VELKOMIN Á HEIMASÍÐU OKKAR SÚPERSYSTKINANNA
Við heitum Daníel Hugi, Birta Dís og Kristján Máni

-Munið endilega eftir gestabókinni-



Um mig:

Ég, Daníel Hugi, fæddist á björtum sumarmorgni þann 9. júlí 2001 klukkan 8:45 á fæðingardeild Landspítalans, Hreiðrinu. Ég vó 4405 gr og var 54 sm en mamma gekk með mig í 39 vikur og 5 daga. Ég er í 4.E.S. í Lindaskóla og finnst svakalega gaman í skólanum. Ég æfi fótbolta með Breiðablik og er að læra á gítar í Tónsölum.



Lilypie 6th to 18th Ticker

Ég, Birta Dís , fæddist á fallegu en stormasömu vetrarkvöldi þann 29. desember 2004 klukkan 23:21 á fæðingardeild Landspítalans, sannkallað jólabarn. Ég vó 4275 gr og var 52 sm en mamma gekk með mig í 40 vikur og 4 daga. Ég er í 1.E.G. í Lindaskóla, æfi ballett í Ballettskóla Sigríðar Ármann og fimleika með Gerplu.



Lilypie 4th Birthday Ticker

Ég, Kristján Máni, fæddist á sólríku vorkvöldi þann 25.maí 2010 klukkan 19:30 á fæðingardeild Landspítalans. Ég var 4135 gr og 54 sm við fæðingu en mamma gekk með mig í 41 viku og 6 daga! Háralitur minn er kopargylltur og augun mín eru gráblá. Ég er algjör kelirófa, duglegur að hjala og er síbrosandi - alltaf í góðu skapi.




Annað:

Nöfnin okkar:



Daníel:
Nafn þetta er ættað úr hebresku og þýðir: ,,Drottinn er minn dómari"

Hugi:
Nafnið er leitt af nafnorðinu ,,hugur" sem merkir hugsun, áræðni.



Birta:
Ýmist talið að hér sé um að ræða íslenska orðið birta, - ljómi, eða þá að nafnið sé komið frá Norðurlöndum og sé leitt af nafninu Birgitta sem merkir hin háa.

Dís:
Nafn þetta merkir heilladís og er algengur viðliður.

Þú ert gestur nr. 37970