Þór & Sunna


Velkomin í heimsókn. Nýjar myndir 21. desember.

Verið ófeimin við að biðja um lykilorðið - netfangið er: uaj@hi.is




Um okkur.....
Þór Trausti fæddist þann 14. júní 2005 á Landspítalanum. Hann vó 15 merkur og var 51 cm. á lengd. Hann fæddist með mikið og þykkt dökkt hár og dökkblá augu. Mamma og pabbi segja að hann sé enginn smá kappi!
Þann 16. júlí var hann skírður og hlaut hann nafnið Þór Trausti. Þór er í höfuðið á ömmu Þórunni og langafa Gunnari Þór. Trausti er nú bara út í loftið en foreldrunum finnst það fallegt nafn og falleg merking að baki því.

Sunna Dröfn fæddist þann 9. júní 2008 á Landspítalanum. Hún vó 16 merkur og var 52 cm. Hún fæddist líka með mikið hár og dökkblá augu eins og stóri bróðir. Foreldrarnir segja að hún sé líka svaka kappi eins og stóri bróðir.
Mamma og pabbi ákváðu að nefna hana þegar hún var 5 daga á afmælisdegi Þórs Trausta og hlaut hún nafnið Sunna Dröfn. Sunna því hún fæddist á sólríkum sumardegi. Dröfn því það er úr goðafræðinni og tengist því nafni stóra bróður. Einnig merkir nafnið bára eða alda alveg eins og nafn múttunnar og tengist líka nöfnum Báru frænku og langömmu Báru.


Stjörnumerkið okkar.....
Barn í tvíburamerkinu er snöggt í hreyfingum eins og svipu sé veifað, þó svo að flestar hreyfingar séu uppávið. Þetta barn er alltaf á leiðinni upp á eitthvað. Talandi um orku og virkni! Þetta barn fer létt með að gera 3 hluti í einu og er líklegt til að gera þá alla vel. Hægt er að segja um barn í tvíburamerkinu að það sé mjög klókt og komi sífellt á óvart. Það er einnig ósvífið og gæti komið heim með kettling með slaufu um hálsinn (sem það fann) og fært mömmu sinni að ?gjöf?. Sætt, ekki satt? Það sem þessu barni leiðist er að hafa ekkert að gera, svo vertu viss um að stundatafla þess sé alveg þétt skipuð (íþróttir, klúbbar, útivist o.s.frv.) Vegna þess hve barnið er upptekið og hefur margt fyrir stafni þá eignast það marga vini. Tvíburanum líkar að vera trúðurinn í bekknum og gerir í því að gretta sig og segja brandara. Tvíburinn er fyndinn og býr yfir góðum húmor. Hugur hans ferðast á ógnarhraða og auðvelt að örva. Vertu viss um að hann hafi alltaf nóg að lesa. Fyrir utan lestur þá hefur barn í tvíburamerkinu einnig mikla unun af því að tala, segja brandara og taka þátt í íþróttum, og það vill gera þetta allt núna strax. Þegar þú reynir að sjá fyrir þér barn í tvíburamerkinu þá skaltu hugsa um Línu Langsokk. Hallaðu þér aftur, dragðu andann djúpt og taktu þátt í fjörinu.

Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi,
svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.
Þú ert gestur nr. 16733