|
| Við erum Hafdís Erna 5 ára og Viktor Kári 2 ára |
|
Um mig:
Hafdís Erna fæddist á Landspítalanum, nánar tiltekið á Hreiðrinu, þann 19. október 2005 kl. 06:55. Hún var ekkert að hangsa við hlutina heldur dreif sig í heiminn og það á réttum degi auðvitað. Það liðu ekki nema sjö og hálfur tími frá því að vatnið fór og fyrstu verkir byrjuðu og þar til hún var komin í heiminn. Hún mældist 3520 gr. og 52 cm og var hin sprækasta.
Viktor Kári fæddist á fæðingardeild Landspítalans 10. september 2008, kl. 08:00. Hann kom í heiminn með sömu látum og systir sín og meira að segja klukkutíma skemur. Hann vó 3855 gr. og var 51,5 cm langur. Mamma heitir Elín Gíslína Steindórsdóttir (´81) og pabbi heitir Hafsteinn Róbertsson ('74). Við búum í Hafnarfirðinum ásamt sætu kisunum okkar þeim Snotru og Simba.
Ath. Myndasíðan er læst, sendið tölvupóst á elinst81@hotmail.com ef þið viljið sjá myndirnar.
|
|
|
|
Annað:
VOGIN
23. september - 23. október Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: ?Hvað finnst þér?? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. MEYJAN 23. ágúst - 22. september Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra. ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma. Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku. Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi. Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd. Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði. Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust. Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna. Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni. Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark. Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu. Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska. |
| Þú ert gestur nr. 19814 |