Ég heiti Kristin María og er 8 ára, þetta er síðan mín og tvíburabræðra minna.


Um mig:


Ég heiti Kristín María og er 8 ára.
Ég er fædd í Reykjavík 6. júlí 2000. Mamma mín heitir Fanney og fóstur Pabbi minn Guðmundur. Pabbi minn heitir Sigurjón. Ég er í Hlíðaskóla og finnst mjög gaman. Ég á tvíburabræður sem fæddust 28.janúar, þeir heita Andri Már og Bjarni Snær. Lykilorðið er gælunafn ömmu minnar.





Annað:




Elsku mamma


Ég elska þig svo mikið
og mig langar svo til að segja þér af hverju


Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig
Þú ert besta mamman í öllum heiminum
Ég á þér svo margt að þakka
Ég er svo stolt yfir því að vera dóttir þín


Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda
Þú lýsir upp líf mitt
Frá þér streymir kærleikur og hlýja
Þú ert skilningsrík
og viskubrunnur þinn er óþrjótandi


Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna
Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag
ef ég hefði ekki átt þig að


Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda
og hvenær ég þarf uppörvun
Þú þekkir mig svo vel
Ég veit að til þín get ég alltaf leitað


Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig
Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut


En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig


ÞÚ ERT BEST









Bara í kvöld....

-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...

-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...

-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...

-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...

-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig.







Isabel Karin frænka


Kamilla Kara frænka


Embla Brink frænka








Þú ert gestur nr. 3687