| VELKOMIN Á SÍÐUNA OKKAR |
|
|
Um mig:
Ég heiti Óliver Bent Hjaltalín og kom í heiminn á FSA þann 30.06.2005 kl. 10.00 eða 10 dögum fyrir áætlaðan fæðingadag. Ég var frekar penn, 12,5 mörk og 50 cm. Nú á ég einn lítinn bróðir sem heitir Marel Örn og fæddist 14.07.2008 kl. 6:10 en hann fæddist á Landspýtalanum 2 dögum fyrir áætlaðan fæðingadag og var 13 merkur og 50 cm. Foreldrar okkar eru Lovísa Jenný Sigurðardóttir og Elmar Örn Hjaltalín. Við búum saman í Grafarholtinu í Reykjavík.
Lykilorðið að albúminu er liðið sem pabbi er að þjálfa (ekki ísl. stafir) Ef ykkur vantar að vita það þá er bara að hafa samband. |
|
|
|
Annað:
KRABBINN
22. júní - 22. júlí Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr. |
| Þú ert gestur nr. 11166 |