| Velkomin á heimasíðu Emmu, Aþenu og Daníels |
| Við heitum Emilíanna Rut Mikaelsdóttir, Aþena Þóra Mikaelsdóttir og Daníel Tal Mikaelsson. |
|
|
Um okkur:
****Mamma er búin að breyta lykilorðinu, ekki hika við að biðja um það, hún vill bara fylgjast með hverjir eru að skoða.*****
Við komum í heiminn 5. september 2002, kl 11:50 og 12:02. Við vorum aðeins að flýta okkur þannig að við komum 8 vikum fyrir tímann. Emilíanna Rut var 1680 gr og 45 cm og Aþena Þóra var 1280 gr og 39 cm. Við þurftum að fara strax á gjörgæslu í hitakassa og Emilíanna þurfti að fara í öndurnarvél, því lungum hennar voru ekki nógu þroskuð. En það var ekki lengi sem við vorum á gjörgæslu, því aðeins 4 daga gamlar fengum við að fara á vaxtaræktina þar sem við vorum í fríu fæði og húsnæði. En þar þurftum við bara að vera duglegar að drekka og stækka svo við gætum farið heim. Og þann 4. október rann sá dagur upp, við fengum að fara heim með mömmu og pabba, en Emilíanna var aðeins 2095 gr og 46,5cm og Aþena 1730 gr og 44 cm og því alveg örugglega með þeim minnstu börnum sem hafa fengið að fara heim af vökudeildinni. Síðan þá erum við búnar að vera alveg svakalega duglegar að stækka, og í dag erum við orðnar 5 ára og erum mjög aktívar. Litli bróðir okkar fæddist svo 9. maí 2008 kl 06:10 í Hreiðrinu eftir 38 vikur og 6 daga í mallanum hennar mömsu. Hann fékk nafnið Daníel Tal. Mamma okkar heitir Þórunn Eva Bogadóttir og pabbi okkar heitir Mikael Tal Grétarsson. |
|
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 14286 |