VELKOMIN
Ég heiti Laufey Helga



Um mig:
Mamma og pabbi ákváðu að læsa síðunni okkar og lykilorðið er bæjarnafnið á sveitabænum okkar ef þið munið ekki hvað það er hafið þá bara sambandi í e-maili... ;o)


Hæ, hæ. Ég heiti Laufey Helga Helgadóttir og ég er fædd 3. júní árið 2001 klukkan 21:40. Fæðingin mín gekk eins og í sögu, ég var bara 7 tíma í heiminn. Ég var 49 cm og 3165 gr með blá augu og dökkt hár. Ég kom heim af sjúkrahúsinu strax daginn eftir og hef dafnað og þroskast vel síðan.
Mamma mín heitir Ragnheiður Ósk Guðmundsdóttir og kærastinn hennar heitir Guðmann Unnsteinsson. Við búum á sveitabæ rétt fyrir utan Flúðir og uni ég mér vel þar. Ég er í Flúðaskóla og er ég rosalega ánæð þar og stend mig alveg svakalega vel ;o) Ég á eina systir sem ég er rosalega dugleg að leika við og passa, hún heitir Valdís Una og er 2. ára.

Pabbi minn heitir Helgi Jóhannesson og kærastan hans heitir Freyja Rut. og eiga þau bráðum von á barni og er ég rosalega spennt að verða stóra systir aftur ;o)






Nafnið mitt mitt merkir:

Laufey: Nafn þetta er Myndað af nafnorðinu "Lauf" og viðliðinum "Ey" sem merkir HAMINGJA, -HEPPNI.

Helga: Nafn þetta er komið af lýsingarorðinu HEILAGUR.









Elsku yndislega dóttir mín.


Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.
En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.
Mig langar til að segja þér hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.
Þú ert mér allt.
Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.
Hamingjan mín hófst með komu þinni inn í þennan heim.
Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt,
og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.
Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.
Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.
Ég reyni að meta þig að verðleikum.
Þú hefur kennt mér svo margt um lífið,
sem ég annars hefði farið á mis við.
Hvar væri ég án þín?
Ég elska þig elsku dóttir mín,
nú og að eilífu.








Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.Barnið snýr sér að Guði og segir:

Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?

Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.

En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?

Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.

En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?

Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.

En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?

Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.

Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?

Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.

En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?

Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.

Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:

Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?

Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hann bara ,,mömmu"











Bara í dag....

-ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast
og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...



-ætla ég að leyfa mér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag...

-ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu...

-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...

-ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt...

-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur...

-ælta ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...

-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór...

-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...

-ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki
hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...





Annað:
Ég er í 1.bekk í Flúðaskóla og stend mig rosalega vel þar... Svo er ég að æfa fimleika og er ekkert smá dugleg í að fara í handahlaup ;o) En takk fyrir innlitið og endilega kvittaðu fyrir heimsóknina, mér finnst svo gaman þegar eg veit hverjir kíkja í heimsókn til mín ;o) Takk fyrir og hafið þið það gott :-*




Bara Í Kvöld....

-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...

-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...

-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...

-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...

-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig.

Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín vegna veikinda eða slysa og mæðra sem dvelja á sjúkrahúsum með börnum sínum og berjast fyrir lífi þeirra. Ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt... ...nema annan dag með

þér...












Börnin læra af uppeldinu.


Barn sem elst við gagnrýni Barn sem elst upp við hrós

lærir að dæma aðra

Barn sem elst við óvild lærir að berjast

Barn sem elst við háð lærir feimni

Barn sem elst upp við skömm lærir sektarkennd

Barn sem elst viðhvatningu lærir sjálfstraust

Barn sem elst upp við hrós lærir þakklæti

Barn sem elst upp við sanngirni lærir réttlæti

Barn sem elst upp við öryggi lærir trúnað

Barn sem elst upp við virðingu lærir að meta sjálft sig rétt

Barn sem elst upp við viðurkenningu lærir að leita kærleikans í heiminum









EINKARÉTTUR SMÁBARNA

Ef mér finnst það flott, þá á ég það

Ef ég held á því, þá á ég það

Ef ég næ því frá þér, þá á ég það

Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það

Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt

Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana

EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það





ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA

Áður en ég varð mamma borðaði ég matinn á meðan hann var heitur, gekk í hreinum fötum og gat spjallað í rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég farið seint í háttinn, sofið út um helgar, greitt mér daglega og gengið um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég því aldrei fyrir mér hvort pottaplönturnar á heimilinu væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég skýrt, hafði fullkomið vald yfir líkama mínum og tilfinningum og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei haldið grátandi barni föstu til þess að læknir gæti sprautað það eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei brostið í grát við að horfa í tárvot augu og þekkti ekki þá hamingjuflóðbylgju sem getur sprottð af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég aldrei langt fram á nótt og horfði á barn sofa eða hélt á sofandi barni vegna þess að ég tímdi ekki að leggja það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki hvað ein lítil vera getur haft mikil áhrif á líf manns og hversu óendanlega sárt það er að geta ekki kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki að ég gæti elskað svona heitt og hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég ekki þetta einstaka samband móður við barn sitt og gleðina sem fylgir því að gefa svöngu barni brjóst.








Það sem börnin kenna okkur...


Það er skemmtilegra að lita út fyrir línurnar...

Ef þú ætlar að lita á vegginn í stofunni,

þá er betra að gera það bak við sófann...

Það er ekki satt að Súpermann hafi alltaf

borðað grænmeti þegar hann var lítill...

Ef hundinum þínum líkar ekki við fólk,

þá ætti þér ekki að líka það heldur...

Jafnvel þó þú hafir dorgað á bryggjunni í 3 tíma

og ekki fengið neitt nema þara og sólbruna á nefið,

þá hefur þú það a.m.k. betra en ormurinn á hinum endanum...

Stundum þarftu að taka prófið

áður en þú lýkur við að læra...

Ef þig langar í kettling,

þá skaltu byrja á að biðja um hest...

Það er engin skynsamleg ástæða

fyrir því að föt þurfi að passa saman...

Ef hesturinn sem þú ert að teikna líkist meira hundi,

þá skaltu breyta honum í hund...

Taktu frá pláss í röðinni handa vinum þínum...

Bankaðu bara áfram...og áfram...

þar til einhver kemur til dyra...






Barn í tvíburamerki

Barn í tvíburamerkinu er snöggt í hreyfingum eins og svipu sé veifað, þó svo að flestar hreyfingar séu uppávið. Þetta barn er alltaf á leiðinni upp á eitthvað. Talandi um orku og virkni! Þetta barn fer létt með að gera 3 hluti í einu og er líklegt til að gera þá alla vel. Hægt er að segja um barn í tvíburamerkinu að það sé mjög klókt og komi sífellt á óvart. Það er einnig ósvífið og gæti komið heim með kettling með slaufu um hálsinn (sem það fann) og fært mömmu sinni að ?gjöf?. Sætt, ekki satt? Það sem þessu barni leiðist er að hafa ekkert að gera, svo vertu viss um að stundatafla þess sé alveg þétt skipuð (íþróttir, klúbbar, útivist o.s.frv.) Vegna þess hve barnið er upptekið og hefur margt fyrir stafni þá eignast það marga vini. Tvíburanum líkar að vera trúðurinn í bekknum og gerir í því að gretta sig og segja brandara. Tvíburinn er fyndinn og býr yfir góðum húmor. Hugur hans ferðast á ógnarhraða og auðvelt að örva. Vertu viss um að hann hafi alltaf nóg að lesa. Fyrir utan lestur þá hefur barn í tvíburamerkinu einnig mikla unun af því að tala, segja brandara og taka þátt í íþróttum, og það vill gera þetta allt núna strax. Þegar þú reynir að sjá fyrir þér barn í tvíburamerkinu þá skaltu hugsa um Línu Langsokk. Hallaðu þér aftur, dragðu andann djúpt og taktu þátt í fjörinu.


Einhver sagði...

-Einhver sagði að það tæki um 6 vikur að komast aftur í eðlilegt ástand eftir fæðingu barns......Einhver veit ekki að um leið og þú verður móðir heyrir "eðlilegt ástand" sögunni til.

-Einhver sagði að mæður þekki móðurhlutverkið af eðlishvöt......Einhver hefur aldrei þurft að versla í fylgd þriggja ára barns.

-Einhver sagði að móðurhlutverkið væri leiðitamt......Einhver hefur aldrei ferðast í bíl eknum af unglingi með ökuleyfi.

-Einhver sagði að ef þú ert "góð" móðir muni barnið líka "verða gott"......Einhver heldur að barni fylgi leiðbeiningar og ábyrgðarskírteini.

-Einhver sagði að "góðar" mæður hækkuðu aldrei róminn við börnin sín......Einhver hefur aldrei farið út í garð rétt í tæka tíð til að sjá barnið sitt sparka fótbolta í gegnum eldhúsglugga nágrannans.

-Einhver sagði að menntun væri óþörf í móðurhlutverkinu......Einhver hefur aldrei þurft að hjálpa 10 ára barni við að leysa stærðfræðiverkefni.

-Einhver sagði að það væri ómögulegt að elska fimmta barn eins mikið og fyrsta barn......Einhver á ekki fimm börn.

-Einhver sagði að öll svör við vandamálum tengdum börnum sé hægt að finna í bókum......Einhver hefur aldrei séð barn troða baun í nef sitt eða eyra.

-Einhver sagði að erfiðasta kafla móðurhlutverksins væri lokið við barnsburð og fæðingu......Einhver hefur aldrei horft á eftir krílinu sínu fara eitt inn í stóra byggingu á fyrsta skóladegi, eða stíga upp í flugvél á leið í fyrsta íþróttakeppnisferðalagið sitt.

-Einhver sagði að mæður geti unnið verk sitt með augun lokuð og aðra hönd fyrir aftan bak......Einhver hefur aldrei þurft að halda tuttugu 5 ára gríslingum ánægðum í barnaafmæli.

-Einhver sagði að mæður geti sleppt hendinni þegar börn þeirra giftast......Einhver veit ekki að hjónaband felur í sér nýjan son eða dóttur til að elska.

-Einhver sagði að starfi mæðra sé lokið þegar yngsta barnið fer að heiman......Einhver á engin barnabörn.

-Einhver sagði að móðir þín viti vel að þú elskir hana svo það sé óþarfi að tyggja á því......

Einhver er ekki móðir.


Þú ert gestur nr. 16653