Velkomin, ég heiti Fannar Berg Skúlason og er algjör engill


Um mig:
Ég fæddist þann 7. júni 2005 á Háskólasjúkrahúsinu í Odense, kl 06.05. Ég var tekinn með keisara eins og systur mínar tvær og gekk það mjög vel. Ég var 3040g og 52cm sem þótti nokkuð gott miðað við að ég kom 13 dögum fyrir tímann.
Mamma og pabbi ákváðu að gefa mér strax þetta fallega nafn, Fannar Berg en svo var ég skírður á Íslandi, ásamt frændum mínum Agli Helga og Stefáni Boga, þegar við vorum þar í desember.


Mamma heitir Þórhildur og pabbi Skúli og við búum í Odense í Danmörku. Ég á tvær stórar systur sem heita Arna Rún og Rakel Ösp og þær eru alveg rosalga góðar við mig. Svo á ég ömmu og afa á Akureyri, þau Skúla og Guðrúnu og ömmu á Breiðdalsvík, hana Soffíu. Eina langömmu á ég sem býr á Egilsstöðum og heitir Þórhildur og auk þess er ég svo heppinn að eiga fullt af skemmtilegum frænkum og frændum út um allt.







Annað:



Systur mínar Benjamín Breki Karítas Kristel Frændurnir flottu
Þú ert gestur nr. 9492