofan fyrir þeim með allskyns leikjum. Þetta barn býr yfir frábæru minni og því er nám og próf leikur einn.

Krabbinn getur stundum verið erfiður í skapinu og þá er best að leyfa honum að vera í friði. Stundum vorkennir barn í krabbanum sér rosalega og verður jafnvel svolítið latt en það varir yfirleitt stutt.

Oftast er voðalega gaman í kringum krabbann. Barn í krabbamerkinu er yfirleitt heimakært og er mikið fyrir fjölskyldulífið og er sá einstaklingur í fjölskyldunni sem finnst skemmtilegast í fjölskylduboðum og á ættarmótum.




Dansaðu eins og enginn sjái til þín
Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð(ur)
Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna
Dagurinn í dag er dagurinn þinn. Þú getur gert við hann hvað sem þú vilt Gærdaginn áttir þú. Honum getur þú ekki breytt. Um morgundaginn veist þú ekki neitt En daginn í dag átt þú. Gefðu honum allt sem þú megnar Svo einhver finni í kvöld að það er gott að þú ert til
A rosenbladt





Hvað er kærleikur???

Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur

Kærleikur, er hvert bros sem þú gefur

Kærleikur, er að faðma þann sem grætur

Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir

Kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast

Kærleikur, er að bera umhyggju fyrir öllu sem lifir

Kærleikur er að biðja fyrir öllum, góðum og slæmum

Kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra

Kærleikur er að dæma ekki

Kærleikur er ljósið sem býr í hjarta þínu......


Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér
Hallgrímur Pétursson


Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín svo blundi rótt.
Matthias Jochumsson


Auga mitt og augað þitt og þá fögru steina, mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér.
Vatnsenda Rósa


Enginn getur með nokkru móti vitað.
hvað lífið merkir,
hvað heimurinn merkir, hvað nokkuð merkir,
fyrr en hann hefur eignast barn og unnað því.
Og þá breytist gjörvallur heimurinn
og ekkert verður nokkru sinni eins og áður.
Lafcadio Hearn



Elsku mamma og pabbi


Ég hef svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.


Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar svo ég geti fylgt þér.


Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt, ég skil það ekki.


Horfðu á mig á meðan ég er að tala við þig, þá veit ég að þú ert að hlusta.


Ég hef viðkæmar tilfinningar, ekki vera alltaf að skamma mig.


Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.


Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna




ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ


Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma....
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku....
Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi....
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd....
Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði....
Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust....
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna....
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni....
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark....
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu....
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska....




Boðorðin 10- Fyrir foreldra....

1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau....

2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem ?krakkann".....

3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín.....

4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það.....

5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir.....

6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau.....

7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán.....

8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki.....

9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til......

10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði....







Boðorðin 10 fyrir ömmu og afa....

1. Þú skalt alltaf að vera að knúsa og kyssa barnabarnið þitt...


2. Þú skalt gefa því ótakmarkað af kökum...


3. Þú mátt ekki gleyma að kyssa á öll báttin....


4. Þú skalt alltaf vera í sambandi....


5. Þú skalt deila góðum sögum og minningum....


6. Þú skalt alltaf vera tilbúin með nammi skálina....


7. Þú skalt verðlauna góðar einkunnir og íþróttasigra.....


8. Þú skalt leifa því að vaka lengur en háttatími segir.....


9. Þú skalt vera örlát/ur á lof og hrós.....


10. Þú skalt segja því við hvert tækifæri sem gefst að þú elskir það....







Eitt dúllulegt...

Barnið snýr sér að Guði og segir: Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgunn, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?

Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig. En segðu mér, sagði barnið, hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þass að vera hamingjusamur.

Engill þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðuru hamingjusamur, sagði Guð.

En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala? Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkur tíma heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.

En hvað geri ég ef ég vil tala við þig, spurði barnið? Þá setur engillinn þinn hendur þínar saman og kennir þér að byðja, svaraði Guð.

Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig? Engill þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.

En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar. Engill þinn á eftir að segja þér frá mér og vísar þér veginn í áttina til mín en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.

Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði: Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn?

Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara: mömmu....



0 | 12.3.2010 01:50:47 #
Elsku fallega fjölskylda,ég heiti Linda og er amma mín Guðfinna Jónsdóttir,systir Ingu í Vatnsholti.Ég mátti til að kvitta hér undirog bið innilega vel að heilsa öllu mínu fallega og besta fólki,vonandi verðum við eitthvað í sambandi.kveðja Linda og fjölsk.
Linda Linnet Hilmarsdóttir | 0 | 19.2.2008 23:47:24 #
hææ sætasta frænka mín flottasta Birgittu haukdal síðan í heiminumn elska þið ógislega mikið bææææææææ kv. anna julia
Anna júlía | 0 | 11.1.2008 23:51:06 #

Jól, áramót ofl 2007

0 | 0 | 8.1.2008 21:59:13 #
  • Elsku Sara Jasmín ömmu og afastelpa. Nú erum við í Thailandi en erum alltaf að hugsa heim til ykkar elskurnar. Amma ætlar að kaupa eitthvað sætt handa barninu sínu..kannski Hello Kitty dót...það er allt fullt af því hér.. Söknum þín og kysstu alla frá okkur sætasta þín amma og afi lax
    amma og afi á laxabakka
    |
    20.11.2007 12:06:36
  • Elsku fallegasta Saran mín :) Rosalega ertu e-ð mikið fullkomlega sæt ....einstaklega gott eintak !!! Það er alltaf svo gaman að hitta þig sæta vinkona mín og ég hlakka til að sjá þig næst - þú ert svo mikið yndisbarn !! Knúsaðu mömmu sætu frá mér ! Ást,knús og kossar ;* Þín vinkona, Þóra
    Þóra
    |
    5.11.2007 14:30:37

Okt 2007

0 | 0 | 4.11.2007 22:42:57 #
  • hæ sara heimasiðan þin er fosa flott og rosa flottar mindir oki bææææææææææææ
    anna julia
    |
    31.10.2007 18:21:15
  • Hæhæ sæta frænka okkar Við kíkjum stundum á síðuna þína svona til að tékka hvort að mamsa þín sé nokkuð búin að skella inn nýjum myndum af þér. Karen biður rosa vel að heilsa þér Sara J. Biðjum að heilsa.... Dísa og Karen...
    Heiðdís Helga Antonsdóttir
    |
    0
    |
    22.10.2007 15:35:50
  • Elsku stóra stelpan hennar ommusín Þú ert svo góð og skemmtileg elskan mín og það er það besta sem ég veit að vera nálægt þér. Þú ert svo mikill heimspekingur og gullmoli þín Amma
    amma og afi á laxabakka
    |
    2.10.2007 21:31:29

Agúst 2007

0 | 0 | 22.9.2007 18:19:54 #
hæhæ sæta frænka mín! Ekki vissi ég fyrr að þú værir með svona fína síðu á netinu...mikið rosalega ertu orðin stór músin mín! Bara að byrja í skóla núna í lok mánaðarins! Bið að heilsa "gamla" settinu :) Knús & kram Aldís Guðmunds
Aldís Guðmundsdóttir | 0 | 2.8.2007 00:35:56 #
  • elsku sara min takk fyrir síðast það var í þínu frábæra afmælisboði það var svoooo gaman og vel heppnað þið eruð nátturulega bara vel heppnuð fjölskylda elska ykkur öll guð blessi ykkur amma langa
    nina langamma
    |
    31.7.2007 21:57:34
  • HÆÆHÆHÆHÆÆ SÆTASTA STELPA Í GEIMMMMMMMMI!!!!!!!!!MIKIÐ HEFUR VERIÐ GAMAN HJÁ ÞÉR Í AFMÆLINU! EKKERT SMÁ FLOTTIR LÍNUSAUTAR:)NÚ GETIÐ ÞÚ OG DARRI FARIÐ SAMAN Á SKAUTA. HLAKKA TIL AÐ SJÁ YKKUR NÆST ,,,,,,KISS KISS OG STÓRT KNÚSSSSSSSSSSSSSS
    Rakel VINKONA ÞÍN
    |
    26.7.2007 13:42:59
  • Elsku besta Saran mín mikið rosalega eru flottar myndirnar af þér. Til hamingju með að vera orðin svona stór og vera farin að hjóla með engum hjálparadekkjum...ekkert smá dugleg;-) Ástarkveðja Lóa frænka;-)
    Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir
    |
    0
    |
    25.7.2007 10:11:07

Afmælisveislan var svo haldin 1 júlí

0 | 0 | 24.7.2007 15:59:58 #

Tivolíferð

0 | 0 | 24.7.2007 15:07:05 #

6 ára afmælisdagurinn 27 Júní..

0 | 0 | 24.7.2007 13:44:13 #
  • Römbuðum hér inn og vildum skilja eftir okkur kveðju ;0) Mikið rosalega eru þetta flottar myndir af sætri stelpu ;0) Kv.Agnes,Freyja og Snorri
    Agnes,Freyja og Snorri
    |
    11.7.2007 00:25:07
  • Til hamingju með 6ára afmælið um daginn litla snúllu frænkan okkar. Mikið fannst okkur leiðinlegt að hafa ekki geta komist..... Kossar&knús frá karen frænku, Dísu og Palla
    Dísa og co...
    |
    3.7.2007 13:25:56