Jæja það er komin 2 desember 2011 og árið er heldur búið að líða, ég er búin að vera í háaleitisskóla 4 bekk (áttum heima upp á Ásbrú, það er gamla kanasvæðið) Meðan mamma var að klára skólann, mér leið ekki of vel þar og langaði mikið að fara aftur í Hvaleyrarskóla. Mamma útskrifaðist úr sínum skóla í maí. Sumarið leið, við fluttum til Hafnarfjarðar og við krakkarnir fengum svo að vita að við værum að fá lítið systkini í janúar 2012. Verður voða spennandi. Ég fór svo í 4 vikur til pabba og hef svo farið aðra hverja helgi eftir það.
Söng svo með gospelkórnum mínum á ljósanótt og í stundinni okkar.
Nú er ég í 5 bekk í Hvaleyrarskóla og er í barnakór Hafnarfjarðarkirkju og einnig að æfa körfubolta. Dugleg að hjálpa mömmu þegar hún biður mig að gera eitthvað, fara með ruslið og þvott í þurkarann. Mamma á nefnilega pínu erfitt að fara niður og upp í geymsluna :)
En nú er jólamánuðurinn byrjaður og nóg um að vera, helgileikur bæði í skólanum og í kórnum, við systur erum að fara syngja í Hafnarborg á morgun og sunnudaginn með barnakórnum.
En já þetta eru allavega einhverjar fréttir af mér
Kær kveðja Áslaug Guðrún 10 ára duglega skvísa
Ófædda systkinið mitt
Væntanlegt í janúar 2012.
Hlakkar mjög mikið til :)
Nýjustu fréttir af gulldömunni minni :)
Áslaug er í 4 bekk í háaleitisskóla hérna í Reykjnesbæ. Hún saknar aðvísu mjög mikið gömlu bekkjafélaganna. Henni gengur rosalega vel og mjög dugleg að læra. Áslaug er farin að læra sund með sundfélagi keflavíkur og æfir 2 í viku.
Þegar hún fer í skólann tekur hún strætó og svo tekur strætó til baka eftir skóla. Svo fer hún á mentor til að ath hvað hún að læra heima. Hún er ofsalega góð við Ólöfu systur sína og eru þær duglegar að fara í innileikjagarðinn hérna :)
Um helgina fórum við í húsdýragarðinn snemma á sunnudagsmorgun til að gefa dýrunum og sinna þeim. Stelpunum fannst frekar vond lykt í hesthúsinu, en gáfust ekki upp :)
Í sumar er stefnan að flytja aftur í bæinn og hlakkar Áslaugu ekkert smá mikið til leika meira með bestu vinkonu sína hana Katríni :) mjög mikill söknuður þar.
en já þetta er í bili.. þarf að setja myndir inn á og hérna fer Áslaug að fara reyna skrifa hérna með mér
kær kveðja Á s laug Guðrún
hæhæ
langt síðan að það var skrifað hérna. Núna verður skrifað oftar endað verður Áslaug dugleg að skrifa hérna núorðið :) Henni langar svo mikið að fara sjá aðeins um síðuna sjálf. En auðvitað verð ég nálægt til að hjálpa henni. Og svo ætla ég að vera dugleg að setja inn myndir. Áslaug mín er að dúxa í skólanum, gengur rosalega í öllum fögum. Orðin fluglæs dóttlan mín og reikningi gengur henni rosalega vel og málfræði :) ég er svakalega stolt af henni. Enda svakalega dugleg
það er nóg að gera hjá henni, skólinn, kór bæði barnakórinn og skólakórinn. Svo er hún byrjuð að æfa handbolta með 7 flokki kvenna í haukum. Og þetta er sko allt að koma hjá henni. Orðin ekkert smá dugleg
æ það er ekkert smá gaman að fylgjast með henni. Það er sko ekkert annað hægt að brosa þegar maður hugsar til hennar :)
svo auðvitað rosalega góð við systur sína. Leikur, les og hjálpar til :)
svo er svakalega mikill munur hvað hún er dugleg í sundi. Hætt með kúta og syndir eins og herforingi.
en já nóg í bili hérna frá mér. Ætla að fara setja inn myndir
Áslaug skrifar næst.
bless í bili og endilega kvittið í gestabókina
kv Á G og Á G
jæja kominn tími til að síðan mín væri opnuð..
en já nú ætlar mútta að fara koma öllu í gang :)
ég er komin í 3ja bekk og gengur rosalega vel í öllu. erum í augnablikinu staddar nuna í hólminum og förum heim á morgun.
koma fullt af myndum :) þangað til næst.. bæbæ
Hvernig væri að fara skrifa fyrir börnin :)
Af henni Áslaugu er allt æðislegt að frétta, henni gengur rosalega vel í skólanum. Byrjum á byrjunni.
Um áramótin var hún hjá pabba sínum og Ellý en fékk að fara til ömmu og afa rétt eftir miðnætti.
Svo kom hún heim í sitt daglega amstur
Hún hefur verið að fara til pabba síns aðra hverja helgi. En þessa dagana er þetta aðeins að vera erfiðara, en það hlítur að lagast.
Hún að syngja og leika í samveru á síðasta fimtudag. Svaka flottu. Hún var Stína símalína :)
Henni gengur rosalega vel í öllu í skólanum. Les eins og snillingur, stærðfræði, skrift og öllu :) kennararnir eru svo ánægðir með allt hjá henni.
Á öskudaginn var hún öskubuska :) agalega fín og systir hennar fékk næstum því alveg eins búning þannig að 2 öskubuskur voru á þessu heimili :)
hún fór í smá langt frí til pabba síns var í 1 og hálfa viku. Aðeins að breyta til. Og þar fór hún á skíði. Í skíða skóla :) þarf að fá myndir til að setja á síðuna. Hún er dugleg fyrir norðan að fara á skauta og myndi hún svo mikið vinna mömmu sína í skautakeppni.. vegna hún er miklu betri :)
en já nú styttist heldur betur í páskana og hlökkun er hjá þeim báðum stelpunum.
og svo sumarið. Omæ :) ég ætla að reyna gera eitthvað svaka skemmtilegt með þeim :) bara spurning hvað. Það kemur allt í ljós
en já nóg í bili
bestu kveðjur Áslaug Guðrún og familia..
p.s ég reyni að vera dugleg að setja myndir inn á síðurnar
VIÐ FJÖLSKYLDAN ÓSKUM YKKUR ÖLLUM GLEÐILEGRA JÓLA :)
HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST YFIR HÁTÍÐARNAR
KÆR JÓLAKVEÐJA
ÁSLAUG GUÐRÚN, ÓLÖF HULDA, ÁGÚSTA,
P.S ÖMMA ÓSKAR YKKUR ALLS HINS BESTA UM JÓLIN
Það var þemavika í skólanum í nóvember. Og það var náttúran og dýr. Fórum á náttúrugripasafnið í kópavogi, það var krufið fisk, farið svo í dimm göng, búið til barmmerki og margt fleira. Svo þegar það var opið hús, þá var Ólöf veik og mamma komst ekki með mér. Þannig amma Ása kom í staðinn. Ég fékk að taka með litlu myndarvélina hennar múttu og tók myndir.
Annars gengur mér rosalega vel í skólanum. Er orðin auðvitað löngu fluglæs og enskan gengur rosalega vel. Það var samvera á síðasta fimtudag þar sem það var smá leikrit og sungum á ensku svo. Mamma tók myndir af því og fer að setja þær inn :)
svo á föstudaginn þegar skólinn var búinn fór ég heim þar sem Lillý (mamma Alfreds) var heima og við föndruðum jólakort. Og í gær á laugardaginn fórum við í keflavík heim til hennar og vorum að hjálpa henni að skreyta. Og ég var meira segja eftir þar. Langaði svo að lúlla hjá ömmu Lillý eins og Ólöf kallar hana :)
næsta helgi er pabbahelgi en.... Ég kemst ekki. Er að fara syngja í hafnarborg kl 11.20-11.40 og aftur kl 12.00-12.20 :) fyrst með hvaleyrarskólakór og svo barnakór hafnarfjarðarkirkju :)
svo syng ég í messu á sunnudeginum og mánudaginn 8 des þá er jólatónleikar hjá barnakórnum :)
vá það styttist ekkert smá mikið í jólin. Síðasti dagurinn í nóvember er í dag og á morgun er 1 des.
en jæja þá eru komnar einhverjar fréttir hérna inn :)
við biðjum að heilsa
kær kveðja
Áslaug Guðrún söngdrottning
Margt og mikið búið að ské hjá mér. Það var vetrarfrí núna í oktober og þá fékk ég að vera hjá ömmu og afa á Akureyri. Það var rosalega gaman. Það kom svo mikill snjór að við festust inni. *úps* Að vísu mokaði afi okkur svo út. En það var rosalega gaman að leika í snjónum. Á leiðinni heim í fluginu var ég samferða Elvari Mána frænda mínum en hann er svo í sama skóla og ég, jafngamall og allt en samt sem áður í hinum bekknum.
Mamma fór á foreldra fund og mér gengur glimrandi vel og er stórkostlegur nemandi :) Masa samt mikið ennþá hehe en það er verið að taka á því.
Annars er allt ljómandi gott að frétta. Alltaf jafn gaman að vera til :)
en jæja nóg í bili. P.s pabbahelgi næstu helgi !
Jólakveðja. Já ég er farin að syngja jólalög allan daginn
Frk Áslaug Guðrún
allt gott að frétta af mér. Er alltaf dugleg í skólanum, kláraði uglu í smíðum rosalega flotta :)
Svo er ég búin að fara síðustu 2 helgar til pabba, fór á skauta og margt fleira.
Mamma er búin að setja myndir af afmælinu mínu og Ólafar á heimasíðurnar.
en vá svo styttist heldur betur í jólin og mér hlakkar ekkert smá mikið til að fara skreyta :) og þegar snjórinn kemur, það verður bara gaman.
svo er hvalaveisla í dag og ég fékk aðkoma með sparinesti *namm*
en jæja veit ekki hvað skal segja meira
bestu kveðjur Áslaug Guðrún
allt gott að frétta af mér þessa dagana. Mér gengur rosalega vel í skólanum og er að brillera í öllum fögum samkvæmt því sem Hjördís kennari segir. Mamma fór á fund með kennaranum á fimtudaginn og fékk mamma að skoða allar bækurnar sem við munum læra í vetur. Og þær eru nú margar bækurnar.
Á föstudaginn fór ég í holtasel og þar fengu við krakkarnir sem áttum afmæli í september að baka köku fyrir krakkana sem eru í holtaseli. Og sú kaka var nammi nammm!!!!
Við vorum um 10 stk sem bökuðum kökuna með Helenu. Og þegar krakkarnir voru sestir við borðið þá buðum við þeim kökusneið.
Í gær laugardaginn var haldið svo upp á afmælið mitt.. Skólaafmælið mitt var haldið í björk, fimleikafélaginu. Og það komu nú nokkrir krakkar úr bekknum, vantaði aðvísu 6 stráka. En nóg af fjöri. Alfred vinur okkar festist í gryfjunni í ábyggilega 40 mín og krakkarnir í bekknum voru í því að kaffæra hann. Aumingja drengurinn var búinn á því þegar hann komst uppúr.
Svo var haldið upp á afmæli okkar systra hérna heima eftir þessi herlegheit ! og óvænt kom pabbi og ellý, ekkert smá gaman að sjá þau koma í afmælið mitt, því ég bjóst engan vegin að sjá þau :)
ég fékk fullt af pökkum og var sátt með daginn.
ég þakka kærlega fyrir mig :) og myndir koma inn bráðlega þegar mútta setur þær inn í tölvuna :)
bestu kveðju Átvaglið hún Áslaug Guðrún :)
(sem borðaði og borðaði skúffukökuna hallo kitty)
HÚN Á AFMÆLI Í DAG
HÚN Á AFMÆLI HÚN ÁSLAUG
HÚN ÁFMÆLI Í DAG
HÚN ER 7 ÁRA Í DAG
HÚN ER 7 ÁRA Í DAG
HÚN ER 7ÁRA HÚN ÁSA MÍN
HÚN ER 7 ÁRA Í DAG
HÚN HEFUR STÆKKAÐ Í NÓTT
HÚN HEFUR STÆKKAÐ Í NÓTT
HÚN HEFUR STÆKKAÐ Í NÓTT
HÚN HEFUR STÆKKAÐ Í NÓTT
TIL HAMINGJU ELSKU ÁSLAUG OKKAR
KÆR KVEÐJA LITLA SYSTIR , MAMMA OG AMMA ÁSA
Nú fór ég ein í skólann, litla systir ældi í rúmið hjá mömmu í nótt og næstum því á mig, ég var fljót að fara upp í rúmið mitt, svoég fengi eki aðra gusuá mig :)
Um helgina fór ég í 2 afmæli hjá bekkjarbræðrum mínum. Nóg að gera og á laugardaginn löbbuðum við mamma og Ólöf systir niðrí miðbæ, að láta laga gleraugun mín og fleira svona áður en 1afmælið byrjaði. Og í gær löbbuðum við niðrí kirkju eða ég fór á hlaupahjólinu og litla systir var í kerrunni sinni :)
og svo var farið á mammamia aftur og Ólöf kom með á bíómyndina. Og amma Ása
Ég las 4 lestrarbækur um helgina, enda er ég orðin svo fluglæs að ég les allt :)
en jæja nóg í bili...
alltaf að bætast nýjar myndir inn á síðurnar. Og muna kvitta
kær kveðja Áslaug Guðrún lestrarhestur :P
Í dag eru 10 ár síðan Óli afi minn fór til himna. Og þess vegna fórum við mamma, Ólöf Hulda og amma Ása með blóm á rúmið hans. Fallega blómvendi sem við keyptum, fórum svo með rósir sitthvorar, ein sem ég gaf og ein sem Ólöf Hulda setti á rúmið hjá langömmu og langafa. Þorvaldur dan frændi fékk líka rós og Ragna frænka fékk 2 rauðar rósir á sitt rúm. Mjög fallegt sem við gerðum.

svo fór ég út að hjóla.. Og gleymdi símanum á leikvelli, en það var góð kona sem tók hann þegar mamma hringdi og við náðum í hann :)
ég kom samt skömmustuleg heim og með tárin í augunum og sagði að síminn væri týndur :(
en svo gladdist ég þegar mamma sagði að síminn væri fundinn :)
en nú er partý hjá okkur stelpunum, erum að horfa á mynd og borða snakk við systur. Bara gaman
en jæja nóg í bili
endilega skrifið í gestabókina
kær kveðja Áslaug Guðrún
hæhæ :)
Litla systir mín á afmæli á morgun vá hún verður sko 2 ára og þá á ég núna afmæli eftir 15 daga :) tel niður
Nú er barnakórinn byrjaður og meira segja mun ég syngja í fyrstu barnaguðþjónustunni núna 14 sept á afmælisdaginn hjá pabba mínum. Mamma ætlar líklegast að halda upp á afmælið hjá mér og systu núna 13. Og ég er líka í skólakór hvaleyraskóla.
ég er dugleg að læra. Allavega lesa. Búin með 4 bækur síðan skólinn byrjaði. Svo er ég víst komin með gsm þannig verðið að tala við múttu um að fá nr mitt :) ég fæ samt alls ekki alltaf að hafa símann bara stundum
2 sorgarfréttir sem komu upp í ágúst. Litli bróðir ömmu Ásu lést þann 10 ágúst síðasliðinn og var jarðsunginn 23 ágúst í stykkishólmi. Ég og systir vorum í pössun hjá henni Dagný og fjölsk þegar jarðarförin var og mamma kom svo og sótti okkur þegar erfidrykkjan var. Mamma segir að athöfnin var alveg hreint svakalega falleg.
og Ragna bestasta frænka mín systir langömmu minnar lést viku seinna, eða þann 17 ágúst. Ég mun alltaf minnast hennar með góðum hugsunum. Enda fanst mér alltaf skemmtilegt að koma í heimsókn til hennar.
En þegar við vorum í stykkishólmi fengum við litla systir að gista hjá Berglindi frænku. Og ég er sko búin að ákveða að fá að fara til hennar annaðslagið með rútu haha. Allt planað og klárt hjá mér. Farin meira segja tala um það strax. Berglind.. þú losnar ekki undan þessu hahaha
en nóg í bili af mér
kær kveðja Áslaug Guðrún söngdrotting
Hæ hó.
nýjustu fréttir af mér. Ég var hjá pabba mínum í júlí þegar mamma hringdi og sagði að hún og amma væru búnar að panta ferð til danmerkur. Og auðvitað vildi ég koma með. Þannig ég fékk leyfi frá pabba mínum að koma fyrr til mömmu og fara með til danmerkur og kæmi aftur til hans þegar við kæmum til baka. Sumsé við fórum 21 júlí til kaupmannahafnar. Vá hvað það var gaman, ég hefði aldrei farið áður þangað og nú værum við að fara hitta fullt af ættingjum sem búa á amager, vorum fyrst hjá Hildi og fjölsk. Það var yndislegt að vera hjá þeim. Við hittum alla ættingja okkar sem búa þarna. Ég var mjög hænd af Maybritt dóttur hennar Hildar, enda urðum við góðar vinkonur.
Uppáhalds morgunmaturinn minn var brauðbollur, með bláberjasultu. Nammi. Svo fórum við líka margt. Fórum í tívolí, á bakken, í fields, á strikið, amagercenter, dragör, nyhafn og í siglingu. Og ekki má gleyma sjá skiptinguna í amelíuborg, þarsem drottningin býr, en hún var ekki heima.
Við löbbuðum ekkert smá mikið og fengum við rosalega gott veður. Ég var á nærbuxum alla daga og varla klæddi mig meira en það. Þannig ég fékk meiri lit í danmörku en á kanarí.
Svo fórum við í matarboð til Pálu frænku og Himma, Bylgju og Ramo (hann var rosalega góður við okkur systurnar) og í grill til Sorinu og fjölsk. Og ekki má gleyma matarboði hjá Hildi. Við þökkum kærlega fyrir okkur. Þetta var yndislegt
Svo fengum við íbúðina hjá Pálu frænku lánaða og vorum við þar seinni vikuna
Eins og þið sjáið var nóg að gera hjá okkur. Og nóg að tala um þegar ég fer í skólann aftur. Núna er ég hjá pabba og kem ekki aftur fyrr en 21 ágúst. Að mamma haldi. Skólinn byrjar 22 ágúst og já ég fékk nýja skólatösku. Ég borgaði 100 kr danskar í henni. Hallo kitty tösku. Já mamma missti sig í h og m og keypti handa okkur systrum soldið mikið af hallo kitty fötum.
en jæja nóg í bili. Myndir koma inn í dag eða á morgun :)
hafið það gott í dag og næstu daga
kær kveðja Áslaug Guðrún, sem er komin með lit á skrokkinn
Úffffff langt síðan að það var skrifað hingað. Nú koma þá margar fréttir...
Mér gekk rosalega vel í skólanum,fékk æðislega einkunnir. Í lestri er meðaltalið fyrir vorönn 1 bekk 60 atkvæði á mín en ég var með 83 :) mamma mín er svo stolt af mér :)
ég er búin að fara í sumarbústað í húsafelli, stykkishólmi og vopnarfirði. Já við fórum í smá ferðalag, fyrst til akureyrar, svo á humarhátíð á höfn, þaðan til egilstaða sem amma ása kom í flugvel og þá keyrðum við til nonna og jónu vinafólks ömmu ásu og óla afa sem búa á neskaupstað. Og þaðan lá leið til vopnarfjarðar sem mamma var í sveit og hittum við arthúr kristinn sem mamma passaði og skildfólks hans. Sem eru æðisleg, alltaf gaman að fara til vopnó, mamma á eftir að fara aftur með okkur systur þangað og stoppa lengur.
og núna er ég stödd hjá pabba mínum á akureyri og verð í mánuð. Eða þar til eftir versló. Langur tími já frekar.
litla syss vill ekki fara í bað nema að ása stóra systir komi með sér. Aumingja mamma að koma henni í baðið *haha*
en já svo styttist í að ég fari í 2 bekk hj vá allt of fljótt að líða. Mamma þarf bráðum að fara kaupa skólabækur aftur. Mig langaði nú í aðra skólatösku en það tókst að sannfæra mig að þessi skólataska væri nógu góð þar til ég færi í 3 bekk :)
en jæja hérna hafiði einhverjar fréttir af mér :)
kær kveðja
Áslaug Guðrún
p.s það er alltaf að koma nýjar myndir inn sko




