Meðganga Eiríks

6 desember 2006 - Mömmu farið að gruna að hún væri ólétt og pissaði á prik og kom skýr kross sem sagði mömmu að ég væri í mallanum hennar. Mömmu og pabba brá mikið en samt rosalega hamingjusöm með fréttirnar. útreikningar af ljosmodir.is frá seinustu blæðingum segja að mamma sé gegnin 5 vikur og 6 daga.

9. desember 2006 - Mamma tekur annað pissutest til að vera viss og kom það jákvætt líka. Langamma fékk að vita sama dag. 6 vikur og 2 dagar.

18. desember 2006 - Mamma fer til læknis til að fá staðfestingu og láta taka blóð þar sem hún var svo blóð lítil þegar hún gekk með systur mína.  Fengum fljótt úr rannsóknunum um að mömmu vantaði töluvert af járni og því byrjaði hún strax að taka járn. Ógleði var þá á byrjunarstigi. 7 vikur og 4 dagar.

24. desember 2006 - Mamma og pabbi segja verðandi ömmum og öfum frá komu minni. Annars er það hernaðarleyndó enþá. 8 vikur og 3 dagar.

Jólin í heild sinni voru sæmileg, mamma var með mikla ógleði og orkulítil, en hafði af öll jólaboðin.

16. janúar 2007 - Mamma og pabbi fara í fyrstu mæðraskoðun hjá Sólveigu í efra-breiðholti þar sem mömmu og pabba langði ekki að þetta fréttist strax í grundó. Fengu að heyra þennan flotta hjartslátt 160 slög. Mamma með fínan blóðþristing og allt leit vel út. Mamma fór í blóðprufu og á að halda áfram að taka járn. Heilsan hjá mömmu enþá slæm. Ógleðin hins vegar að minka en mikið listarleysi og okruleysi. 11 vikur og 5 dagar.

Á 13 viku fer mamma að fá mikinn hausverk, henni ráðlagt að drekka mikið og slaka á.

2. febrúar 2007 - Mamma fékk ofnæmi fyrir kaktus og þrfti að fá krem, jafnaði sig fljótt. Mamma enþá svoldið þreytt og hausverkur enþá nánast stöðugur. Mamma líka farin að fá verk í grind. 14 vikur og 1 dagur

15. febrúar 2007. - Mamma búin að vera nokkuð hress, búin að gera helling heima s.s mála, taka til í kompu og þrífa. Mikið þreytt í gær en góð í dag. Mæðraskoðun númer 1 í Grundarfirði hjá Hildi. Mikið spjallað og aðalega reynt að koma pabba í skilning um komandi tíma. Góð skoðun. Fínn hjartsláttur 13*13*13 á 5 sec = 156 á mín. Ljósan segir þetta stelpulegan hjartslátt. Hildur með grun um að mamma sé með grindargliðnun og segir henni að fara varlega. Mamma enþá ekki viss hvort kynið ég er. Pabba er alveg sama. 16 vikur

22. Febrúar 2007. - Mamma og pabbi fara til Tenerife á Kanarí í viku. 17 vikur.

1. Mars 2007. - Mamma og pabbi koma heima frá Tenerife, ferðin var æðisleg. Flugið tók svoldið á og ég lét mömmu aðeins finna fyrir mér. Fyrstu dagarnir úti voru slæmir fyrir mömmu í grindinni en svo var hún fín. 18 vikur

8. mars 2007. - Mamma fór í viðtal við vikuna í sambandi við V-daginn. Ég let svoldið fara fyrir mér þennan dag og mamma viss um að þetta hafi verið hreyfingar og að ég væri að hjálpa henni í gegnum viðtalið. Mamma búin að vera nokkuð hress fyrir utan hvað hún er með litla orku. Leggur sig alveg einu sinni á dag o gfer snemma að sofa. Ég trúlega að stækka mikið núna. Pabbi varla sér mömmu, hún er alltaf sofandi. 19 vikur

12. Mars 2007. - Fengum tíma í sónar 22 mars. Lítur út fyrir að pabbi komist ekki með þar sem hann verður á sjónum. 19 vikur og 4 dagar

21. mars 2007 - Fórum í sónar, mamma og pabbi fegnu að sjá mig sem þeim fannst alveg æði. Mömmu finnst ég vera stærri en stóra systir mín var þegar hún var inní henni. Allt kom rosalega vel út í sónar. Mér var seinkað um heila viku uppá dag, væntanlegur fæðingardagur minn er því 9. águst og mamma er því gengin 19 vikur og 6 daga í dag.

12. apríl 2007 - Mömmu búið að lífa mjög vel, búin að vera á fullu yfir páskana og fermingu hjá Óttari móðurbróður mínum. Mamma er sko svo sannalega farin að finna mig sparka og nú er bara happa glappa hvort pabbi finni það. 23 vikur.

16. april 2007 - Mamma fór í mæðraskoðun, kom allt rosalega vel út, fínn hjartsláttur en mamma búin að þyngjast svoldið mikið en hún er samt að passa sig rosa vel. Hildur ljósa vildi taka blóð þar sem mömmu klæjar svoldið í bumbuna og brjóstin sem gæti þýtt að lifrin eru ekki að starfa nógu vel. Fer í blóðprufu á morgun. 24 vikur og 4 dagar.

17. apríl 2007 - Mamma fór í blóðprufu til að ath með lifrina.

10. maí 2007 - Hildur ljósa hringdi til að athuga hvernig kláðinn væri sem var búin að minka töluvert, en hún sá að e-ð var ekki allt með feldu í lifrinni en samt ekki neitt til að hafa áhyggur af. Vill bara fylgjast með mömmu. Mamma byrjaði að taka fljótandi járn ofan í appelsínudjús og finnur fyrir rosa mun, mun hressari og ekki alltaf svona þreytt. Mömmu búið að líða vel fyrir utan bakið en það er mjög slæmt á köflum og mamma byrjuð hjá sjúkraþjálfa sem lætur hana gera æfingar til styrkja bakið og svo nuddar hún einu sinni í viku. Mömmu farið að gruna smá búg en samt ekki komið þá það mikið að það sé farið sjást. 27 vikur og 3 dagar. 

18. Júní 2007 - Mömmu bara búið að líða vel, tíminn búinn að líða mjög hratt. Mamma farin að finna svoldið til í grindinni seinnipartinn en það er sennillega útaf því hún er á fullu að bardúsa e-ð allan daginn. Fórum í mæðraskoðun í dag. Eyþór móðurbróður minn kom með í stað pabba þar sem hann var útá sjó. Fengum góða skoðun. Hjartslátturinn aðeins hægari en búin að vera og eins blóðþrystingurinn lægri hjá mömmu. Ljósan sagði að það væri nú sennilega bara því ég væri sofandi. Við förum svo í 34 vikna sónar á Akranesi á mánudaginn. Mömmu og pabba hlakkar rosalega mikið til að sjá mig orðin svona stór. 32vikur og 4dagar. 

21- 24 júní  2007 - Mamma, pabbi og Kolbrún systir mín fóru með Eyda móðurbróðir á Blönduós á fótbotlamót. Við sváfum öll í tjaldi og mamma bara vel hress eftir útlileguna.

26. júní 2007 - Við mamma og pabbi fórum í vaxtarsónar. Ég er orðin svo stór að mamma og pabbi sáu ekki mikið af mér nema bara höfuðið og svo hrygginn. Eða það er svona það eina sem þau skildu. Svo sáu þau naflastrenginn minn og mældi læknirinn flæðið í honum eins hjartsláttinn minn. Allt saman kom þetta vel út. Læknirinn vill meina að ég sé u.þ.b 9% stærri en normalt fóstur. Pabbi var rosalega ánægður með það. Mamma fékk smá kvíðahnút þar jú hún þarf að koma mér út ;) 33 vikur og 4 dagar.

29 júní - 1 júlí 2007 - Mamma, pabbi og Kolbrún fóru í útilegu á Varmaland með Kollu, Gunnu og Hugrún Hönnu ásamt fleirri vinum Kollu og Gunnu. Rosalega gaman og mamma bara furðu hress ;)

6 júlí 2007 - Pabbi minn á afmæli í dag. Hann kom óvænt heim af sjónum. Við mamma og Kolbrún vorum rosalega ánægð með það. En pabbi varð svo bara lasin greyið kallinn og lá bara í rúminu þar til hann fór aftur útá sjó daginn eftir. Það verður bara betra þegar hann kemur heim næst ;) Mamma búin að vera dunda hitt og þetta við heimilið. Henni líður bara merkilega vel. 35 vikur og einn dagur.

9. júlí 2007 - Mamma fór í mæðraskoðun í dag. Allt kom rosa vel út nema að hún er komin með þvagfærasýkingu en hún hafði sko ekki hugmynd um það þar sem eina sem hún fann fyrir var að vera alltaf pissandi. Bumban búin að stækka um 3 cm síðan seinast og er því 36 cm núna. Mamma þyngdist ekki um nema hálf kg sem er bara fínt þar sem hún bætti vel á sig á fyrrihlutanum ;) fínn blóðþrystingur og rosa fastur og góður hjartsláttur. Ég er ekki alveg búin að skorða mig en er sko alveg komin vel ofan í grindina en ekki fastur/föst. Mamma á að taka lyf við sýkingunni og svo koma með piss í glasi eftir 10 daga. Mamma á svo að mæta í 37 vikna skoðun á næsta mánudag. Núna fer hún að hitta ljósuna einu sinni í viku. En hún Hildur ljósan mín er farin í frí og er því Dagný að skoða og fylgjast með mömmu núna ;) 35 vikur og 4 dagar.

18 júlí 2007 - Fórum í mæðraskoðun í dag. Allt kom rosalega vel, nema það eru 3 plúsar í þvaginu sem þýðir að það er sennilega enþá sýking en mamma hætti að taka lyfið því hún fékk svo mikla aukaverkanir af því. Núna er ég búin að skorða mig og þá er ekkert annað en að safna orku í komandi átök. 36 vikur og 6 dagar

25 júlí 2007 - Mamma fór í mæðraskoðun í dag og pabbi kom líka með. Allt kom vel út að vanda og ekkert í þvaginu sem er bara gott. Mamma er farin að þreytast aðeins og eru næturnar ekki eins ljúfar og þær voru þrátt fyrir að pabbi sé komin heim. Ég var með þennan fína taktgóða hjartslátt og var bumban búin að stækka um rúmlega 2 cm. Ég ætla bara ekki að hætta að stækka. Ég verð allavega e-ð aðeins stærri en hún Kolbrún systir mín var. Annars erum við búin að vera á ferðalagi seinustu viku, komum heim seint í gær og vorum við öll 4 rosa fegin. Pabbi er komin heim núna alveg þar til ég fæðist og verður svo mánuð heima eftir að ég fæðist ef ég læt ekki bíð mikið eftir mér ;) 37 vikur og 6 dagar.