Jæja núna er ég komin í heiminn! Og er gullfalleg prinsessa! Kom mömmu minni mjög mikið á óvart, því hún hélt alla meðgönguna að ég væri strákur!



Ég fæddist með bráðakeisara þann 2. mars 2006 klukkan 18:29 á Landspítalanum. Ég dvaldist á vökudeild fyrst um sinn og fór ég heim þegar ég var orðin 3 vikna og 6 daga gömul. Hægt er að lesa um fæðingarsögu mína og fyrstu 4 vikurnar hérna á heimasíðunni minni. Mamma hélt á mér í fyrsta skiptið þegar ég var 7 daga gömul og pabbi þegar ég var 9 daga gömul.

Mamma og pabbi komust að því að ég væri á leiðinni fimmtudaginn 30. júní 2005 og sama dag fór hún til læknis, sem setti hana í sónar og staðfesti þettta og taldi hana vera gengna 5 vikur. Svo fór hún í fyrstu mæðraskoðunina þann 10. ágúst 2005 og fékk að sjá mig spriklandi alveg á fullu.

Þann 12. október fóru mamma, pabbi og amma Jóhanna í sónar og kom allt ljómandi vel út. En þá fengu þau endanlegan væntanlegan fæðingardag.

Mamma mín heitir Theodóra Mýrdal og pabbi minn heitir Gunnar Björn Björnsson. Ég á einn stóran bróður, sem verður 3 ára 20. ágúst 2006 og hann heitir Andri Þór og er með síðu hérna á barnalandi. Mamma og pabbi vita að hann verður ofsalega góður stóri bróðir.

Mamma er á þriðja og næstsíðasta ári í Kennaraháskóla Íslands, í fjarnámi og ætlar hún að verða leikskólakennari í framtíðinni. En með skólanum vinnur hún í leikskólanum Tjarnarseli, í Keflavík. Pabbi er líka í skóla, hann er að vinna í því að ná sér í Bsc gráðu í stærðfræði og er hann í 100% fjarnámi. Andri Þór er á leikskólanum Hjallatúni og mun það væntanlega vera leikskólinn minn í framtíðinni.








Nafnið Jóhanna er komið úr biblíunni og er leitt af hebreska orðinu „johanan“ sem merkir Drottinn er náðugur. Nafnið Arna er kvennmynd nafnsis Örn sem er komið af fuglsheitinu Örn.

Ég er skírð í höfuð á móðurömmu minni, Jóhönnu og frænku minni, Örnu, systur hans pabba míns.




Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.






Andri Þór stóri bróðir minn

Alexandra Helma prinsessa

Aldís skvísa

Brynja Hlíf og Skarphéðinn

Gylfi Snær, Pétur Ingi og Anna Rakel

Jón Ágúst

Magnús Már frændi

Elín María frænka

Dagur Leó Ómarsson - fyrrverandi nágranni minn á vökudeild

Hilmir Snær - fyrrverandi nágranni minn á vökudeild

Bumbuprinsessa Ingu Láru og Njáls frænda

Prinsessa Ólafar Helgu



Elsku Jóhanna Arna
Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til

Þín mamma og þinn pabbi











Núna er/u...

að skoða heimasíðuna mína!

Gestir á heimasíðuna mína síðan 4. júlí 2005
Þú ert gestur nr. 38880