Velkominn á síðuna mína og litla bróður!
Björn Magnús heiti ég og er Sveinbjörnsson. Þann 19. desember 2010 eignaðist ég lítinn bróður - eins og er er hann ekki kominn með nafn. Mamma mín okkar Birna Guðmundsdóttir og pabbi minn okkar Sveinbjörn Freyr Arnaldsson.


Um mig:
Ég kom í heiminn föstudaginn 21.janúar árið 2005. Ég átti að fæðast á Valentínusardaginn en nennti ekki að bíða svo lengi, enda orðinn alveg meira en nógu stór. Þegar ég kom í heiminn var ég 14 merkur, 52 cm og 3555 gr. Ég get ekki einu sinni giskað á hvað hefði orðið stór hefði ég komið á réttum tíma og hef ég góðan heimildir fyrir því að hún mamma mín sé bara mjög feginn að ég kom fyrr. Augun mín eru fallega dökk blá og stór. Til að byrja með líktist ég mömmu minni en núna eftir eins árs afmælið líkist ég pabba sífellt meir, og er víst farinn að labba líka eins og hann ( svo segir Begga frænka allavega).
Núna eftir tveggja ára afmælið er það betur komið í ljós að ég er nákvæmlega eins og hann pabbi minn, sama göngulag, sami húmor, sama ljósa hárið, svo gott sem sama allt, eða hvað finnst ykkur? :-)





Þú ert gestur nr. 7852