Í dag á litli strákurinn afmæli, orðin 3. ára 95,5 cm og 14 kíló, hvorki meira né minna :) Hann fékk stórann pakka í morgun en það var súpermarket/búðarborð og hillur þannig að nú er hægt að fara í búðarleik.

Morgunin byrjuðu þeir bræður samt að fá sér sceerios og svo var fengið sér popp og djús og svo afmælispakki. Jógúrt í hádeginu og lummur í kaffinu. Ekki slæmt en ég ætlaði bara að óska þér til hamingju með daginn Kristján minn :)

 

1.1.2010 | 16:14

Langt síðan síðast. Núna er maður víst bara fastur á Feisbook. En af okkur er það að frétta að við erum komin heim eftir sumarfríiið, leikskólinn byrjaður og vinnan.

Við gerum heilmargt í fríinu eins og liggja í leti, fara út að leika í garðinum, í Nauthólsvík, í Húsdýragarðinn og í keilu en myndavélinn gleymdist að fara með í það skiptið. Við fórum norður og vorum í ca. viku í sveitinni í þoku og rigningu fórum til Dalvíkur, heimsóttum nokkrar ömmur og afa fórum í dalinn fagra, Skíðadal og svor má ekki gleyma fiskideginum. En við sváfum í tjaldi út á lóð hjá afa og fannst strákunum það sko ekki leiðinlegt.

Þvi miður komumst við ekki yfir að gera helminginn af því sem við ætluðum að gera en svona er þetta ævinlega.

Við höfðum samt gaman sem er fyrir öllu, eða allavega sum okkar ;) Eiríkur fór í tannlæknistékk í dag og þar á bæ er allt gott, sem er gott. Kristján talar meira með hverjum deginum og verður meiri prakkari með hverjum deginum. Eiríkur Bogi er búin að vera frekar frjáls í sumar og frekur eftir því :) Annars erum við bara að bíða úrlausnar með hann og það hangir allt í lausu lofti hvort hann fái einhverja aðstoð eða ekki í vetur. Hann brilleraði svo á prófinu, enda tekið þvílíkum framförum drengurinn.

En vonandi á ég nú eftir að skrifa fjótt aftur en bless í bili.

 

13.8.2009 | 20:32

Í dag fóru piltarnir með pabba sínum í húsdýragarðinn. Það var sveita ferðin í ár í leikskólanum. Það var fengið sér pilsu og farið í lestina, skoðað dýrinn o.s.frv. Kristján mátti sko ekkert vera að því að leggja sig það var svo margt um að vera. Þannig hann lagði sig bara aðeins með pabba gamla þegar þeir komu heim.

Eiríkur Bogi sagði reyndar að Kristján hafi klappað hestinum en hann hafði ekki þorað því.. æææ litla dúllan. Mamman fékk bara að hvíla sig og setja í nokkrar þvottavélar meðan þeir skemmtu sér konunglega í húsdýragarðinum. Myndir koma síðar ;0)

Bestu kveðjur fjölskyldan í Grýtubakka

23.5.2009 | 22:19

Jæja þá eru páskarnir búnir. Bjarni kom rétt fyrir páskana og fór á páskadag þannig að páskunum á þessu heimili var bara flítt um einn dag. Þannig að við byrjuðum á laugardegi sem er svo sem ekkert slæt fynnst mér ;0) Eiríkur og Bjarni voru voðalega duglegir að fara saman út þannig að ég slepp ekkert við það að nú biður Eiríkur um að fá að fara einn út. Hann hefur fengið það einu sinni en þá varð maður að hafa augun með honum allan tíman, ég þori ekki öðru. Gað ekki farið út meðan Kristján svaf. En þetta gékk ágætlega bara, hann og Ali Hussen eru bara nokkuð góðir félagar, svona yfirleitt.

Það er núna æði á þessu heimili fyrir Dýrunum í Hálsaskógi á DVD, púsla og lesa bækur. Loksins loksins fynnst Eiríki bara gaman að lesa og láta lesa fyrir sig. Kristján er alltaf syngjandi, haha minnir mig pínu á sjálfa mig ;0) Fórum á Stælinn áðan, svona fyrirfram afmælismatur handa Guðna og meðan við vorum að borða stóð Kristján upp og byrjaði að syngja. Pínu finndið.

Annars er bara allt gott að frétta hjá okkur, nema það er eithvað ský yfir okkur,svona bilunarský og mér fynnst bara allt vera að bila. Ein hella á helluborðinu ónýt og auðvitað sú stærsta sem maður notar mest. Bíllin fékk endurskoðun í fyrsta skipti kostar öruglega um 50þús samtals að koma honum í gegnum skoðun. En svona er þetta bara.

Næst á dagskrá er að fá frí í lok mars til að komast norður um hvítasunnuna, hehe og sjá litlu lömbin og svona.

En við biðjum bara að heilsa. Bæjó

16.4.2009 | 21:29

Jæja búin að setja inn myndir og nú er það nýjustu sögurnar af fjölskyldunni. OK.

Eiríkur Bogi er að byrja hjá Iðjuþjálfa á föstudaginn nk. 13 mars. Loksins, loksins Þannig að hann fer tvisvar  í viku og einu sinni til sjúkraþjálfarans. Vonandi fer líka að koma að því að hann fái greiningu með talið svo hann geti byrjað sem fyrst í talþjálfun. En þetta er allt að þokast í rétta átt......

Kristján fær rör í fyrsta skipti núna nk. þriðjudag eða 17. mars og þá verða líka teknir nefkirtlarnir. Mikið var, þá vonandi upp úr því fer strákurinn að hressast en hann er meira og minna búin að vera veikur í 4 mánuði. Ég allavega bind miklar vonir með þessa aðgerð, samt pínu skrítið að láta litla barnið sitt í aðgerð, þótt þetta sé ekki stór aðgerð. Ég vorkenni fólki með langveik börn mjög mikið þessa stundina !!!

En annars er bara allt gott að frétta héðan, Kristján er farin að syngja og telja upp á þrem og komin með leikskólastæla á háu stigi eins og Eiríkur Bogi annars er Eiríkur Bogi mjög áhugasamur um að lita og föndra þessa dagana og hefur honum farið rosalega fram í reikningu. Það er komin sól og karl (ein kúla, hendur og fætur og andlitlið einhversstaðar) en þetta er stór framför einnig teiknaði hann löggubíl um daginn ótrúlega flottan miðað við hvað er stutt síðan hann fór af krassskeiðinu. Kristján er enn bara svo upptekin að fynnast þetta svo flott hjá sér að hann nær valla að teikna neitt. Hann gerið eitt strik og segjir svo "váá, váá" og þegar hann er búin að dást að strikinu getur hann þá loks gert annað. osfrv...

En nóg af okkur komið í bili..... Heyrumst seinna :0)

11.3.2009 | 21:18

Tölvan er aðeins biluð enþá en ég ætla reina setja myndir inn. Henni verður síðan rústað og allt sett upp á ný um helgina.

Eiríkur Bogi er svo mikill snilli. Hann fór inn á bað áðan til að pissa. Svo var drengurinn búin að vera eithvað verulega legni þannig að ég fór að athuga um hann. Þá var minn að þrífa klósettlokið með augnhreinsi. (en það var það eina sem hann náði í) Svo var hann að þurrka herlegheitin með klósettpappír. Aðeins að þrífa fyrir mömmu sína. hehe

20.1.2009 | 18:22

 

 

Krútlegast í heimi. Í kvöldmatnum vildi Kristján fá bréf (eldhúsbréf) þannig að hann fer og segjir svo hjálpa þannig að ég fer og hjálpa honum að rífa. Svo segjir hann bara takk og ég spyr hann hvað hann ætli að gera við bréfið, hvort hann hafi sullað eða þurfi að snýta sér. "ída" segjir hann og reynir að sníta sér sjálfur. Setur svo bréfið við nefið á Eiríki Boga og segjir "ída" hahaha svo dúllulegt

En annars segji ég bara Gleðileg jól öllsömul

23.12.2008 | 22:54

Jæja þá fer að stittast í jólin. Kristján er búin að vera lasinn í viku og Eiríkur Bogi í 3 daga. Skemmtileg jól þetta árið. Annars er allt gott að frétta svosem. Jólatréið kom upp í gær því ég er að vinna á morgun :0( Eiríkur Bogi var mjög duglegur að skreita jólatréið og beið spenntur eftir að fá að byrja, Kristján hafði sko engan áhuga á svoleiðis gaman að horfa og taka af en ekki meir. Nú vill Eiríkur fara að setja pakkana undir tréið, það þarf ekkert að bíða, ha er það!! Og ég sver í heyrði hann tala uppúr svefni í nótt " hohohó ég er jólasveinninn" ekkert smá krútlegt

og annað gullkorn frá Eiríki Boga. Mamma syngja tása,tása, tása eins og appelsínan (í ávaxtakörfunni) og ég bara ha? svo skildi ég hann. Þá seijir víst appelsínan "pósa,pósa,pósa" fyrir framan spegil. Hahaha.Ég reyndi svo bara að útskýra hvað "pósa" þýddi en það gékk eithvað erfiðlega. En svo varbara sungið hebbtú, hebbtú og hann var hvíti bananinn og mamma græni banani.

22.12.2008 | 22:07

Jæja!

Það helsta sem er að frétta á þessum bæ er að bræður tveir eru búnir að fá hlaupabólu. Ég fór til Frankfurt og það var rosa gaman. Ég hefði getað verið aðeins lengur og gert eithvað annað en búðarápa en þetta var bara ein helgi.

Eiríkur Bogi er byrjaður í sjúkraþjálfun tvisvar í viku. Ég vona að ummönunnarbæturnar fari að skilasér.

Kristján er orðin svo duglegur að púsla og tala. Nánast að maður sjái framfarir á hverjum degi. Alveg ótrúlegur. Apar svo heilmikið að Eiríki eða Boga eins og hann kallar hann. Kristján segjir stundum tvö orð saman, þótt óskýr séu. (Bubbi byggir er ekki legur " Bubbi" heldur "dibudi" eða "bubbidi" eins og Eiríkur Bogi segjir það)

Annars er allt fínt að frétta og miklu meira en nóg að gera 

26.11.2008 | 21:26

Jæja. Kristján fór í leikskólan í þessari viku og Eiríkur líka. Ætli hann fái ekki svo hlaupabóluna þegar ég fer út til Þýskalands en það eru aðeins 4 dagar í það. Vá hvað það er stutt maður. Ég er bara að átta mig á þessu.

Við fórum í sunnudagaskólan í morgun eins og vanalega. Kristján var samt eitthvað óvenju lítill núna. Yfirleitt vill hann taka meiri þátt. En báðum fannst svo gaman eins og alltaf. Í gær fórum við í grímubúningaafmæli hjá Tönju Líf sem býr í hinni blokkinni í götunni, hún bjó einu sinni í sama stigagangi og við. Þeir bræður voru sko báðir íþróttaálfurinn en ekki hvað og röðuðu í sig nammi ;0)

En það er allt gott að frétta af okkur í kreppunni, hefði samt viljað hafa þetta góðæri aðeins lengur, var ný búin að finna lygtina en svona er þetta.

Bless bless og ekkert stress

2.11.2008 | 14:08

Jæja þá er komið að því. Í fyrradag og gær var Eiríkur Bogi með ælupest en svo var það búið og hann fór í leikskólan í dag en þá var það Kristján sem var veikur. Hann byrjaði í morgun með 38,8 gráður og hélt því í dag auk þess að fá skemtileg útbrot sem nefnist hlaupabóla. Það er sem sagt að ganga í leikskólanum svona hár hiti og síðan hlaupabóla en minn áhvað að taka þetta bæði í einu. Þannig að ég bíð bara eftir því að Eiríkur fái útbrot líka.

Það er samt þá bara ágætt því þá er þetta bara búið.

Annars á Eiríkur panntaðann tíma á morgun hjá lækni sem vonandi getur gefið okkur vottorð svo við getum athugað hvort við fáum umönnunarbætur. Það yrði nú ekki slæmt svona á síðustu og verstu tímum.

Annars er allt gott að frétta, sunnudagaskólinn á sunnudögum og þeim fynnst svo gaman.

Framkvæmdirnar hér heima að verða búnar, eða svona næstum því. Allavega veggurinn komin upp og skáparnir og þeir Guðni og Bjarni ætla klára síðustu tvær hurðarnar á morgun.

Kristján er hættur með pela og farinn úr rimlarúminu fyrir svolitlu síðan, þannig að núna þá eru þeir bræður settir í rúmið farið með bænir og kisst góða nótt og svo fara þeir að sofa og yfir leitt ekkert vesen, hvor með sinn íþróttaálf hjá sér. Þeir eru auðvitað enn saman í herbergi, voða fjör. En ætli þetta séu ekki nægar fréttir í bili. Vonandi koma svo aðrar fréttir bráðum, kveðja Ásta 

21.10.2008 | 22:23

Það er aldeilis langt síðan maður skrifaði eithvað síðast. Það er víst yfirleitt nóg að gera. En sumarið er víst búið og farið að snjóa. Þá er bara að byrja telja niður þangað til ég (Ásta) fer til Þýskalands og svo koma blessuð jólin.

En ég ætlaði samt að segja ykkur frá því að síðasta þriðjudag (föstudagur í dag) datt Eiríkur Bogi ílla úti í leikskólanum og efrivörinn bólgnaði, mar á kinn og blæddi úr tannholdinu. Þá meina ég alveg öðrumegin uppi. Það heyrðist víst ekki múkk í drengnum. Hann kom svo bara alblóðugur til deildastjórans (Ástu). Ég er farin að hafa áhyggjur af þessu. Þetta er í þriðja skiptið sem kemur eithvað blóð að viti og aldrei heyrist neitt í honum. En þegar þegar það er eithvað smotterí þá getur nú minn verið pirraður og sagt áá.

En þetta er svona. Ég vonast eftir að fá svo ummönnunarbætur fyrir drengin. Mér skilst ég eiga rétt á því. Búin að sækja um, það á bara eftir að senda greinagerð til TR og þá er þetta komið. Gaman af því svona á verstu tímum.

Ég veit það ekki en ég hef áhyggjur í augnablikinu því maður veit ekki hvort maður fái bensín í næsta eða þarnæsta mánuði eða hvað. Ég get nú alveg lifað af þótt það vanti einhverjar vörur í búðina en ég kemst ekki í vinnuna nema hafa bensín á bílnum.

Reyndar er miðstöðin biluð eins og stendur í bílnum. Voða gaman. Við ætlum að kaupa mótor á partasölu því nýr kostar víst 75 þús. kall. Mér þikir það heldur dýrt en svona er þetta bara. Ég vonast svo að ég geti sett inn myndir um helgina. Bless í bili 

3.10.2008 | 22:42

Jæja já. Þetta var sko aldeilis góður bíltúr. Um hádegi var lagt af stað og ferðinni heitið á Sólheima, Grímsnesi. Guðni var búin að kíkja á netinu hvar þetta væri og svona. Svo keyrum við í gegnum Hveragerði og Selfoss en eftir talsverðan tíma áttum við nú okkur á því að við höfum tekið vitlausa beyju enhversstaðar þannig að það var stoppað við afleggjarann að galtalæk og hringt á Sólheima til að þeir geti nú kannski sagt okkur leiðina. Jújú laungu búin að keyra framhjá afleggjaranum. OK þá var bara snúið við. Fínn aukabíltúr. Síðan römpuðum við nú á þetta en við vorum ekki búin að stoppa lengi á Sólheimum þegar fór að rigna. Gat verið hver pantaði þetta veður eiginlega !!! En nóg með það þannig að við drifum okkur bara í sundlaugina í íþróttaheimilinu Borg, voða gaman. En þá var svengdin eithvað farin að segja til sín þannig að við fórum smá rúnt á Selfoss á KFC og snæddum þar kvöldverð.

Síðan var bara brunað í bæin ( haha brunað það var svo mikil umferð að við keyrðum á 80, 50, 60, 80, 20 í dálítin tíma þangað til við komumst í bæin) það var aldrei hægt að fara uppfyrir 80, bara gaman að því, er það ekki

Annars vorum við mikið til í að flytja á Selfoss, það er öruglega mjög gott að búa þar og þar er allt til alls. Guðni mundi fíla sig í botn en ég gæti það ekki af einni ástæðu, jú ég þekki engan þar, engir ættingjar eða neitt. Lengra að fara norður, eins og það sé ekki nóg sammt þannig að ég er hugs´um að hætta bara við að flytja nema ég fengi bara alla fjölskylduna bara með mér ;0)

En þetta var skemmtileg ferð og við eigum ábyggilega eftir að fara á svipaðar slóðir aftur og skoða meira og hafa með okkur góða veðrið, nesti og nýja skó 

20.7.2008 | 20:16

Jæja langt síðan síðast. Ég vil byrja á því að óska ömmu Boggu til hamingju með 75 ára afmælið í gær og Hirti Einari til hamingju með 4ra ára afmælið í dag.

Það er búið að bralla heil mikið. Kristján er orðin allan daginn í leikskólanum og gengur bara vel. Eignuðumst lítinn frænda þann 7. júní. Og margt fleira skemmtilegt. Sumarhátíð í leikskólanum. Eiríkur Bogi fór í húsdýragarðinn með  leikskólanum. Og svo margt fleira. Fjölskylduferð í Heiðmörk, mín fjölskylda. Og svo vinna, vinna og vinna við útsölu....úúú.

Eiríkur Bogi er einnig búin að læra það að pabbi er að vinna á næturnar. Það kemur hjá honum "pabbi, vinna, nótt" og ég já pabbi er að vinna í nótt. Ég syng oft fyrir þá meðan við burstum tennurnar og þá fær Eiríkur Bogi að velja lögin og stundum vill hann syngja " pabbi vinna nótt" En ég er með Baggalútslagið "pabbi þarf að vinna í nótt" sem símhringingu á gemsanum. Fannst það frekar viðeigandi ;0)

Og svo er bara brúðkaup ekki núna heldur næstu helgi, ég er ekkert smá spennt Rósa og er mikið að velta fyrir mér í hverju ég á að vera.. það er mikill hausverkur 

3.7.2008 | 21:41

Jæja þá er búið að halda uppá 3ja ára afmæli. Það mætu um 33 gestir og Eiríkur Bogi fékk svo mikið af dóti. Takk fyrir það allir. Hann fékk dublo byggingar krana og gröfu með húsi frá foreldronum. Hann fékk einnig í afmælisgjöf latabæjarbuff og 1000 kr. Svo fékk hann kex, frisbidisk3 sápukúlubox, 3 vatnsbysur, 2bolta, 2 peysur, nærboli, rútu, kastala, æknadót, tomma og vini dublo lest, spiderman púða, risaeðlur og öruglega fullt sem ég er að gleyma. Þannig að þeir bræður eru bara inn í herbergi að leika = Eiríkur Bogi er að leika sjálfur :0) spurning hvað það endist lengi....

En um daginn labbaði Eiríkur Bogi sjálfur í sandkassan í leikskólanum, sem er stórt skref. Hann finnur neflilega öryggi í  því að hanga bara með starfafólkinu, þannig að hann er bara þar og þær eiga helst að leiða hann, þannig að þetta er rosa fínt

25.5.2008 | 08:12



janúar '10 | ágúst '09 | maí '09 | apríl '09 | mars '09 | janúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | október '08 | júlí '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júlí '06 | júní '06 | maí '06 | apríl '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06 | desember '05 | nóvember '05 | október '05 | september '05 | ágúst '05 | júlí '05 | júní '05 | maí '05