Damörk 09.
Sylvía Rán var í baði og var mikið að spjalla við þann sem var í þykjustunnimeð henni.
"ég er búin að segja þér að þú þarft ekki að vera hræddur við dýrin hérna í sveitinni, fáðu þér bara Gevalia kaffi og þá verðuru rólegur"
0 |
31.7.2009 10:31:01
#
09.06.090 | 11.6.2009 20:56:34 #
Þegar Sylvía Rán kom heim úr leikskólanum talaði hún mikið um að það hefðu verið tveir menn að slást í garðinum í leikskólanum. Mamman ákvað að spyrja fóstrurnar nánar og kom það í ljós að það voru tveir menn að slá garðinn :)
-
Flottar myndir af flottum vinkonum..svo sætar:):) sjáumst fljótlega, knús knús frá Siglóamma Biddý|26.5.2009 18:39:02
-
JÆJA ELSKUR. Núna er það að duga eða drepast. Nú hljóta allar pestir að vera í sumarfríi!? Hittingur? kv. Liðið í EggertsgötuKolbrún Ýrr Bjarnadóttir|23.5.2009 23:30:51
-
Alltaf jafn sæt,elsku ömmusnúllan mín, hlakka til að sjá þig og vera með þér um sjómannahelgina koss og knús frá ömmuAmma Biddý|20.5.2009 22:56:40
20.05.09
Mamman var að skera lauk og tárin láku niður kinnarnar, Sylvía Rán var alveg miður sín og gaf henni stórt knús. Þegar tárin héldu áfram að leka sagði hún:
"mamma ég verð að hringja í pabba og byðja hann að koma og knúsa þig"
0 |
20.5.2009 21:34:18
#
14.05.09
Sylvía Rán og mamma voru í göngutúr og Sylvía Rán var alltaf að tala um einhvern heldung. Síðan sáum við býflugu og Sylvía Rán fór að tala um að hún gæti stungið ef maður myndi ekki passa sig.. Síðan kom:
"mamma manstu í Danmörku þegar heldungurinn stakk mig" (geitungur)
0 |
15.5.2009 21:17:07
#
Mamman var að segja Sylvíu Rán hvað fjölskyldan ætlaði að gera daginn eftir og þá svaraði Sylvía Rán:
"ó mæ gad mamma hvað ertu að meina?"
0 |
11.5.2009 21:52:25
#
Sætaaaamúúús! Sjáumst vonandi fyrr en síðar :) kv. fjölskyldan í EggertsgötuKolbrún Ýrr Bjarnadóttir | 0 | 7.5.2009 21:15:01 #
5.maí. 2009
Mamman á heimilinu var að elda mat þegar Sylvía Rán kemur og gefur henni knús og kyssir hana á kinnina og segir svo
"mamma ég elska þegar við erum að prinsessast"
0 |
5.5.2009 20:56:37
#
Flottar nýju myndirnar :) Sylvía Rán er alltaf jafn sæt. Það er nú fátt sem toppar gullkornin hennar- bara snilld! :DOddný og Rakel Elísa | 0 | 2.5.2009 13:39:15 #
Hæ sæta,, flottar myndir,skondin fjölskylda strætó :) hlakka til að sjá þig og ykkur á morgun kv.amma Biddý | 0 | 22.4.2009 09:49:31 #
Langsætust og ótrúlega dugleg íþróttapæja! ;) alltaf gaman að skoða myndirnar þínar, stórt knús og kossar Eva :*Eva Þórh. | 0 | 6.4.2009 12:10:47 #
31.mars. 2009
Sylvía Rán var í leikskólanum og spyr Guðrúnu fóstruna sína hvað bókin sem hún sé með heiti, Guðrún segir henni að bókin heiti Mamma er best. Þá segir Sylvía Rán:
"mamma mín er sko ekki best, Liverpool eru bestir"
0 |
31.3.2009 19:39:24
#





